• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Ríkislögmaður áfrýjar

Vefstjóri FÍF | 20. maí 2006 | 12:21

    Ríkislögmaður hefur ákveðið að áfrýja frávísunarúrskurði Félagsdóms til Hæstaréttar. Ljóst er að málið mun dragast á langinn.

Flokkar
Fréttir

Ályktun ársfundar formanna samtaka norrænna flugumferðastjóra 6. maí 2006

Vefstjóri FÍF | 11. maí 2006 | 13:10

    

Formannafundur norrænna flugumferðarstjóra telur þróun í flugumferðarþjónustu á Norðurlöndum ekki vera að öllu leyti í  samræmi við tilskipanir um hið sameiginlega evrópska flugumferðarsvæði (Single European Sky). Það ætti að leggja áherslu á  að skapa ákjósalegar aðstæður fyrir norræna flugumferðarsvæðið í stað þess að hlutafélagavæða flugumferðarþjónustuna.  Tilgangur sameiginlega evrópska flugumferðarsvæðisins er ekki sá að koma á samkeppni, sem í okkar huga er eðli hlutafélagafyrirkomulags.  Flugumferðarþjónusta getur eingöngu verið tryggð með einkaleyfi viðkomandi ríkis í samræmi við grein 1 í Chicago-sáttmálanum frá 1944.

 

Rætt var ítarlega um stórlega versnandi starfsskilyrði íslenskra flugumferðarstjóra.  Það er óviðunandi að yfirstjórn breyti starfsskilyrðum einhliða án samninga eða samþykkis þeirra sem hlut eiga að máli. Við hvetjum Flugmálastjórn Íslands eindregið til að axla ábyrgð sína sem atvinnurekandi og tryggja íslenskum flugumferðarstjórum starfsaðstæður sem þeir geta unað við.

 

 

 

Sami Fabritius           Christopher Vozmediano  Loftur Jóhannsson   Pernille Ladefoged

Formaður                   Formaður                            Formaður                   Formaður

Finnska ATCA           Sænska ATCA                    Íslenska ATCA           Danska ATCA

president@sljy.org   ordforande@satca.com     loftur@iceatca.com   plg@datca.dk

sími.:                           sími:                                     sími:                            sími:

+358 503474845         +46 703755914                    +354 8610050             +45 40878479

Flokkar
Fréttir

Félagsdómur

Vefstjóri FÍF | 8. maí 2006 | 09:32

    Lögfræðingur FÍF hefur tjáð mér að aðalmálflutningur í máli FÍF gegn ríkinu vegna vaktamála verði ekki í dag (mánudag 8. maí). Hinsvegar verður þinghald vegna málsins þar sem tekin verður afstaða til ýmissa athugasemda lögfræðings FÍF við málatilbúnað lögmanns ríkisins. Þetta þinghald er auðvitað öllum opið og verður kl. 14:00 í dag.
Formaður

Flokkar
Fréttir

Málflutningur

Vefstjóri FÍF | 7. maí 2006 | 12:02

    Málflutningur í máli FÍF gegn fjármálaráðherra vegna einhliða breytinga Flugmálastjórnar á vaktkerfum í flugstjórnarmiðstöðinni fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 14:00 á mánudag 8. maí.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX