• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

BSRB mótmælir aðför að velferðarþjónustunni

Vefstjóri FÍF | 23. nóvember 2008 | 16:28

Stjórn BSRB mótmælir harðlega ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flatan 10% niðurskurð í velferðarkerfi landsmanna. Þetta hefði í för með sér fjöldauppsagnir og verulega skerðingu á þjónustu og gengur þvert á það sem nú er brýnast að gera: stórefla velferðarþjónustuna og styrkja öryggisnet fjölskyldnanna. Á tímum samdráttar er fráleitt að grípa til ráðstafana sem auka á atvinnuleysi í landinu. BSRB hefur á undanförnum misserum margoft bent á hve þröngur stakkur mörgum samfélagsstofnunum er sniðinn og að það hamli því að þær geti sinnt þjónustuhlutverki sínu. Niðurskurður á framlögum til þessara stofnana nú er glapræði og hvetur BSRB alla landsmenn til að mótmæla þessum einhliða ráðstöfunum. 

Sjá heimasíðu BSRB

Flokkar
Fréttir

BSRB vill vaxtalækkun og endurskoðun á vísitölugrunni

Vefstjóri FÍF | 23. nóvember 2008 | 16:27

BSRB krefst þess að raunvextir verði lækkaðir þegar í stað. Himinháir vextir eru að keyra skuldsett heimili og fyrirtæki á kaf og er það fullkomið ábyrgðarleysi af hálfu stjórnvalda að lækka ekki vexti og draga þar með úr óbærilegri skuldabyrði. Þá þarf einnig að huga að róttækum ráðstöfunum til að aðstoða fólk með vísitölubundin lán ef verðbólgan rýkur upp tímabundið eins og hætta er á að gerist á komandi vikum. Þá er nauðsynlegt að endurskoða gildandi vísitöluútreikninga. Þeir endurspegla liðna tíð en ekki neyslumynstrið eins og það er nú.

Sjá heimasíðu BSRB

Flokkar
Fréttir

Verjum velferðina – útifudur á Ingólfstorgi á mánudag, 24. nóvember, kl. 16:30

Vefstjóri FÍF | 20. nóvember 2008 | 15:21

ÖBÍ, BSRB, Landssamtökin Þroskahjálp og Félag eldri borgara í Reykjavík standa fyrir
útifundi mánudaginn 24. nóvember á Ingólfstorgi, sem hefst  kl. 16:30. Yfirskrift
fundarins er Verjum velferðina.

Ræðumenn eru Gerður A. Árnadóttir formaður Þroskahjálpar, Árni Stefán Jónsson
varaformaður BSRB og formaður SFR, Halldór Sævar Guðbergsson formaður ÖBÍ, Margrét
Margeirsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Fundarstjóri er Björg Eva
Erlendsdóttir. Í lok fundarins verður borin upp ályktun.

Flokkar
Fréttir

Verðtrygging til góðs eða ills?

Vefstjóri FÍF | 19. nóvember 2008 | 13:56


Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, fimmtudaginn 20. nóvember,  kl. 16:30 – 18:00 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um kosti og galla verðtryggingar og hvort æskilegt sé að afnema hana tímabundið eða til langframa. Framsögu hafa Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur og Pétur H. Blöndal alþingismaður. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB .


Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal

Flokkar
Fréttir

Staða miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði

Vefstjóri FÍF | 18. nóvember 2008 | 08:51

 

Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra, sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.  

 

Verkefnisstjórnin hefur lagt áherslur á rannsóknir í starfi sínu og kynnir tvær mastersritgerðir sem skrifaðar hafa verið á þessu ári og tengjast aldurshópnum á vinnumarkaði. Lesa meira »
Flokkar
Fréttir

Efnahagsþrengingar nágrannaþjóða

Vefstjóri FÍF | 12. nóvember 2008 | 10:00

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB í dag, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 – 17:30 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri.  Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.

sjá nánar »

Flokkar
Fréttir

Flugumferðarstjóra vantar til starfa víða í Evrópu – FÍF varar við að slegið sé slöku við menntun og þjálfun nýliða

Vefstjóri FÍF | 5. nóvember 2008 | 10:38


Á Evrópufundi Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra (IFATCA) í Lissabon, 25.-26. október 2008 kom fram að  flugumferð hafi aukist stöðugt og að mikill skortur sé á mannafla til að stýra nýjum, fullkomnum flugstjórnarkerfum. Mannekla í flugumferðarstjórn um allan heim stafar meðal annars af því að stjórnvöld í mörgum ríkjum heimsins hægðu meðvitað á nýliðun í starfsgreininni eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001. Flugumferðarstjórar eru í staðinn látnir vinna mikla yfirvinnu, sem eykur bæði álag og þreytu. Í sumum Evrópulöndum hefur flugumferð meira en tvöfaldast á síðustu fimm árum en flugumferðarstjórum hefur ekkert fjölgað á sama tíma.




Gera má ráð fyrir að flugumferð dragist saman árið 2009 í ljósi efnahagslegrar kreppu sem ríður yfir heimsbyggðina. Slíkt getur haft neikvæð áhrif á flugfélög og aðila sem veita þjónustu á sviði flugumferðarstjórnar. Alþjóðasamtök flugumferðastjóra og flugumferðarstjórar í Evrópu, sem gera sér grein fyrir því að nú þrengir að í flugrekstri, sjá ástæðu til að vara ráðamenn við að falla enn og aftur í þá gryfju að bregðast við samdrætti með því að hefta nýliðun í  flugumferðarstjórn.



Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, hefur áhyggjur af þróun mála á hérlendis: „Flugstoðir hafa ákveðið að hætta (a.m.k. tímabundið) grunnþjálfun flugumferðarstjóra en treysta þess í stað á óskylda aðila, Flugskóla Íslands og Keili, sem aldrei hafa komið nálægt slíkum málum áður og hafa hvorki tæki né mannafla til þess. Við þurfum vel menntaða nýliða svo hægt sé að halda uppi vinnuskilyrðum sem gera okkur kleift að vinna starf okkar af fyllsta öryggi.“  

Á fundi IFATCA var einnig lögð áhersla á málefni varðandi:


·        Streitu og áfallastjórnun vegna alvarlegra flugatvika (critical incident stress management).


·        Réttlætissjónarmið (just culture) við rannsókn á flugumferðaratvikum.


·        Sameiginlegt evrópskt loftrými.

Flokkar
Fréttir

Skuldirnar og heimilin – Hvað er að gerast?

Vefstjóri FÍF | 4. nóvember 2008 | 16:28

Framsögu hafa:

Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum verður opnað fyrir spurningar úr sal.

Nánar á heimasíðu BSRB

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX