• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Kjarasamningur felldur

Vefstjóri FÍF | 25. júlí 2005 | 17:08

Kjarasamningur sem FIF og samninganefnd ríkisins skrifuðu undir um daginn var felldur í kosningu félagsmanna.  Á næstu dögum verður samninganefnd ríkisins gerð grein fyrir niðurstöðunni og hefjast þá væntanlega fundarhöld vegna þessa í næstu viku.

Flokkar
Fréttir

Félagsmenn athugið! Félagsfundur nk. mánudagskvöld, 25. júlí.

Vefstjóri FÍF | 21. júlí 2005 | 19:31

Ágæt mæting var á félagsfundinn á fimmtudagskvöld þar sem nýr samningur var kynntur. Þeim sem óska frekari skýringa á einhverjum þáttum samnings er bent á að hafa samband við einhvern stjórnarmanna.  

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta á mánudag og kjósa.  
Kveðja, 
stjórnin.

Flokkar
Fréttir

Kynning á nýgerðum kjarasamningi FÍF og ríkisins

Vefstjóri FÍF | 20. júlí 2005 | 09:14

Kynning á nýjum kjarasamningi fer fram í kvöld í Borgartúni 28, kl. 2000.  Samningurinn verður kynntur og hvatt er til umræðu.  Atkvæðagreiðsla um samninginn mun síðan fara fram á mánudagskvöldið 25. júlí, kl. 2000 að sama stað.
Stjórnin hvetur félagsmenn til að mæta.

Flokkar
Fréttir

Samningar náðust

Vefstjóri FÍF | 15. júlí 2005 | 09:38

Í dag var skrifað undir kjarasamning milli Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samninganefndar ríkisins.  Fundahald hefur verið stíft undanfarna daga en lauk í dag með samningi.  Samningurinn mun liggja frammi á vinnustöðum en kynning um hann fer væntanlega fram miðvikudaginn 20. júlí klukkan 20 í Borgartúni.

Flokkar
Fréttir

Enn er fundað!

Vefstjóri FÍF | 13. júlí 2005 | 08:12

Fundinum í gær var frestað kl 00:30, aðilar hittast aftur kl. 1300 í dag. 

Flokkar
Fréttir

Vefstjóri FÍF | 13. júlí 2005 | 08:10
Flokkar
Fréttir

Samningafundi, sem FÍF lét boða til í dag, frestað fram í þriðjudag.

Vefstjóri FÍF | 8. júlí 2005 | 14:17

FÍF sá ástæðu til að boða til samningafundar í dag eftir fund með stofnun í morgun.  Fundinum var frestað nú kl. 1845 en verður framhaldið kl. 1300 á þriðjudag.  Fyrir liggur að FÍF þarf meiri tíma til að skoða tilboð ríkisins um leiðréttingu á lífeyrismálum félagsmanna.  SNR tók ekki tilboði FÍF um kjarasamning með fyrirvara um lífeyrismálið og því var ákveðið að fresta fundi fremur en að slíta viðræðum. 

Flokkar
Fréttir

Viðræðum FÍF og samninganefndar ríkisins slitið í gær.

Vefstjóri FÍF | 7. júlí 2005 | 08:08

Fundur í gær stóð frá kl. 1300 en var slitið kl. 2230 eftir að ljóst var að menn voru ekki að ná saman. Frekari fréttir á spjallinu.

 

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX