• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Íslenskir flugumferðarstjórar hljóta alþjóðlega viðurkenningu

GK | 27. apríl 2011 | 09:08

Ottó Eiríksson, formaður FÍF, tekur við viðurkenningunni úr hendi Alexis Brathwaite, forseta IFATCA, og Željko Oreški, forseta Evrópudeildar IFATCA

Flugumferðarstjórar á íslandi hlutu æðstu viðurkenningu er IFATCA, Alþjóðasamtök félagasamtaka flugumferðarstjóra, veita fyrir framúrskarandi fagmennsku (outstanding professionalism) árið 2010.  Verðlaunin eru veitt fyrir afrek þar sem einstaklega fagleg vinnubrögð eru viðhöfð í flugumferðarstjórn.

Á ráðstefnu haldin í Amman, Jórdaníu dagana 10-15 apríl síðastliðin var þessi viðurkenning veitt íslenskum flugumferðarstjórum fyrir einstakt afrek meðan á Eyjafjallajökulsgosinu stóð.

Dagana 6-11 maí 2010 unnu flugumferðarstjórar í Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík alla flugumferð er fór yfir Atlantshafið.  En sú umferð skiptist venjulega milli fjögurra flugstjórnarmiðstöðva.  Öll flugumferðin flaug yfir og norður af Íslandi og voru fyrri umferðarmet bætt á hverjum degi þar til 11 maí.

Þann 11. maí flugu 1019 flugvélar gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið á 24 klst en metið fyrir 6. maí var 562 vélar.  Þá eru ekki taldar vélar sem fóru frá eða lentu á flugvöllum innan flugstjórnarsvæðisins.  Þess má geta að íslenska flugstjórnarsvæðið er annað stærsta flugstjórnarsvæðið í heiminum, 5,4 milljón ferkílómetrar og tekjur vegna alþjóðaflugþjónustu fyrir árið 2010 voru 3 milljarðar.

Þessa daga voru allir flugumferðarstjórar á vakt og allar vinnustöður flugstjórnarmiðstöðvarinnar mannaðar.  Flugumferðarstjórarnir, fluggagnafræðingar, starfsmenn Flugfjarskipta og stoðdeildir lögðu gríðarlega vinnu á sig til þess að hægt væri að sinna þessari umferð og var það sérstaklega minnistætt að allir lögðust á eitt og engin skoraðist undan, sýndu starfsmenn einstaka ósérhlífni þessa daga.

Þetta er einstakur heiður fyrir flugumferðarstjóra á Íslandi.

Fréttatilkynning um viðurkenningu IFATCA

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík. Mynd: AL

Flokkar
Fréttir

Félagsfundur

ME | 19. apríl 2011 | 23:38

Félagsfundur verður haldinn miðvikudagskvöldið 27. apríl klukkan 20:00 í sal BSRB að Grettisgötu 89.

Dagskrá:
  1.  Staðan í kjarasamningaviðræðum.
  2.  Viðurkenning IFATCA til íslenskra flugumferðarstjóra.
  3.  Önnur mál.

Stjórnin

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX