• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Áskorun til stjórnar samþykkt einróma

ME | 31. mars 2010 | 22:31

Almenn óánægja kom fram meðal félagsmanna á fundinum um ganginn í kjarasamningaviðræðum og þá staðreynd að félaginu hafi ekki einusinni verið boðin sama hækkun og aðrir hafi verið að fá í samningum við Samtök atvinnulífsins. 

Félagsfundur samþykkti einnig einróma áskorun til stjórnar og samninganefndar um að hefja undirbúining atkvæðagreiðslu um yfirvinnubann og jafnvel frekari verkfallsaðgerðir.

Flokkar
Fréttir

Félagsfundur mánudaginn 29. mars kl.20:00

ME | 26. mars 2010 | 09:59

Félag Íslenskra Flugumferðarstjóra boðar félagsfund mánudaginn 29. mars nk. klukkan 20:00 í BSRB húsinu Grettisgötu 89.  Farið verður yfir stöðuna í kjarasamningaviðræðum.

Félagið óskar eftir félagsmönnum sem eru vel að sér í lögum og reglugerðum eða hafa áhuga á að starfa í laganefnd félagsins.  Laganefnd er ætlað að fylgjast með lagasetningum sem tengjast vinnu félagsmanna með einum eða öðrum hætti og veita löggjafanum f.h. stjórnar félagsins umsagnir um þau lög og reglugerðir sem fjalla um flugleiðsöguna og starfsemi henni tengdri.

 Dagskrá:

  1. Staðan í kjarasamningaviðræðum
  2. Stofnun laganefndar FÍF
  3. Áframhaldandi samstarf við ROM vegna sumarhússins í Munaðarnesi
  4. Önnur mál

Stjórnin

Flokkar
Fréttir

Samningafundi lokið

ME | 25. mars 2010 | 14:21

Samningafundi lauk nú fyrir stundu án niðurstöðu en deilan er enn á borði Ríkissáttasemjara.  Næsti fundur hefur ekki verið boðaður en áætlað er að funda að nýju eftir páska.

Flokkar
Fréttir

Samningafundur

ME | 25. mars 2010 | 11:08

Samningafundur hófst klukkan 11:00.

Flokkar
Fréttir

Fréttatilkynning FÍF

ME | 18. mars 2010 | 14:59

Samtök Evrópskra flugumferðastjóra lýsa áhyggjum af áformum ríkisstjórnarinnar

Verkalýðssamtök flugumferðastjóra í Evrópu, ATCEUC , hafa skrifað Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem lýst er sterkum áhyggjum af áætlunum ríkisstjórnarinnar um að stöðva verkföll flugumferðarstjóra með lagasetningu. Samtökin fullyrða að slíkt myndi brjóta á grundvallarréttum eins og verkfallsrétti sem verndaður er í 11. grein  Evrópusáttmála um verndun mannréttinda og 74. grein stjórnarskrár Íslands.  Jafnframt er vísað í nýfallinn dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefur einróma viðkennt réttinn til að fara í verkfall og að hann sé varinn í alþjóðlegum lögum.

Samtökin benda jafnframt á að áform ríkisstjórnarinnar um að takmarka verkfallsrétt sé ekki það sem búast megi við af framtíðar meðlimi Evrópusambandsins. Samtökin hvetja jafnframt forsætisráðherra til að kynna sér 12. grein Mannréttindasáttmála Evrópu sem veitir öllum félagafrelsi og ekki síst til að verja eigin félagsleg, stjórnmálaleg og efnahagsleg réttindi.

Verkalýðssamtök flugumferðastjóra í Evrópu, ATCEUC, er fulltrúi 12500 flugumferðastjóra í 25 Evrópulöndum.  Bréfið er undirritað af forseta ATCEUC og er afrit af því er sent Evrópuráðinu og þeim ríkjum sem aðild eiga að ATCEUC. Í bréfinu til Jóhönnu Sigurðardóttur er sérstaklega vísað til fyrri þátttöku Jóhönnu í verkalýðsbaráttu og lýst miklum vonbrigðum með að ríkisstjórn hennar hafi nú hótað að neita flugumferðarstjórum um þau grundvallarréttindi að fara í verkfall.

Hér  er afrit af bréfi ATCEUC
til forsætisráðherra Íslands.

Flokkar
Fréttir

Yfirlýsing FÍF II

ME | 16. mars 2010 | 19:42

Það tók samninganefnd Samtaka atvinnulífsins/ríkisins heilar tíu mínútur að meta nýtt tilboð sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra lagði fram á fundi ríkissáttasemjara eftir hádegið í dag og svara síðan með því að segja þvert nei.

Ekki urðu önnur viðbrögð við útspili flugumferðarstjóra. Ekkert gagntilboð og yfirleitt engin hreyfing sem benti til samningsvilja. Þetta gerðist þrátt fyrir að flugumferðarstjórar hefðu í tvígang aflýst boðuðum verkföllum, í fyrra skiptið í ljósi fyrirheits um að menn með skýrt samningsumboð ríkisins kæmu að samningaborði og reynt yrði að ljúka málinu þar.

Eftir á að hyggja bendir flest til þess að ríkisstjórnin hafi frá upphafi verið ákveðin í að „leysa“ kjaradeiluna með lögum en ekki samningum.

Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni og reyndar er vandséð hvaða tilgangi frekari fundahöld þjóna ef viðsemjandinn hefur ekki annað fram að færa en að sveifla sverði yfir höfðum flugumferðarstjóra og hóta valdbeitingu með lögum. Það sverð kann að reynast tvíeggjað.

Flokkar
Fréttir

Samningafundi slitið

ME | 16. mars 2010 | 14:14

FÍF lagði fram nýtt tilboð sem SA fyrir hönd vinnuveitenda hafnaði.  Ekki hefur verið boðað til næsta fundar en deilan er ennþá hjá Ríkissáttasemjara sem mun boða til fundar þegar tilefni þykir til.

Flokkar
Fréttir

Yfirlýsing frá FÍF

ME | 16. mars 2010 | 13:41

Á fundi hjá ríkissáttasemjara í dag lagði Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) fyrir viðsemjendur sína tillögu að lausn yfirstandandi kjaradeilu.  Jafnframt aflýsti félagið boðuðum verkföllum flugumferðarstjóra á morgun, miðvikudaginn 17. mars, og á föstudaginn kemur, 19. mars.

FÍF vill þannig gefa ríkissáttasemjara og samninganefndum beggja aðila ráðrúm til að fjalla um hugmyndir FÍF til lausnar deilunni, án þess að yfir vofi verkfall. Félagið mun að sinni ekki tjá sig opinberlega um tillögur sínar.

FÍF staðfestir með þessari ákvörðun eindreginn vilja sinn til samninga og hvetja jafnframt ríkisstjórnina og Samtök atvinnulífsins (samninganefnd ríkisins) til að tileinka sér þau viðhorf Alþjóðaflutningaverkamannasambandsins, sem fram komu í bréfi til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í morgun, að ríkisstjórnin eigi nú að leggja sig fram um að semja við flugumferðarstjóra og hætta að hóta íhlutun í kjaradeiluna með lagasetningu.

Flokkar
Fréttir

ITF gagnrýnir hótanir um lagasetningu

ME | 16. mars 2010 | 12:38

Hér
er afrit af bréfi ITF til ríkisstjórnarinnar þar sem hugmyndir um lagasetningu á verkföll flugumferðarstjóra eru harðlega gagnrýndar.

Samningafundur stendur enn.

Flokkar
Fréttir

Samningafundur hafinn.

OE | 15. mars 2010 | 15:45

Samningafundur hófst kl 14:30 hjá sáttasemjara.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
Síða 1 af 212»
OPEX