• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Bréf flugmálastjóra til Hlínar Hólm

Vefstjóri FÍF | 24. janúar 2006 | 22:51

Félagsmenn ættu nú flestir að vera búnir að fá afrit af bréfi, stílað á Hlín Hólm flugumferðarstjóra, þar sem flugmálastjóri furðar sig á ýmsu í hátterni stjórnar FÍF.
Stjórn FÍF mun svara bréfinu fyrir hönd Hlínar.  Gerð var munnleg og óformleg athugasemd við að bréfið skyldi stílað á Hlín Hólm flugumferðarstjóra en ekki Hlín Hólm formann FÍF.  Stjórn FÍF var fullvissuð um það af fulltrúum FMS að um mistök hafi verið að ræða en stjórn FÍF mun gera formlega athugasemd við þessi vinnubrögð.

Félagsmenn athugið að öll fyrri bréf sem send hafa verið á milli FÍF og FMS má finna á heimasíðunni, undir Handbók – Bréf

Flokkar
Fréttir

Ríkisskattstjóri fellst á að einkennisklæðnaður sé skattfrjáls

Vefstjóri FÍF | 20. janúar 2006 | 08:49

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1180134

Flokkar
Fréttir

Öllum viðræðum við FMS um breytingar á vaktakerfum hætt

Vefstjóri FÍF | 18. janúar 2006 | 13:08

Í síðustu viku voru farnar af stað að nýju, viðræður um samkomulag milli FÍF og FMS um fyrirkomulag vinnutíma.  Stjórn FÍF leyfði sér ákveðna bjartsýni, þar eð það voru yfirmenn FMS sem hófu máls á því að reyna ætti að endurvekja bókun 3 frá því í kjaraviðræðum í sumar.  Fundur var haldinn með FMS þar sem málin voru rædd, þar kom fram að 4% launahækkun væri í boði fyrir upptöku á bókun 3.  Stjórn FÍF lagði á það áherslu að hengja yrði við bókunina ákveðið vaktakerfi, þar sem aðalatriðið væri að allir starfsmenn vissu frá fyrstu tíð hvernig kerfi væri um að ræða, að samkomulag yrði um það vaktakerfi sem sett yrði á. FMS hélt sinni fyrri afstöðu um að ekki yrði samið um vaktakerfi.  Stjórn FÍF sá því ekki ástæðu til að halda viðræðum áfram og hefur því sent Flugmálastjóra tilkynningu þess efnis að FÍF muni leggja það í hendur félagsdóms að úrskurða um rétt FMS til að setja einhliða á vaktakerfi í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli.  Bréfið má sjá á lokuðu svæði félagsmanna undir Handbók – Bréf.  Lögfræðingur félagsins undirbýr nú dómsmál – frekari fréttir síðar.

Flokkar
Fréttir

Vaktamálefni

Vefstjóri FÍF | 11. janúar 2006 | 16:23

Eins og menn þekkja er ágreiningur milli aðila um mörg atriði er snerta vinnutímann.  Tvennt er í stöðunni, að gera samkomulag um vinnutíma til ákveðins tíma (29. feb. 2008 eða gildistíma kjarasamnings) eða að fara með ágreininginn fyrir félagsdóm.  Stjórn FÍF leitar nú leiða til að ná samkomulagi við FMS, fréttir munu verða settar inn á heimasíðuna um leið og málin skýrast.
Stjórnin.

Flokkar
Fréttir

Fréttir frá stjórn

Vefstjóri FÍF | 10. janúar 2006 | 22:31

19. des. sl. var haldinn félagsfundur FÍF þar sem umræðuefnið var fyrirhugaðar vaktkerfabreytingar hjá FMS.  Félagsfundurinn sendi í kjölfarið frá sér harðorða félagsfundarályktun þar sem fyrirhuguðum einhliða breytingum á vinnufyrirkomulagi félagsmanna var mótmælt.  Stjórn FÍF sendi enn fremur flugmálastjóra bréf þar sem skorað var á hann að hætta við fyrirhugaðar breytingar og jafnframt bent á að FÍF væri reiðubúið að láta á það reyna fyrir dómstólum hvort FMS hafi rétt á að breyta vinnufyrirkomulagi starfsmanna einhliða á þennan máta.

Stjórn FÍF var í kjölfarið boðuð á fund flugmálastjóra til að ræða stöðu mála, þann 29. des. sl..  FÍF gerði grein fyrir þeirri fyrirætlan að fara með fyrir félagsdóm þann ágreining hvort vaktafyrirkomulag skuli vera samkomulag aðila ellegar hvort, eins og FMS lítur á málið, það sé óskiptur réttur FMS að ákveða vinnufyrirkomulag starfsmanna.  Það væri ekki kostur að okkar mati að fara með öll ágreiningsefni FÍF og FMS fyrir dómstóla “í einum pakka” heldur yrði að taka hvert ágreiningsefni fyrir sig.  Fulltrúar FMS sögðu vilja stofnunar vera þann að framkvæma breytingar í sátt við starfsmenn, FÍF ítrekaði að frá okkar hendi væri fullur vilji til að semja eða gera samkomulag um vaktafyrirkomulag.  Sagan sýnir að samningar/samkomulög um vaktafyrirkomulag hafa ekki alltaf verið mjög formlegir og telur FÍF að ekki þurfi að verða breyting þar á, svo fremi að um tvíhliða samning/samkomulag sé að ræða.  Fundinum lauk með þeirri tillögu flugmálastjóra að FÍF og FMS myndu í sameiningu leggja ágreining sinn í hendur félagsdóms. Stjórn FÍF kvaðst mundu íhuga þá leið í samráði við lögfræðing félagsins.   

 

FMS og FÍF munu funda á næstu dögum, stjórn FÍF mun þá taka ákvörðun um framhaldið og munu fréttir um það birtast hér á heimasíðunni.

Stjórnin.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX