• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Íslenskir flugumferðarstjórar erlendis

GK | 29. desember 2010 | 16:46

Egill Már Markússon. Ljósmynd: Morgunblaðið

Ellefu íslenskir flugumferðarstjórar starfa nú erlendis og tveir til viðbótar eru á leiðinni út. Í Morgunblaðinu í dag er birt viðtal við Egil Má Markússon, flugumferðarstjóra sem starfar í Abu Dhabi.

Egill Már Markússon hefur starfað við flugumferðarstjórn í ríflega aldarfjórðung og lengi átt sér þann draum að búa og starfa erlendis með fjölskyldunni. Draumurinn rættist í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í haust og þar líður fjölskyldunni vel. “Það er ekkert sem rekur á eftir okkur heim,” segir hann

Lesa meira »

Flokkar
Fréttir

Tilkynning frá IFATCA

GK | 8. desember 2010 | 04:31

Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra (IFATCA) hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem viðbrögð spænskra stjórnvalda vegna aðgerða spænskra flugumferðarstjóra eru fordæmd harkalega. Ganga samtökin svo langt að lýsa því yfir að öryggi loftfara í spænsku loftrými sé alvarlega ógnað. Samkvæmt tilkynningunni er ástæða verkfalls flugumferðarstjóra deilur um vinnutíma. Spænsk stjórnvöld höfðu, fyr á þessu ári, sett reglur um hámarksvinnutíma flugumferðarstjóra. Eins og spáð hafði verið reyndust þessar reglur of stífar og erfiðlega gekk að manna allar vinnustöður. Því brá AENA (ríkisrekið fyrirtæki sem sér um flugvelli landsins) á það ráð að breyta reglunum. Þrátt fyrir fréttir þess efnis var ekki deilt um laun.

IFATCA telur að með því að setja flugumferðarstjóra undir stjórn hersins í 15 daga frá 4. desember sé verið að beita óþarflega mikilli hörku í máli sem hefði verið hægt að leysa við samningaborðið. Með því að beita hernum séu stjórnvöld og AENA að beina athyglinni frá misheppnuðum ákvörðunum og afleiðingum þeirra. Verið sé að nota flugumferðarstjóra sem blóraböggla til að bjarga illa reknu fyrirtæki.

IFATCA telur að í umhverfi þar sem öryggi skiptir höfuðmáli geti herstjórn aldrei tryggt örugga þjónustu. Sérstaklega ekki þegar flugumferðarstjóra þurfi að þola kúgun stjórnvalda. Samtökin lýsa yfir stuðningi við spænska flugumferðarstjóra og hvetja stjórnvöld til að hefja opnar viðræður við þá. Jafnframt hvetja samtökin alþjóðastofnanir eins og ICAO, framkvæmdastjórn ESB, EUROCONTROL og CANSO til þess að tryggja að ástandið á Spáni verði leyst og valdi ekki enn frekari hættu.

  • IFATCA fréttatilkynning 6.12.2010 v. aðgerða spænskra flugumferðarstjóra
  • Upplýsingar frá IFATCA um deiluna á Spáni, 9.12.2010
  • Vefsíða með upplýsingum um deiluna
  • Brét til flugumferðarstjóra vegna deilunnar á Spáni 13. janúar 2011
Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX