• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Fundur FFR, SFR og FÍF

ME | 28. febrúar 2011 | 07:56

Sameiginlegur fundur Félags Íslenskra Flugumerðastjóra, Félags Flugmálastarfsmanna Ríkisins og SFR stéttafélags í almannaþjónustu verður haldinn í BSRB húsinu að Grettisgötu 89 miðvikudaginn 2 mars kl 17:00

Fundarefni: Dómur Héraðsdóms Reykjanes 9. feb. 2011
BSRB/Isavia Kynferðisbrot | Miskabætur

Dagskrá:

  1. Sonja Sonja Ýr Þorbergsdóttir Lögfræðingur BSRB fer yfir mál BSRB gegn Isavia.
  2. Sonja Ýr og Elín Björg svara fyrirspurnum.

ATH. fyrirhugað er að rúta fari frá KEF á fundarstað kl. 16:00 Nánar auglýst síðar.

  

Flokkar
Fréttir

Flugumferðarstjóri lést í jarðskjálftanum í Christchurch

GK | 25. febrúar 2011 | 08:02

Nú er staðfest að nýsjálenskur flugumferðarstjóri, Jillian Murphy, lést í jarðskjálfanum í Christchurch á Nýja Sjálandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem barst frá NZALPA (The New Zealand Air Line Pilots’ Association).

Jillian starfði lengi hjá Airways sem flugumferðarstjóri, bæði í flugturninum í Christchurch og einnig í Tauranga. Henni er lýst, af samstarfsmönnum, sem einstaklega skemmtilegri og hláturmildri konu og verður sárt saknað af samstarfsfólki sem og fjölskyldu. Jillian lætur eftir sig sambýlismann og tvö börn.

Félag íslenskra flugumferðarstjóra sendir fjölskyldu Jillian og samstarfsfélögum samúðarkveðju á þessum erfiðu tímum.

Flokkar
Fréttir

Ársreikningar 2010

HV | 23. febrúar 2011 | 07:55

Nú er búið að setja ársreikninga félagssjóðs og orlofssjóðs inn á síðuna.  Félagsmenn þurfa að vera innskráðir til að geta skoðað reikningana.  Við hvetjum svo alla til að mæta á aðalfundinn fimmtudaginn 24.febrúar nk. kl. 20:00.

Kveðja,
Stjórn FÍF

Flokkar
Fréttir

Aðalfundur FÍF 2011

ME | 9. febrúar 2011 | 17:24

 

Aðalfundur Félags íslenskra flugumferðarstjóra verður haldinn 24. febrúar nk. klukkan 20:00 í sal BSRB að Grettisgötu 89.  Kosningar til stjórnar verða rafrænar og auglýstar síðar.

Dagskrá:

  1.  Skýrsla stjórnar um störf á liðnu ári
  2.  Skýrslur nefnda
  3.  Endurskoðaðir reikningar síðasta árs lagðir fram til samþykktar
  4.  Lagabreytingar
  5.  Talin atkvæði og lýst kjöri stjórnar og tveggja varamanna
  6.  Kosning trúnaðarráðs og tveggja skoðunarmanna ársreikninga
  7.  Ákvörðun styrkja úr sjúkrasjóði og kostnaðargreiðslur til stjórnar
  8.  Önnur mál

 Stjórnin

Flokkar
Fréttir

Niðurstöður kosninga

ME | 4. febrúar 2011 | 13:09

Góðir félagar.

Þá liggja niðurstöður kosninga fyrir:

Yfirvinnubannið taki til eftirfarandi tímabila sólarhringsins:

  • kl. 20:00 – 24:00 mánudaga – föstudaga
  • kl. 00:00 – 07:00 mánudaga – föstudaga
  • kl. 00:00 – 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga

Yfirvinnubannið hefjist 14. febrúar 2011 og standi ótímabundið eða þar til að nýr kjarasamningur hefur verið samþykktur.

Þjálfunarbannið taki til nemaþjálfunar samkvæmt 3. gr. kjarasamnings FÍF og SA/Flugstoða/fjármálaráðherra, dags. 27. júní 2008.

Þjálfunarbannið hefjist 21. febrúar 2011 og standi ótímabundið eða þar til að nýr kjarasamningur hefur verið samþykktur.

Yfirvinnubann Þátttaka Atkvæðaskipting
Á kjörskrá 109 Með Á móti Auðir/ógildir
Gr.atkvæði 70 63 6 1
  64,2% 90,0% 8,6% 1,4%
         
         
Þjálfunarbann Þátttaka Atkvæðaskipting
Á kjörskrá 93 Með Á móti Auðir/ógildir
Gr.atkvæði 59 53 5 1
  63,4% 89,8% 8,5% 1,7%
Boðun þessara verkfalla verður send á viðkomandi aðila á morgun.

Yfirvinnubann hefst 14. febrúar.  Þjálfunarbann hefst 21. febrúar.

Fh. stjórnar og trúnaðarráðs
Matthías Einarsson, ritari FÍF.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX