• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Kjarasamningur samþykktur

ME | 30. apríl 2010 | 13:08

Kjarasamningur sem samninganefnd FÍF undirritaði 23. apríl sl við  SA, fh Flugstoða ohf og Keflavíkurflugvallar ohf, og samninganefnd ríkisins, fh Flugmálastjórnar Íslands, hefur verið samþykktur.

Já sögðu 57%.

Nei sögðu 43%

Kosningaþáttaka var 75,3%

Flokkar
Fréttir

Atkvæðagreiðsla hafin

ME | 27. apríl 2010 | 14:24

Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning FÍF við SA, fh Flugstoða ohf og Keflavíkurflugvallar ohf, er hafin og stendur fram til kl. 12:00 föstudaginn 30. apríl.

Flokkar
Fréttir

Nýr kjarasamningur undirritaður

ME | 23. apríl 2010 | 16:43

Samninganefnd FÍF undirritaði nú rétt í þessu kjarasamning við SA, fh Flugstoða ohf og Keflavíkurflugvallar ohf, og samninganefnd ríkisins, fh Flugmálastjórnar Íslands.

Kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 26. apríl nk klukkan 20:00 í sal BSRB að Grettisgötu 89.

Flokkar
Fréttir

Opið bréf til íslensku þjóðarinnar

ME | 12. apríl 2010 | 22:00

Sameiginleg yfirlýsing Flugvirkjafélags Íslands og FÍF sem birtist í heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu má lesa

hér
. 

Loftur Jóhannsson formaður samninganefndar félagsins skrifaði sama dag fróðlega grein um verkfallsréttinn sem birtist í Fréttablaðinu undir heitinu ‘Vægi Stjórnarskrárinnar’.

Flokkar
Fréttir

Atkvæðagreiðslu lokið

ME | 12. apríl 2010 | 21:55

Atkvæðagreiðslu um boðun yfirvinnubanns sem verkfallsaðgerð lauk klukkan 20 í kvöld.  Niðustaða verður kynnt í byrjun næstu viku en næsti samningafundur hefur verið boðaður mánudaginn 19. apríl nk.

Flokkar
Fréttir

Kjörfundur

ME | 10. apríl 2010 | 11:26

Síðasti dagur til að greiða atkvæði um yfirvinnubann er á mánudaginn frá klukkan 16 til 20.  Lokað verður um helgina.

Flokkar
Fréttir

IFATCA fordæmir ítalskan dómstól

GK | 8. apríl 2010 | 12:59

Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra, IFATCA, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem samtökin fordæma dóm yfir tveimur flugumferðarstjórum sem voru á vakt á Cagliari flugvelli á Ítalíu þann 24. febrúar 2004. Þann dag varð flugslys þar sem Cessna Citation flaug í jörðu. Flugumferðarstjórarnir höfðu áður verið dæmdir en áfrýjuðu dómnum. Hann var svo staðfestur þann 18. mars sl.

Í umræddu slysi óskaði flugmaður eftir sjónaðflugi að flugvellinum. Flugumferðarstjóri bað sérstaklega að staðfesta að flugmaður myndi sjálfur sjá um aðskilnað við hindranir og játaði flugmaður því. Skv. gildandi reglum var engin ástæða fyrir flugumferðarstjórann að hindra sjónaðflug, hann hafi jafnvel gengið lengra en reglur sögðu til um með því að biðja flugmann sérstaklega að staðfesta að hann gæti séð um aðskilnað frá hindrunum.

Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að þetta sé enn eitt dæmið um skilningsleysi yfirvalda á því hvernig flugöryggismálum er háttað. Slíkur dómur grafi alvarlega undan flugöryggi. Það megi aldrei sækja flugumferðarstjóra til saka fyrir að sinna starfi sínu af elju og skv. reglum.

Sjá tilkynningu IFATCA:

IFATCA Press Release Italy 29.3.2010

Flokkar
Fréttir

Fréttabréf IFATCA mars 2010

GK | 8. apríl 2010 | 12:59

Smelltu hér til að skoða mars útgáfu fréttabréfs IFATCA

Flokkar
Fréttir

Kjörfundur vegna kosninga um yfirvinnubann

ME | 7. apríl 2010 | 17:31

Á trúnaðarráðsfundi sem haldinn var 6. apríl sl. var ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um boðun yfirvinnubanns og frekari verkfallsaðgerða.

Kjörfundur verður haldinn á skrifstofu FÍF að Grettisgötu 89 á eftirfarandi tímum:

  • Fimmtudagur 8. apríl klukkan 13:00 – 20:00
  • Föstudagur 9. apríl klukkan 13:00 – 20:00
  • Mánudagur 12. apríl klukkan 16:00 – 20:00

Í kjörstjórn eru Eva Dögg, Elín og Björg Unnur.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX