• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

FjölskylduFLUGhátíð í Múlakoti um verslunarmannahelgina

Vefstjóri FÍF | 28. júlí 2004 | 00:00
Yngsta flugkynslóðin í fyrirrúmi
Sérstök áhersla verður lögð á að hafa ofan af fyrir ungu kynslóðinni. Á svæðinu verður hoppukastali, karokí, haldið bingó og keppt um bestu bréfskutluna og verðlaun fyrir bestu flugmyndlistina. Þá verður karmellu- og pokakast úr flugvélum og ýmislegt annað nýstárlegt.
Heimilislegur matarilmur í Fljótshlíðinni
Það verður algjör óþarfi að koma með mat í Múlakot. Flugmálafélagið leggur sérstaka áherslu á að leysa þann mikilvæga þátt með heimilislegum anda að leiðarljósi. Sérlöguð Flugfiskisúpa a´la Múlakot verður “stand-by” allan daginn, heimabakaðar Múlakotsmúffur, Vestmannaeyjaflatkökur með hangikjöti, mexíkanskt snakk með heiti sósu, pylsur soðnar í pilsner, heimalagaðar samlokur, örbyglgjupopp, úrval af sælgæti, malandi Gevalia-kaffivél, kaldir drykkir úr kæliskápum og ís ef veður leyfir svo það helsta sé nú upptalið (leyndó: bjór seldur undir borðum). Á morgnanna verður svo “mini”-morgunverðarhlaðborð og ekki má gelyma grillveislunni góðu á laugardagkvöldið. Viðvörun: Þetta verður á boðstólum á meðan birgir endast og hið formkveðna gildir: Fyrstir koma – fyrstir fá.
Haus og hali á flugsýningarsvæðinu
Útbúin hafa verið lífleg skilti sem rekin verða ofan í grassvörðinn til að tákna “heimavöll” viðkomandi flugáhugamanna. Á skiltunum mun standa: Sandskeið, Hamranes, Fisheimar, Gamli turninn, Fluggarðar, Himnaríki (fallhlífaliðið), Melgerðismelar, Tungubakkar, Pilsaþytur (Flugklúbburinn Þytur) og Geirfuglasker. Erum líka að reyna að útbúa gott hlið (gatekeeper) þar sem ekið er inn á svæðið. Kl. 11 fyrir hádegi á laugardeginum verður formleg setningarathöfn til að gefa þessu öllu menningarlegra yfirbragð og svo verður menningarkvöldstuð við varðeld og Fjótshlíðarfjöldasöng þegar dimma tekur. Þannig verður vonandi góð stemming og myndrænn haus og hali á hjá okkur.
Upphaf og endir + stuðningur við Flugmálafélagið
Svæðið verður opnað síðdegis föstudaginn 30. júlí. Formlegri dagskrá lýkur á sunnudagskvöldið en vitaskuld geta flugfjölskyldur dvalið fram á mánudaginn. Það kostar 500 kr. inn á svæðið og það gildir fyrir alla helgina. Tjaldstæðð kostar 500 á sólarhring. Yngri en 14 ára fá frítt á svæðið í samræmi við væna fjölskyldustefnu Flugmálafélagsins sem á eftir að birtast ykkur í enn fjölbreyttara formi. Aðgangseyrinn hjálpar Flugmálafélaginu (og þar með okkur öllum) að halda þessu elskulega flugstússi öllu áfram, öllum til ánægju og hagsbóta.
Verið stillt á Múlakot á tölvunni næstu daga
Á næstu dögum sendum við fleiri góðar og ánægjulegar fréttir um dagskránna á Múlakoti. Hvetjum allt flugáhugafólk að mæta með fjölskylduna og vini og kunninga, styðja þannig Flugmálafélgið og fara ósvikin heim til baka og halla okkur alsæl á koddann. Eitt af kjörorðum Flugmálafélagains er að gera meira fyrir ykkur en auglýst er.
Amen á eftir efninu. Biðjum Guð um gott veður.
Háloftakveðjur,
f.h. Flugmálafélags Íslands
Gunnar Þorsteinsson
Upplýsingasímar Múlakots eru 663 5800 + 867 5808.

Flokkar
Fréttir

Myndir óskast!

Vefstjóri FÍF | 26. júlí 2004 | 00:00

Borist hefur beiðni frá ITF (The International Transport Workers’ Federation) um myndir af félagsmönnum við störf. Samtökin eru að byggja upp myndasafn sitt til notkunar við ýmis tækifæri og senda því öllum aðildarfélögum þessa beiðni. Því biður stjórn FÍF þá sem eiga slíkar myndir, á stafrænu formi, um að hafa samband við stjórnina þannig að hægt verði að safna saman myndum af öllum vinnustöðum flugumferðarstjóra hér á landi. Þetta væri einnig ágætt tækifæri til að safna myndum sem setja mætti inná heimasíðuna okkar.
Endilega hafið samband, netfangið er fif@simnet.is

Flokkar
Fréttir

Nýr félagsmaður

Vefstjóri FÍF | 20. júlí 2004 | 00:00

Mér er ánægja að kynna nýjan félagsmann, Gunnar Thoroddsen sem hefur nýlokið prófi í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Við óskum honum til hamingju með flugumferðarstjóraskírteinið og bjóðum hann velkomin í félagið.
Stjórnin.

Flokkar
Fréttir

Uberlingen – skýrsla frá rannsóknarnefnd flugslysa í Þýskalandi

Vefstjóri FÍF | 16. júlí 2004 | 00:00
Flokkar
Fréttir

Tveir nýir félagsmenn

Vefstjóri FÍF | 5. júlí 2004 | 00:00

Mér er ánægja að kynna tvo nýja félagsmenn en það eru þau Hringur Pétursson og María K. Magnúsdóttir. Hringur og María starfa bæði í flugturninum á Keflavíkurflugvelli. Við óskum þeim til hamingju með flugumferðarstjóraskírteinið og bjóðum þau velkomin í félagið.
Stjórnin.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX