Hundrað þúsundasta flugvélin á árinu fer um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið í dag og hafa frá upphafi aldrei verið fleiri á einu ári.
Ætla má að um svæðið fari alls um 105.000 vélar á öllu árinu 2007, sem er um 43% aukning umferðar á aðeins tíu árum.
Á sama tíma og umferðin um íslenska flugstjórnarsvæðið eykst gríðarlega hefur fjöldi flugumferðarstjóra við störf hins vegar haldist nánast óbreyttur, með tilheyrandi álagi á þá og aðra góða starfsmenn í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
Flugumferðarstjórar sjá ástæðu til þess að nefna framangreint á þessum merkilegu tímamótum og vekja jafnframt athygli á því að áfallalaus aukning flugumferðar er ekki sjálfgefin. Í því sambandi má benda á skýrslu nefndar á vegum samgönguráðherra frá árinu 1997 um störf flugumferðarstjóra. Þar kom fram að á tímabilinu 1987-1997 hefði flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið aukist um 35%. Á sama tíma hefði fjöldi flugumferðarstjóra hins vegar verið nánast óbreyttur. Þessari umferðaraukningu var mætt með auknu vinnuframlagi flugumferðarstjóra, betri tæknibúnaði og hagræðingu í vinnuskipulagi. Einnig kom fram í skýrslunni að miklar kröfur væru gerðar til flugumferðarstjóra um árvekni og fumlausa starfshætti á álagstímum.
Þessar kröfur hafa leitt til þess að flugumferðarstjórar þurfa að hætta störfum fyrr en aðrir launamenn á vinnumarkaðinum. Þá felst í starfinu að vinna verður á vöktum og vinnuálag er oft á tíðum meira en almennt gerist.
Fáir verða varir við árangur erfiðis flugumferðarstjóra í starfi sínu „á bak við tjöldin“. Þannig á það líka að vera og bendir þá ekki til annars en að þeir skili verkum sínum af prýði. Það sem bent er hér á er hins vegar alþjóðlegt vandamál, því miður. Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra hafa þannig verulegar áhyggjur af því að flugumferðarstjórum við störf víða um heim fjölgi ekki í samræmi við aukin umsvif í fluginu. Þetta eykur álag á starfsmenn við flugumferðarstjórn með tilheyrandi hættu á þreytu og streitu og getur, eðli málsins samkvæmt, haft áhrif á flugöryggi.
Vortímabilið stendur frá föstudegi 4.janúar til föstudags 16.maí 2008. Sótt er um eina helgi sem aðalval og allt að 3 helgar til vara.
Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl.1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl.1500.
Verð fyrir helgi í Gullhvammi er kr.6500kr. Virka daga er verðið 1000 kr. p.dag.
Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktastaðan er jöfn. Punktastöðuna er hægt að skoða á heimasíðu FÍF.
Byrjað veður að taka við umsóknum mánudaginn 6 desember.
Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar SM, SJ eða SO.