• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Bréf öryggisnefndar FÍA

Vefstjóri FÍF | 31. desember 2006 | 08:59

Samgönguráðherra,
hr. Sturla Böðvarsson.

Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna lýsir yfir áhyggjum sínum vegna
þeirrar stöðu sem fyrirsjáanleg er í flugumferðarstjórn í íslenska
flugstjórnarsvæðinu nú um áramót. Öryggisnefndin telur víst að flugöryggi muni
skerðast frá því sem verið hefur ef viðbúnaðaráætlun Flugstoða ohf., sem lögð er
fram vegna skorts á mannafla, verði virkjuð. Áætlunin byggir á verulegri takmörkun á
og þjónustu við flugumferð svo sem með takmörkunum á umferð, takmörkunum á
flugferlum, takmörkunum á flughæðum, takmörkunum á komu- og brottflugi, lágmarks
talviðskiptum við flugstjórnarmiðstöð, skertu eða engu ratsjáreftirliti og að
flugumferðarstjórn er lögð af frá flugturnunum á Reykjavíkurflugvelli og á Akureyri.

Öryggisnefndin varar sérstaklega við þeim hættum sem skapast geta á og við
Reykjavíkurflugvöll.

Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna skorar á samgöngu- og
flugmálayfirvöld að koma í veg fyrir að grípa þurfi til ofangreindrar
viðbúnaðaráætlunar við flugumferðarstjórn þannig að ekki sé tekin óþarfa áhætta á að
fórna þeim mikla og góða árangri sem náðst hefur í flugöryggismálum íslendinga á
undanförnum árum.


f.h. Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna,

Jakob Ólafsson,
formaður.

- – -

Flugmálastjóri,
hr. Þorgeir Pálsson.

Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna lýsir yfir áhyggjum sínum  vegna
þeirrar stöðu sem fyrirsjáanleg er í flugumferðarstjórn í íslenska
flugstjórnarsvæðinu nú um áramót. Öryggisnefndin telur víst að flugöryggi muni
skerðast frá því sem verið hefur ef viðbúnaðaráætlun Flugstoða ohf., sem lögð er
fram vegna skorts á mannafla, verði virkjuð. Áætlunin byggir á verulegri takmörkun á
og þjónustu við flugumferð svo sem með takmörkunum á umferð, takmörkunum á
flugferlum, takmörkunum á flughæðum, takmörkunum á komu- og brottflugi, lágmarks
talviðskiptum við flugstjórnarmiðstöð, skertu eða engu ratsjáreftirliti og að
flugumferðarstjórn er lögð af frá flugturnunum á Reykjavíkurflugvelli og á Akureyri.
Öryggisnefndin varar sérstaklega við þeim hættum sem skapast geta á og við
Reykjavíkurflugvöll.

Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna skorar á samgöngu- og
flugmálayfirvöld að koma í veg fyrir að grípa þurfi til ofangreindrar
viðbúnaðaráætlunar við flugumferðarstjórn þannig að ekki sé tekin óþarfa áhætta á að
fórna þeim mikla og góða árangri sem náðst hefur í flugöryggismálum íslendinga á
undanförnum árum.

f.h. Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna,

Jakob Ólafsson,
formaður.

- – -

Tilkynning til félagsmanna frá öryggisnefnd FÍA.

Vegna yfirtöku flugumferðarþjónustunnar og viðbúnaðaráætlunar Flugstoða ohf.
um flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu um áramót, sem er
tilkomin vegna skorts á mannafla, vill öryggisnefnd FÍA brýna félagsmenn FÍA
til að kynna sér NOTAM Flugmálastjórnar um þær takmarkanir sem taka gildi um
áramót og kynnningarefni Flugmálastjórnar sem fylgja hér sem viðhengi.
Öryggisnefndin hvetur félagsmenn til sérstakrar árvekni við störf sín vegna
þessarar viðbúnaðaráætlunar og bendir mönnum á að tilkynna án tafa! r hnökra í
áætluninni er geta varðað flugöryggi. Tilkynningar þessar skulu sendar til
varðstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni eða til Sigurleifs Kristjánssonar í
síma: 569-4123 / Fax: 562-4599 / farsíma: 897-0336 eða í tölvupóst
silli@caa.is , þá óskar öryggisnefndin eftir að fá afrit af tilkynningum
sendar á tölvupóstfang nefndarinnar oryggisnefnd@fia.is , mun öryggisnefndin
fylgjast með framvindu mála meðan þetta ástand varir.

f.h. Öryggisnefndar FÍA,

Jakob Ólafsson,
formaður.



Flokkar
Fréttir

Bréf öryggisnefndar FÍF

Vefstjóri FÍF | 31. desember 2006 | 08:51

    

Reykjavík 29. Desember 2006.

 

 

 

 

Hr.  Flugmálastjóri

       Þorgeir Pálsson

 

       Reykjavíkurflugvelli.

 

 

 

 

 

 

Öryggisnefnd FÍF  hefur áhyggjur af stöðu flugöryggismála frá og með miðnætti þess 31. desember næstkomandi við aðilaskipti á flugstjórnarþjónustu á Íslandi.  Af því tilefni óskar nefndin eftir upplýsingum um eftirtalin atriði:

 


  1. Hefur verið gerð öryggisúttekt (Safety Assessment report) á viðbragðsáætlun Flugmálastjórnar bæði innanlands og í úthafsflugstjórnarsvæðinu?  Sé svo óskar nefndin eftir því að fá eintak til aflestrar.

 


  1. Eru fyrirhugaðar breytingar á loftrými og/eða flokkun þess?

 


  1. Hvernig verður kennslu og starfsþjálfun vegna þessa háttað?

 


  1. Með hvaða hætti verður tryggt að aðilar sem hugsanlega sinna flugumferðarstjórn og/eða flugupplýsingaþjónustu uppfylli fyllilega kröfur þar um samkvæmt núgildandi reglum Flugmálastjórnar Íslands?

 

 

 

Virðingarfyllst,

 

 

Öryggisnefnd FÍF

 

Óskar Óskarsson                                                       Öne/00206

Einar Hilmarsson                                                         Afrit sent:

Kjartan Halldórsson                                                  FÍF,

Hilmar Magnússon                                                    FÍA.

 

Flokkar
Fréttir

Um biðlaunarétt

Vefstjóri FÍF | 29. desember 2006 | 18:24

Úr ræðu ráðherra:    
„Í 7. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að um réttarstöðu starfsmanna sem nú starfa hjá Flugmálastjórn á sviði flugleiðsöguþjónustu og flugvallareksturs og sem gert er ráð fyrir að flytjist yfir til hlutafélagsins fari samkvæmt almennum ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og laga um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Ekki er gert ráð fyrir sérákvæðum í tilefni þessara breytinga.
Í þessu felst m.a. að engum starfsmanni verður sagt upp störfum vegna þessara breytinga einna saman. Þeir starfsmenn, sem falla undir 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fyrirgera ekki rétti sínum til biðlauna þó þeir hafni boði um að starfa áfram hjá félaginu, en um biðlaunaréttinn fer að öðru leyti eftir ákvæðum starfsmannalaganna m.a. um að frá biðlaunum dragast hvers konar launatekjur á biðlaunatímanum. Þá er gilda kjarasamningar starfsmanna við Flugmálastjórn áfram hjá hinu nýja félagi í samræmi við 9. gr.“

Úr bréfi flugmálastjóra:
„Það tilkynnist því hér með að starf það sem þú hefur gegnt hjá Flugmálastjórn Íslands verður lagt niður þann 31. desember 2006. Samkvæmt gögnum stofnunarinnar átt þú rétt til biðlauna í tólf mánuði, sbr. 1. mgr. 34. gr. laganna sbr. 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, frá þeim tíma er starf er lagt niður þann 31. desember 2006.“

Flokkar
Fréttir

Styrkur í stað biðlauna

Vefstjóri FÍF | 29. desember 2006 | 10:52

    

Félagsfundur í FÍF 28.12.2006

 

Félagsfundur í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra vísar til yfirtöku Flugstoða ohf. á hluta starfsemi Flugmálastjórnar Íslands sbr. lög nr. 102/2006 um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands.

Hafi hagsmunir félagsmanna vegna fyrrgreindrar yfirtöku/aðilaskipta, að mati félagsins ekki verið tryggðir fyrir árslok 2006, samþykkir fundurinn í samræmi við 11. gr. laga FÍF, sbr. einnig 16., 33. og 34. gr. laganna, að félagið styrki þá félagsmenn FÍF sem ekki hafa ráðið sig til Flugstoða og ekki eiga rétt á biðlaunum og verða launalausir vegna þessa í febrúar og mars 2007, og verði styrkirnir greiddir út 1. mars og 1. apríl 2007. Styrkir þessir skulu nema fullum launum sem tapast, án aukavinnu, í febrúar og mars 2007. Styrkir þessir koma til viðbótar þeim styrk sem samþykkt var að greiða félagsmönnum á félagsfundi 29. nóvember sl.

Fundurinn felur stjórn félagsins að ganga frá fjármögnun vegna þessa og heimilar að eignir félagsins séu veðsettar til tryggingar láni eða seldar ef með þarf

Flokkar
Fréttir

Makar velkomnir á félagsfundinn

Vefstjóri FÍF | 27. desember 2006 | 23:46

Stjórn FÍF hvetur félagsmenn og maka til að mæta á félagsfundinn 28. des.
Baráttukveðjur.

Flokkar
Fréttir

Opið hús

Vefstjóri FÍF | 27. desember 2006 | 14:24

       Opið hús í Borgartúni 28 í dag. Kaffi á könnunni.
Stjórnin 

Flokkar
Fréttir

Biðlaun

Vefstjóri FÍF | 27. desember 2006 | 12:53

Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri
thorgeir@caa.is

Ingunn Ólafsdóttir, starfsmannastjóri
ingunno@caa.is


Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu
gunnar.bjornsson@fjr.stjr.is


Flugmálastjórn


Reykjavíkurflugvelli


Hr. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri


Reykjavík x. desember 2006


Með vísan til bréfs þíns frá 27. ágúst s.l. þar sem tilkynnt var um niðurlagningu stöðu þeirrar sem ég hef gegnt í þágu Flugmálastjórnar upplýsist hér með að ég undirritaður óska eftir að nýta biðlaunarétt minn frá 1. janúar n.k.


Virðingarfyllst,


NN


 


Samrit sent Starfsmannaskrifstofu


Fjármálaráðuneytis

Flokkar
Fréttir

Félagsfundur 28. des.

Vefstjóri FÍF | 27. desember 2006 | 11:05

Félagsfundur FÍF verður haldinn fimmtudaginn 28. desember kl. 20:00 í Borgartúni 28. Dagskrá: 1. Styrkur til þeirra félagsmanna sem kynnu að verða launalausir í febrúar og mars. 2. Önnur mál. 

Flokkar
Fréttir

Viðtal við forseta IFATCA í kvöldfréttum sjónvarpsins

Vefstjóri FÍF | 26. desember 2006 | 17:01

    Í kvöldfréttum sjónvarpsins 25. desember var viðtal við Marc Baumgartner, forseta IFATCA, um deilu Flugstoða ohf. og Félags íslenskra flugumferðarstjóra.  Fréttina má sjá með því að smella hér.

Flokkar
Fréttir

Gleðileg jól

Vefstjóri FÍF | 24. desember 2006 | 13:54

    Félag íslenskra flugumferðarstjóra óskar félagsmönnum sínum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
Síða 1 af 212»
OPEX