• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Samkomulag um lífeyrissjóðsmál

Vefstjóri FÍF | 31. desember 2008 | 15:47
Flokkar
Fréttir

Jólakveðja frá FÍF

Vefstjóri FÍF | 23. desember 2008 | 21:35

Flokkar
Fréttir

Félagsfundur

Vefstjóri FÍF | 22. desember 2008 | 09:23


Félagsfundur, mánudagskvöld 22. des, um málefni félagsmanna í Keflavík.
Á fundinn mun mæta:
Þórey Þórðardóttir
, forstöðumaður réttindamála LSR. Hún mun fjalla um hvaða áhrif aðilaskiptin hafa á aðild að LSR.
Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur. Hann mun fjalla um samning FÍF við Flugstoðir, frá 3. jan. 2007. 


Stjórnin

Flokkar
Fréttir

FÍF lítur svo á að flugumferðarstjórar í Keflavík verði starfsmenn Flugstoða frá og með 1. janúar 2009

Vefstjóri FÍF | 20. desember 2008 | 13:14

Stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra undrast að Kristján L. Möller samgönguráðherra skuli tilkynna fyrirvaralaust, án nokkurs samráðs við starfsfólk sem hlut á að máli, að ekkert verði af fyrirhuguðum flutningi flugleiðsöguþjónustu á Keflavíkurflugvelli til Flugstoða ofh. núna um áramótin.

 

Flugumferðarstjórar á Keflavíkurflugvelli, sem eru starfsmenn Flugmálastjórnar Keflavíkur-flugvallar, fengu í september 2008 bréf um að störf þeirra yrðu lögð niður og Flugstoðir ohf. tækju við ráðningarsamningi þeirra í ársbyrjun 2009.

 

Stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra lítur svo á að flugumferðarstjórar á Keflavíkur-flugvelli hafi með umræddri tilkynningu í raun verið ráðnir til Flugstoða og að þeir verði starfsmenn Flugstoða frá og með 1. janúar 2009. Af því leiðir að engir flugumferðarstjórar verða starfandi á vegum Keflavíkurflugvallar ohf., hins opinbera hlutafélags sem tekur á nýársdag 2009 formlega við þeim rekstri sem áður heyrði undir Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar og Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf.

Flokkar
Fréttir

Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan

Vefstjóri FÍF | 9. desember 2008 | 11:19


Opinn fundur verður á vegum BSRB fimmtudaginn 11. desember kl. 16:30 – 18:00 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er „Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan.” Framsögur hafa Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar.

Á fundinum verður fjallað um sérkenni íslenska vinnumarkaðarins og úrræði fyrir þá sem standa frammi fyrir atvinnumissi.
Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir fyrirspurnir úr sal.

Sjá heimasíðu BSRB

Flokkar
Fréttir

Varað við einhliða launalækkunum

Vefstjóri FÍF | 9. desember 2008 | 11:15

BSRB varar við einhliða launalækkunum og vill endurskoðun vísitölugrunns lána


8.12.2008



BSRB VARAR VIÐ EINHLIÐA LAUNALÆKKUNUM


Á ýmsum vinnustöðum, þar með talið stofnunum ríkis og sveitarfélaga, hefur verið um það rætt að lækka laun og skerða kjör til að mæta þverrandi tekjum. BSRB er fylgjandi kjarajöfnun ekki síst þegar sverfur að fjárhag fyrirtækja og stofnana. En að sama skapi er alvarlega varað við einhliða ákvörðunum stjórnenda fyrirtækja og stofnana hvað þetta snertir. Engar almennar ákvarðanir hvað varðar breytingar á kjörum starfsfólks, þar með talið starfshlutfall, á að taka án vitundar og samráðs við starfsfólk og stéttarfélög þess. BSRB leggur ríka áherslu á að ólöglegt er að skerða kjarasamningsbundin kjör starfsmanna.
Ráðstafanir stjórnvalda beinast enn sem komið er meira og minna að því að koma byrðunum yfir á almennt launafólk og fráleitt að réttlæta launalækkun og frekari skerðingar á þess kostnað. Þegar hefur almennt launafólk orðið fyrir verulegri kjaraskerðingu af völdum fjármálahrunsins.
Enn bólar ekki á neinum ráðstöfunum til að bæta kjör þeirra sem minnst hafa og verst þola áföllin. Þvert á móti hefur verið boðaður niðurskurður í velferðarkerfinu og er hans þegar farið að gæta. Á tímum samdráttar og erfiðleika á að efla velferðarþjónustuna en ekki veikja hana enda er hún í senn öryggisnet og til þess fallin að jafna aðstöðu fólks. 

BSRB VILL ENDURSKOÐA VÍSITÖLUGRUNN LÁNA


Háir vextir og óðaverðbólga ógna nú fjárhagslegu öryggi margra fjölskyldna. Vaxtabyrðarnar þyngjast með snarhækkandi  verðbólgu. Þegar kaupmáttur fer þverrandi  í ofanálag er þess skammt að bíða að fjöldi fólks geti ekki staðið í skilum og áhvílandi lán á íbúðarhúsnæð verði  langt umfram mögulegt söluverð. Mikil verðbólga á næstu mánuðum gæti skipt sköpum fyrir margar fjölskyldur.  Við þessar aðstæður er brýnt að gripið verði nú þegar til róttækra ráðstafana. Þar skiptir höfuðmáli að létta skuldaklyfjarnar. Í því sambandi þarf að taka verðtryggingu íbúðalána til endurskoðunar enda byggir hún á þriggja ára gömlu neyslumynstri sem engan veginn endurspeglar gjörbreyttar aðstæður í dag.

Sjá heimasíðu BSRB

Flokkar
Fréttir

Framtíðin – með eða án krónu

Vefstjóri FÍF | 3. desember 2008 | 13:53

Framsögu hafa Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.

Á fundinum verður fjallað um framtíðarþróun efnahagsmála á Íslandi. Hvert stefnir og hversu löng verður kreppan?

Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.

Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir fyrirspurnir úr sal.

Sjá vef BSRB

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX