• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Fimm nýir félagsmenn

GK | 5. desember 2011 | 08:23

Nú hafa fimm nýjir flugumferðarstjórar hafið störf í flugturnunum í Keflavík og Reykjavík. Þetta eru þau Júlíus Freyr Valgeirsson, Margrét Elín Arnarsdóttir, Rúnar Ingi Erlingsson, Guðmundur Haukur Rafnsson og Alexander Rafn Gíslason. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í félagið.

Við fengum þau til að segja aðeins frá sjálfum sér

Alexander Rafn Gíslason – AN

Ég heiti Alexander Rafn Gíslason og er fæddur í Reykjavík en uppalinn á Akureyri. Móðir mín heitir Ingibjörg Sólrún Ingimundardóttir og er hjúkrunarfræðingur og á rætur sínar að rekja til Kópavogs, faðir minn heitir Gísli Örn Davíðsson og er vélvirki ættaður frá Vopnafirði. Ég á einn eldri bróðir sem heitir Magnús Blöndal.
Ég hóf nám í Menntskólanum á Akureyri árið 2004 og veturinn 2005-2006 var ég skiptinemi í Sevilla á Spáni. Árið 2009 útskrifaðist ég svo sem stúdent af tungumálabraut M.A. og í byrjun árs 2010 hóf ég nám í flugumferðarstjórn hjá Keili.
Mín helstu áhugamál eru skotveiði og íþróttir og hef ég æft og keppt í fótbolta, handbolta, badminton og líkamsrækt svo fátt eitt sé nefnt.

Guðmundur Haukur Rafnsson – GX

Ég heiti Guðmundur Haukur Rafnsson og er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Ég er fæddur árið 1984 og er því 27 ára gamall. Ég er barnlaus og ókvæntur eins og er en á einn hund sem er duglegur að halda mér félagsskap. Einnig á ég einn eldri bróðir sem er fæddur árið 1980 og er hann trúlofaður og eiga þau saman þriggja ára strák.

Áhugamál mín er jafn mörg og þau eru ólík. Þau helstu eru líkamsrækt, matargerð, stjörnuskoðun, hundar, bílar og mótorhjól ásamt flugi.

Ég lærði flugmanninn á sínum tíma, tók öll réttindi og flugtíma en svo leitaði áhugasviðið annað og nú er ég orðinn nýbakaður flugumferðastjóri með réttindi í flugturninum í Reykjavík. Ég lærði grunnnámið hjá Keili og kláraði námið sumarið 2009, hóf svo störf hjá Isavia (á þeim tíma Flugstoðir) sem fluggagnafræðingur og hermaflugmaður. Þar starfaði ég í ár og fór svo þaðan í nám sem flugumferðastjóri. Ég hef einnig starfað hjá Load Control IGS á Keflavíkurflugvelli, Vodafone og í Nóatúni.

Júlíus Freyr Valgeirsson – JF

Ég heiti Júlíus Freyr Valgeirsson og er fæddur og uppalinn á Hornafirði. Faðir minn er ættaður frá Hornafirði en móðir mín á ættir sínar að rekja á Vopnafjörð. Ég á tvö systkin. Bróðir sem er 10 árum eldri og systur sem er 9 árum eldri…ég er sennilega slys.

Aðaláhugamál mitt er knattspyrna sem hef ég stundað frá barnsaldri en þú hefur sennilega aldrei heyrt um mig getið sem segir margt um getu mína í knattspyrnu. Liverpool er eina liðið sem hægt er að halda upp á í Englandi en á Íslandi eru það Sindri, HK og Fram sem tróna á toppnum.

Ég á einn kött sem er orðin 13 ára og heitir Yazmine. Hún á afmæli í apríl en velkomið að senda henni gjafir allt árið um kring.

Ég er lærður lögreglumaður og vann hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu frá 2008 uns ég hóf störf hér hjá Isavia. Ég hef einnig unnið hjá Vífilfell, Securitas og Ratsjárstofnun. Þá hef ég starfað við pípulagnir, múrverk og bakað meðal annars.

Margrét Elín Arnarsdóttir – MX

Ég heiti Margrét Elín Arnarsdóttir og er fædd í Svíþjóð en að mestu uppalin í Hafnarfirði. Ég bjó einnig um tíma í Bandaríkjunum þar sem ég var við nám og störf. Faðir minn hét Arnar Hákonarson og var flugmaður, ættaður frá Húsavík, og móðir mín heitir Ingibjörg Jóna Gunnarsdóttir og er Viðskipta- og rekstrarfræðingur, ættuð frá Hafnarfirði. Ég er gift Tómasi Beck, flugmanni og hálfum Norðmanni og eigum við saman tvö börn, Tristan og Kötlu. Við fjölskyldan búum í Njarðvík ásamt tveimur gríðarlega hressum labradorhundum, þeim Boeing og Cessnu.
Ég hef í gegnum árin lagt stund á ýmiss konar lærdóm og má þar nefna atvinnuflugnám, lögfræði, líffræði og íþróttaþjálfun. Árið 2010 hóf ég nám í flugumferðarstjórn hjá Keili og er í dag starfandi flugumferðarstjóri með réttindi í flugturninum í Keflavík og líkar afar vel. Þar áður starfaði ég sem flugfreyja hjá Icelandair og í flugrekstrardeild Air Atlanta en einnig þjálfaði ég Taekwondo í þó nokkur ár.
Helstu áhugamál mín eru flug og flest er því tengist, CrossFit, Taekwondo, fjallabrölt og lífið sjálft:)

Rúnar Ingi Erlingsson – RI

Ég heiti Rúnar Ingi Erlingsson , 22ja ára fæddur og uppalinn Njarðvíkingur og er yngstur 3ja systkina.  Í dag bý ég í Kópavogi ásamt kærustu minni , Kristínu Friðriksdóttur og syni mínum , Óliver Daða Rúnarssyni. Ég hef æft körfubolta frá 5 ára aldri og hef spilað alla tíð með Njarðvík fyrir utan 2 góð ár með Breiðablik en einnig á ég að baki 35 unglingalandsliðsleiki. Ég útskrifaðist árið 2008 frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hef unnið sem sumarstarfsmaður hjá Farþegaafgreiðslu IGS í 2 ár. Önnur áhugamál eru kvikmyndagerð, tónlist og ferðalög. Ég ákvað að fara í flugumferðarstjórn eftir að hafa unnið hjá IGS og heillast af flugheiminum. Einnig hafði það mikil áhrif á mig að góður vinur minn og liðsfélagi, Brenton Birmingham, hvatti mig í að fara í þetta og sé ég alls ekki eftir því í dag og þakka honum oft fyrir. Ég hef fengið mörg gælunöfn í gegnum tíðina sem eru mjög skrýtin, en í dag er ég oftast kallaður GipsyKing, af algjörlega óskiljanlegum ástæðum :)

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX