• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Flugumferðarstjórar og tæknimenn sýknaðir

Vefstjóri FÍF | 21. september 2007 | 08:53

    

Í
fréttatilkynningu
sem Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra (IFATCA) hafa sent frá sér er vakin athygli á nýlegum héraðsdómi sem fallið hefur í Bülach í Sviss. Þar voru fjórir millistjórnendur hjá fyrirtækinu Skyguide sakfelldir í tengslum við árekstur tveggja flugvéla sem varð yfir Uberlingen árið 2002. Sami dómstóll sýknaði fjóra aðra starfsmenn þar á meðal flugumferðarstjóra og tæknimenn.

 

Í tilkynningunni er vakin athygli á þeirri staðreynd að rétturinn dragi ekki eingöngu til ábyrgðar starfsmenn á vakt heldur sé gert ráð fyrir að ábyrgð í slíkum málum liggi á öllum stigum starfseminnar. Þetta telja samtökin jákvæða þróun þegar um sé að ræða jafn flókin félagsleg og tæknileg samskipti og við stjórn flugumferðar.

 

Í tilkynningunni er hins vegar lýst áhyggjum yfir því hvernig haldið er áfram að lýsa mannlegum mistökum sem glæpsamlegum atvikum.  Hvort sem slík mál tengist flugumferðarstjórum, tæknimönnum eða stjórnendum sé málatilbúnaður af því tagi til þess fallinn að torvelda nauðsynlegt flæði öryggisupplýsinga í starfsemi þar sem öryggismál eiga sér mikla og langa hefð.

 

Í tilkynningu IFATCA er áréttuð sú skoðun að í starfsemi þar sem öryggi skipti öllu máli beri að gera þá kröfu að hver og einn starfsmaður sé ábyrgur gerða sinna. Engu að síður hafi reynslan sýnt að lögsóknir stuðli ekki að auknu öryggi. Samtökin hvetja til þess að menn sýni sanngirni í umræðum um þessi mál enda sé það mun betur til þess fallið að stuðla að auknu flugöryggi.

Flokkar
Fréttir

Mikil yfirvinna stefnir flugöryggi í hættu

Vefstjóri FÍF | 19. september 2007 | 21:16

 

Samtök flugumferðarstjóra á Norðurlöndum héldu árlegan fund sinn í Reykjavík dagana 14. – 16. september 2007.

 

Á fundinum komu fram áhyggjur flugumferðarstjóra vegna þess að  rekstraraðilar flugumferðarþjónustu á Norðurlöndum mæta skorti á flugumferðarstjórum í auknum mæli með yfirvinnu. Mikil yfirvinna með tilheyrandi álagi og þreytu stefna í hættu flugöryggi og heilsu flugumferðarstjóra. Fundarmenn benda á að í stefnu Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra (IFATCA) er kveðið á um að alla jafna skuli yfirvinnu haldið í lágmarki. Þegar gripið sé til yfirvinnu beri ávallt að hafa í huga neikvæð áhrif sem óhófleg vinna geti haft á frammistöðu starfsmanna. Þá þurfi rétt yfirvöld að setja reglur um vinnutíma flugumferðarstjóra.

 

Með hliðsjón af framansögðu hvetja Samtök flugumferðarstjóra á Norðurlöndum rekstraraðila í flugumferðarþjónustu til að skipuleggja starfsemi sína og mannauðsstjórnun í samræmi við aukna flugumferð og með það að markmiði að útrýma þörf fyrir yfirvinnu í stjórnun flugumferðar.

Flokkar
Fréttir

Norðurlandaþing flugumferðarstjóra

Vefstjóri FÍF | 12. september 2007 | 13:29

 Norðurlandaþing flugumferðarstjóra

Þing félagasamtaka flugumferðarstjóra á Norðurlöndum verður haldið á Kaffi Reykjavík 13. – 15. september nk. Þingið verður sett í Flugröst á fimmtudagskvöldið.


Flugumferðarstjórar frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnladi  sækja þingið en einnig verður viðstaddur ritstjóri The Controller www.the-controller.net sem er alþjóðlegt tímarit Flugumferðarstjóra.

FÍF minnir á að  félagsmenn, ásamt mökum, eru boðnir velkomnir til að hitta félaga frá Norðurlöndunum í Flugröst  eftir kl. 21:30.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX