• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Félagsfundur FÍF

Vefstjóri FÍF | 31. maí 2011 | 17:17

Félag Íslenskra Flugumferðarstjóra boðar félagsfund á morgun, miðvikudaginn 1. Júní, klukkan 20:00 í BSRB húsinu Grettisgötu 89.

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi
  2. Umræður
  3. Greiðslur úr félagssjóði til að bæta tekjuskerðingu vegna skerðingar launa sem nemur kennsluálagi meðan á verkfallsaðgerðum stóð.

Athugið að fundurinn er einungis opinn félagsmönnum í FÍF

 

Flokkar
Fréttir

Nýr kjarasamningur undirritaður

ME | 31. maí 2011 | 05:42

Samninganefnd FÍF. Ljósmynd: mbl.is/Eggert

Samninganefnd FÍF skrifaði rétt í þessu undir kjarasamning við SA f.h. Isavia ohf.  Stefnt er á að samningurinn verði kynntur í vikunni og verður það nánar auglýst síðar í dag.

Öllum verkfallsaðgerðum FÍF (yfirvinnubanni og þjálfunarbanni) hefur verið aflýst af þessum sökum.

 

Flokkar
Fréttir

Flugumferðarstjórar víða

GK | 8. maí 2011 | 18:23

Flugumferðarstjórar búa við þau starfsskilyrði að vinna vaktavinnu. Slíkt hefur vissulega bæði kosti og galla. Einn helsti kosturinn sem flugumferðarstjórar, og raunar vaktavinnufólk yfir höfuð, nefna er frítíminn. Hann býður upp á á stunda ýmis áhugamál utan vinnu. Nýlega hafa tveir flugumferðarstjórar birst í viðtölum við fjölmiðla en það eru þau Sigurður Hrannar Hjaltason (SK) og Laufey Einarsdóttir (LE) sem bæði starfa í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.

Sigurður er menntaður leikari og hefur samhliða störfum sínum í flugstjórn leikið í bæði Fangavaktinni og Pressunni en báðir þættirnir voru sýndir á Stöð 2 við miklar vinsældir. Viðtal við Sigurð birtist í Föstudegi, fylgiriti Fréttablaðisins þann 29. apríl sl og má skoða lesa það hér:

Föstudagur 29. apríl 2011

Laufey hefur starfað sem fangavörður, flugmaður, förðunarfræðingur og nú sem flugumferðarstjóri en hún fékk sín fyrstu réttindi í mars sl. Laufey er líka förðunarsérfræðingur og mætir yfirleitt nokkuð vel förðuð í vinnuna. Vikan birti í síðustu viku forsíðuviðtal við Laufey og hvetur FÍF alla til að verða sér úti um eintak.

Sjá nánar á vefsíðu Vikunnar

FÍF er að sjálfsögðu mjög stolt af sínu fólki og þeim fjölbreyttu hæfileikum sem leynast innan félagsins.

Flokkar
Fréttir

Félagsfundur

GK | 2. maí 2011 | 20:56

Haldinn verður félagsfundur FÍF miðvikudaginn 4. maí kl. 20:00 í húsnæði BSRB að Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu kjaraviðræðna.

Stjórn FÍF

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX