• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Critical incident stress management – CISM

Vefstjóri FÍF | 14. nóvember 2004 | 16:14

 Stjórn FÍF hvetur félagsmenn til að kynna sér CISM (streitu og áfallastjórnun). Streitu- og áfallastjórnun er beitt víða, þ.á.m. í flugumferðarþjónustu.  Írar eru frumkvöðlar í að beita CISM innan ATC en síðan 1997 hafa þeir haldið úti “networki” þar sem hverjum þeim sem lendir í flugumferðaratviki býðst að fá áfallahjálp hjá starfsfélaga.  Þannig hafa Írar þjálfað hóp flugumferðarstjóra í að veita slíka ráðgjöf, þjálfunin byggist á bandarísku kerfi, þróað af Mitchell (www.icisf.org).  Portúgalir og Þjóðverjar hafa einnig komið á CISM og fleiri þjóðir eru í þann mund að taka upp CISM.  FÍF hefur lagt til við FMS að CISM verði komið á innan flugumferðarþjónustunnar og ennfremur lýst yfir áhuga á að standa að slíku verkefni í samvinnu við FMS.

Hér að neðan er tengill á ýmsar upplýsingar um CISM, niðurstöður ráðstefnu sem haldin var í Bucharest 22. okt. sl.             
 http://www.ifatca.org/cism/cism.htm

Flokkar
Fréttir

Frá stjórn

Vefstjóri FÍF | 11. nóvember 2004 | 18:10



Nú líður að því að stýrihópur samgönguráðherra um framtíðarskipan flugmála skili niðurstöðum, en skv. upplýsingum stjórnar má búast við að hópurinn ljúki störfum 15. des. nk.  Eins og menn muna fór FÍF fram á að fá félagsmann skipaðan í stýrihópinn en þeirri beiðni var aldrei svarað af ráðherra.  Það er athyglivert að skoða hver skipan flugmála er í löndunum í kringum okkur. Integra Consult a/s hefur nýverið unnið skýrslu fyrir FMS um skipan flugmála í 24 löndum, eftirfarandi upplýsingar eru teknar úr þeirri skýrslu. Ef við skoðum Norðurlöndin þá er staðan sú að í Danmörku og Noregi hefur átt sér stað aðskilnaður þjónustu og eftirlits, í Svíþjóð mun aðskilnaður þjónustu og eftirlits verða að veruleika í janúar 2005 og í Finnlandi er hið sama fyrirhugað í janúar 2006. Naviair í Danmörku og Avinor í Noregi, flugumferðarþjónustuaðilarnar, eru hvoru tveggja fyrirtæki í ríkiseigu, Avinor er hlutafélag en ekki Naviair.  Ekki er laust við að breytingin sem átt hefur sér stað í Danmörku og Noregi við að flytja flugumferðarþjónustuna úr CAA, stofnun á borð við FMS, yfir í fyrirtæki hefur haft töluverðar afleiðingar fyrir starfsfólk, þá sérstaklega í Noregi.  Aukin krafa um hagræði hefur haft í för með sér ýmsar breytingar á rekstri flugumferðarþjónustunnar, breytingar sem oft virðast illa ígrundaðar og keyrðar í gegn í fljótfærni.  Fréttir af fyrirhuguðum breytingum í Noregi bárust fyrir nokkru þegar flugumferðarstjórar í Röyken lögðu niður störf, vegna öryggisástæðna, þegar þeim höfðu verið færðar þær fréttir að stjórn Avinor hefði lagt til að hluti af starfsemi Röyken yrði flutt til Stavanger, og hluti til Gardemoen. Áætlað er að þeim breytingum verði lokið árið 2008.  Af öryggisástæðum segi ég, að sögn fengu þessar fréttir töluvert á menn og lái þeim hver sem vill að treysta sér illa til að veita ábyrgðarmikla þjónustu eins og flugumferðarstjórn við slíkar kringumstæður.  Norðurlöndin hafa öll valið að láta „fyrirtækjavæðingu” flugumferðarþjónustunnar duga, nokkur ríki hafa gengið enn lengra og einkavætt flugumferðarþjónustu. Einkavæðing hefur m.a. átt sér stað í Kanada, Bretlandi og Ástralíu.  Óhætt er að segja að að önnur lönd ættu að líta á einkavæðingu þessara landa sem víti til varnaðar.  Nú fyrir stuttu var Flugöryggissvið FMS flutt upp í Skógarhlíð.  Hvort sá flutningur sé vísbending um þær breytingar sem menn vilja sjá hér skal ósagt látið en ljóst er að við þurfum að vera á tánum og fylgjast vel með þessum málum.

 

Flokkar
Fréttir

Loksins loksins -Flugumferðarstjóri í RNF

Vefstjóri FÍF | 11. nóvember 2004 | 18:04


 
Flugumferðarstjórar hafa lengi undrast þá skipan Rannsóknarnefndar flugslysa að ekki hafi fundist þar innanborðs einstaklingur með menntun flugumferðarstjóra.  Nú hefur loksins orðið breyting þar á en Hörður Arilíusson hefur verið gerður að nefndarmanni RNF. 

Flokkar
Fréttir

Frá orlofshúsanefnd

Vefstjóri FÍF | 11. nóvember 2004 | 18:02

Sumarið er nú að baki og kaldir vindar farnir að blása aftur um sólbrún andlit flugumferðarstjóra. Að venju snerust störf orlofshúsanefndar mest megnis um rekstur orlofshúsanna. Nýting á þeim var góð í sumar. Eins og flestum er kunnugt þá var sumarbústaður í Borgarfirði (Svarfhóll) tekinn á leigu til viðbótar við Gullhvamm og Aðalból. Það hefur mælst vel fyrir og þeir sem hafa dvalið þar hafa verið ánægðir með staðinn. Að vísu voru vandamál með vatnið í byrjun (hljómar kunnuglega) en því var kippt í lag. Á þessari stundu er óljóst hvort við munum hafa afnot af Svarfhóli nema fram til áramóta. Það kemur til af því að eigandinn er að reyna að selja bústaðinn. Orlofsnefndin hefur lýst því yfir við eiganda hússins að við viljum ekki kaupa. Við teljum það vera félaginu ofaukið að bæta við sig öðru húsi; ekki síst í ljósi þess að mikil vinna felst í því að sjá um reglulegt viðhald á svona húsum og félagsmenn hafa verið frekar slappir að gefa kost á sér í nauðsynlegar vinnuferðir í bústaðina okkar þegar orlofsnefnd hefur óskað eftir aðstoð. Ekki teljum við að það breytist við að fjölga húsum.

 

Hvað er framundan?

Töluverðir fjármunir hafa safnast inn á sjóði orlofsnefndar að undaförnu. Það skýrist af því að á síðasta ári fékk orlofsnefnd vangreiddar fjárhæðir frá ríkinu til nokkurra ára. Ríkið hafði greitt of lága prósentu inn í orlofs- og sjúkrasjóð og þegar það uppgötvaðist var óskað eftir leiðréttingu. Niðurstaðan var að FÍF fékk endurgreitt nálægt kr.3.000.000 og var ákveðið á félagsfundi að þeir peningar rynnu beint í orlofssjóð. (Sjúkrasjóði hafði áður verið tryggður fastur tekjustofn.) Jafnframt hefur framlag ríkisins til orlofssjóðs hækkað í 0,3% af launum félagsmanna. Innstreymi í orlofssjóð frá ríkinu hefur því hækkað og er nú nálægt kr. 2.000.000 á ári. Af þeirri upphæð fer stór hluti til rekstrar og viðhalds orlofshúsa okkar ásamt niðurgreiðslu á útleigu til félagsmanna. Í dag á orlofsnefnd handbært fé nálægt kr. 5.000.000.

 

Orlofsnefnd leggur til að við höldum áfram að reka þau orlofshús sem við eigum en jafnframt því þarf að skoða aðra möguleika. 

 

Þar er nú efst á teikniborðinu að skoða orlofsávísanakerfi líkt og VR hefur haft fyrir sína félagsmenn um nokkurn tíma og geta félagsmenn þá notað sínar árlegu ávísanir til að greiða fyrir margs konar orlofstengda iðju og þá einnig fyrir leigu á orlofshúsum FÍF.

Kosturinn við þetta er að fjármunir dreifast jafnt til félagsmanna FÍF, ólíkt því sem er í dag, þar sem sumir nýta sér aldrei orlofshús félagsins. Ekki er þó enn búið að koma þessu á og talsverð undirbúningsvinna eftir.

Gagnlegt væri að félagsmenn mynduðu sér skoðun á þessu máli sem hægt væri að ræða nánar á næsta aðalfundi. Þar gæfust líka möguleikar á að koma fram með aðrar hugmyndir en hér hafa verið nefndar.

 

Húsin okkar

Gullhvammur:

Vatnsveitumálin í Úthlíð hafa verið að breytast mikið og nú er Orkuveita Reykjavíkur búin að taka yfir veitu bæði á heitu og köldu vatni á svæðinu. Ljóst var frá byrjun að mikla vinnu þyrfti að leggja í endurbætur á vatnsveitunum báðum og hefur OR verið að vinna að því í allt sumar. Gert er ráð fyrir að það geti tekið allt að 2 árum að fullklára það verk og mun því geta haft áhrif fyrir íbúa sumarhúsanna. Reynt verður þó að haga þeirri vinnu þannig að sem minnst óþægindi verði.

Eins og flestir innan FÍF þekkja hafa vatnsmálin í Úthlíð verið sorgarsaga lengst af, því tók orlofsnefnd þá ákvörðun að ganga til samstarfs við OR. Það gengur út á það að OR eignast heimæðina að húsinu okkar en mun um leið ábyrgjast að halda henni í lagi.

Settur verður upp “Hemill” sem skammtar notkun á heitu vatni samkvæmt samningi og greiðum við fyrir samkvæmt því. Von okkar er að þegar þetta verður frágengið þá séu vatnsmálin í Gullhvammi loksins komin í gott horf.

 

Aðalból:

Var í notkun samkvæmt venju í allt sumar og var góð nýting út allan ágústmánuð. Orlofsnefndin fór þangað í vinnuferð snemma sumars og gerði allt klárt. Bústaðurinn var að mestu í góðu ástandi en þó þarf að fara að huga að endurbótum á þaki.  Hitaveita hefur verið lögð inn á svæðið sem bústaðurinn okkar er á og var okkur boðið að taka heita vatnið inn til okkar. Við höfnuðum því. Ástæðan er sú að við teljum kostnaðinn of mikinn miðað við þá notkun sem við sjáum fyrir okkur á bústaðnum í framtíðinni. Þetta er og verður Sumarbústaður, með sinn sjarma sem slíkur. Ef við færum út í það að taka inn hitaveitu með heitum potti yrði kostnaðurinn sem því fylgdi meiri en við teljum ásættanlegt miðað við þá notkun sem er á húsinu. Sem heilsárshús myndi Aðalból aldrei ná ásættanlegri nýtingu yfir vetrarmánuðina vegna fjarlægðar frá höfuðborgarsvæðinu

 

Svarfhóll:

Leigubústaður í Borgarfirði.

Höfum afnot a.m.k til áramóta. Óljóst með framhaldið þar sem eigandinn er að reyna að selja húsið.

 

Kveðja,

Orlofshúsanefnd

 

 

Flokkar
Fréttir

Flugumferðarstjóra í Bodö hótað uppsögn af Avinor

Vefstjóri FÍF | 1. nóvember 2004 | 17:35

Á heimasíðu NATCA (Norwegian air traffic controllers’ association) má lesa að Avinor hefur hótað flugumferðarstjóra í Bodö uppsögn  Flugumferðarstjórinn hafði kvartað yfir því að dregið hefði úr flugöryggi í framhaldi af breytingum sem átt Avinor hefur gert á rekstri flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Bodö. NATCA vill meina að Avinor vilji setja “munnkurv” á flugumferðarstjórann og bendir á hvaða afleiðingar það getur haft fyrir flugöryggi ef flugumferðarstjórar veigri sér við að tilkynna frávik sem þetta. Fyrir ykkur sem lesið norsku þá er tengill á fréttina: 

http://pub.tv2.no/nettavisen/reiseliv/article296909.ece

og tengill inn á heimasíðu NATCA

http://natca.no/default.aspx?SideID=47

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX