Umsóknir um Gullhvamm vorið 2006
vefstjori | 9. nóvember, 2005 | 09:34Umsóknum um Gullhvamm skal skila gegnum heimasíðu FÍF (smella á Umsókn um orlofshús hér vinstra megin) fyrir miðnætti fimmtudaginn 1.desember 2005.
Vortímabilið stendur frá föstudegi 6.janúar til föstudags 19.maí. Sótt er um viku eða helgi sem aðalval og allt að 3 vikur eða helgar til vara.
Verð fyrir helgi er kr. 5.500,- og verð fyrir hvern virkan dag er kr. 1.000,-
Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl. 1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl. 1500.
Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktataðan er jöfn. Umsókn um heila viku hefur forgang á umsókn um staka helgi.
Punktastaðan verður fljótlega birt á heimasíðu FÍF.
Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar TP, LL eða HV.
Passamyndir
vefstjori | 8. nóvember, 2005 | 13:54Ég vil minna á að stjórn FÍF ákvað að bjóða félagsmönnum sínum upp á passamyndatöku þeim að kostnaðarlausu hjá Ásmynd, Hraunbæ 119 Reykjavík. Bent er á að starfsmenn hringi á undan sér og bóki tíma svo allt megi ganga snurðulaust fyrir sig en síminn er 586-8001. Teknar verða nokkrar stafrænar myndir og svo valdar tvær bestu. Hver félagsmaður fær 4 passamyndir til eigin nota en FÍF fær afrit til þess að setja inn á heimasíðuna þar sem þær flestar eru vel komnar til ára sinna.
Kv.
SO
Kv.
SO
Uppfærsla á heimasíðu
vefstjori | 2. nóvember, 2005 | 17:37Þá er komið að því að ákveðnum hlutum af heimasíðunni verði læst. Þið ættuð að hafa fengið notendanafn og lykilorð sent til ykkar í tölvupósti en það getið þið notað þegar þið smellið á Handbók. Nýjungar á heimasíðunni verða svo þær að þegar þið hafið skráð ykkur inn þá getið þið sent afmæliskveðjur til þeirra sem eiga afmæli (Lára á afmæli í dag!!!!) og einnig verður hægt að skrifa athugasemdir við fréttir á forsíðunni. Ég vona að fólk verði ánægt með breytingarnar en ef þið lendið í einhverjum vandræðum með eitthvað af þessu endilega hafið þá samband við mig á sjarmi@caa.is
Kv. SO



