• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Rangar yfirlýsingar um evrópskar reglugerðir um vinnutíma flugumferðarstjóra

vefstjori | 28. mars, 2006 | 10:25


    Í frétt í Morgunblaðinu 17. mars 2006 er haft eftir upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar, Hjördísi Guðmundsdóttur, að rætur vaktkerfabreytinganna í flugstjórnarmiðstöðinni væri að rekja til reglugerða frá yfirstjórn flugmála í Evrópu. FÍF hefur nú fengið staðfest að þetta er rangt.
    FÍf spurðist fyrir um málið og hefur borist eftirfarandi svar frá Jyrki Paajanen, European Commission, DG TREN, Air Traffic Management.


            

    Dear Mr Johannsson,

     

    Than You for your question. At least at this moment there is neither a regulation in force nor under planning under the Single European Sky framework to develop common rules for ATCO working hours. The only Community rules on this are the horizontal directives, which concern all professions and put the limit at 48 hours a week. Naturally for ATCO’s this directive is of little consequence.

     

    Best regards,

     

    Jyrki Paajanen
    —————————————————
    Jyrki Paajanen
    European Commission, DG TREN, Air Traffic Management
    Tel:+32-2-2951981, Fax: +32-2-2968353
    E-mail: Jyrki.Paajanen@cec.eu.int
    Mail address: DM-24  5-40, B – 1049 Brussels
    Visiting address: 24 rue de Mot, B – 1040 Brussels

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Flugmálastjóri slakar á klónni

    vefstjori | | 08:23


      Flugmálastjóri hefur ákveðið, að höfðu samráði við yfirmenn flugumferðarsviðs, „…að aðalvarðstjórar taki mið af aðstæðum í flugstjórn hverju sinni þegar fjallað er um beiðnir flugumferðarstjóra [til að „skreppa“ úr húsi eða að nýta sér leikfimiaðstöðu]“.

                          

      Í minniblaði starfsmannastjóra, sem fylgdi bréfi flugmálastjóra til FÍF, kemur fram að ástæða refsiaðgerðanna sé sú að flugumferðarstjórar í flugstjórnarmiðstöðinni hafi „gefið til kynna að þeir muni ekki verða við beiðnum um að vinna yfirvinnu… .“  Fram kemur hjá starfsmannastjóranum að það hafi verið „hert á því við aðalvarðstjóra að þeir heimili starfsmönnum ekki að skjótast úr vinnu á vinnutíma nema brýna nauðsyn beri til.“ Að sama skapi hafi verið „brýnt fyrir aðalvarðstjórum að þeir heimili starfsmönnum ekki að fara í leikfimisalinn í vinntíma ef ætla má að þörf verði á að þeir fari í vinnustöðu.“

       

      Starfsmannastjórinn leggur áherslu á að aðalvarðstjórar geti „að sjálfsögðu“ heimilað flugumferðarstjórum að fara í leikfimisalinn, „…ef það liggur alveg ljóst fyrir að ekki verður þörf fyrir þá í vinnustöðu á meðan.“ Starfsmannastjórinn segir að þetta sé háð mati hvers aðalvarðstjóra, „…enda beri þeir ábyrgð á að starfsemi flugstjórnarmiðstöðvarinnar raskist ekki vegna þessa.“ Að lokum telur starfsmannastjórinn að það geti vart talist „óeðlilegar kröfur til starfsmanna að þeir séu á vinnustað á meðan á vinnutíma stendur og sinni vinnu sinni.“

       

      Formaður

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      FÍF stefnir íslenska ríkinu

      vefstjori | 21. mars, 2006 | 11:24

            
            Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur stefnt íslenska ríkinu til Félagsdóms vegna meintra brota Flugmálastjórnar Íslands á kjarasamningum aðila sem felast í einhliða breytingum Flugmálastjórnar á vaktkerfum í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
        Í töflunni hér að neðan er samanburður á vinnutíma starfsfólks hjá Flugmálastjórn Íslands – annars vegar dagvinnufólks og hins vegar flugumferðarstjóra í vaktavinnu skv. hinu nýja vaktkerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Tekið er tillit til sérstakra frídaga sem falla á virka daga árið 2006.




         

















































         

        Dagvinnufólk

        Flugumferðarstjórar á vöktum í flugstjórnarmiðstöðinni

        Helgarfrí á ári (laugard-sunnud)

        52

        4

        Tveir samfelldir frídagar á ári

        54

        30

        Frídagar á ári

        114
        (helgar og sérstakir frídagar, árið 2006)

        91

        Frídagar á viku (meðaltal á ári)

        2,2

        1,75

        Vinnudagar á viku (meðaltal á ári)

        4,8

        5,25

        Vinnudagar á ári

        251

        274

        Fjöldi vinnustunda á viku (mánud-sunnud) – mest

        40 (40 klst vinnuvika)

        38 (38 klst vinnuvika)

        44,5

        Fjöldi vinnustunda á viku (mánud-sunnud)  – minnst

        24 (40 klst)

        22,8 (38 klst)

        9.-16., 17-23 apríl og 25-31 des. 2006

        35

        Lengd vinnuviku í klst/meðaltali

        38,6 (40 klst vinnuvika)

        36,7 (38 klst vinnuvika)

        37,33

         

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Refsiaðgerðir

        vefstjori | 17. mars, 2006 | 08:42

                  
          Yfirstjórn flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar Íslands hefur nú tekið upp þá nýjung í stjórnunarháttum sem felst í því að beita ákveðinn starfshóp refsiaðgerðum. Aðalvarðstjórar í flugstjórnarmiðstöðinni hafa fengið þau fyrirmæli að halda flugumferðarstjórum á vakt í flugstjórnarmiðstöðinni í „stofufangelsi“. Aðalvarðstjórar fengu þessi fyrirmæli frá yfirmönnum sínum á fundi með þeim síðastliðinn miðvikudag og að tilgangurinn væri að láta „hart mæta hörðu“??
          Vegna þessa hefur Félag íslenskra flugumferðarstjóra skrifað flugmálastjóra eftirfarandi bréf.





          Borgartún 28, 105 Reykjavík

          16. mars 2006

           

           

          Hr. flugmálastjóri
          Þorgeir Pálsson

          Flugmálastjórn Íslands

           

           

          Efni: Refsiaðgerðir.

           

          Félagi íslenskra flugumferðarstjóra er kunnugt um að aðalvarðstjórum í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík hafa verið gefin fyrirmæli af yfirmönnum flugumferðarsviðs um að beita flugumferðarstjóra sem vinna vaktir í flugstjórnarmiðstöðinni refsiaðgerðum. Þessar aðgerðir felast m.a. í því að neita flugumferðarstjórum á vakt um leyfi til að yfirgefa flugstjórnarmiðstöðina í vinnuhléum til að sinna persónulegum erindum ef aðstæður leyfa. Sömuleiðis er flugumferðarstjórum á vakt bannað að nýta leikfimiaðstöðu í kjallara flugstjórnarmiðstöðvar í hléum sínum.

           

          Félagið vísar til starfsmannastefnu Flugmálastjórnar en þar segir m.a.:

           

          Flugmálastjórn leggur áherslu á að í stofnuninni ríki góður starfsandi og að starfsmenn sýni hverjir öðrum fyllstu tillitssemi í öllum samskiptum. Hegðun sem ógnar, truflar, ögrar eða veldur öðrum óþægindum er litin mjög alvarlegum augum. Þannig líðst ekki hegðun sem telst fela í sér einelti á einhvern hátt.

           

          Félag íslenskra flugumferðarstjóra bendir á að ofangreind vinnubrögð yfirmanna flugumferðarsviðs eru ekki aðeins óeðlilegir stjórnunarhættir, heldur einnig augljóst brot á tilvitnaðri starfsmannastefnu Flugmálastjórnar. Þá vekur félagið athygli yðar á reglugerð nr. 1000/2004 um aðgerðir gegn einelti á vinnustað og skyldu atvinnurekanda til að bregðast við því, en einelti er skilgreint í reglugerðinni sem: „Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að [...].“ Ljóst er að með þessum refsiaðgerðum gegn flugumferðarstjórum sem vinna vaktir í flugstjórnarmiðstöðinni er þeim mismunað enda beinast þær einungis gegn einum afmörkuðum hópi starfsmanna. Félag íslenskra flugumferðarstjóra er kunnugt um það að þessar aðgerðir hafa valdið flugumferðarstjórum í flugstjórnarmiðstöðinni vanlíðan og þeir eru bæði særðir og móðgaðir.

           


          Félag íslenskra flugumferðarstjóra fer þess vinsamlegast á leit að þér, hr. flugmálastjóri, stöðvið þessar refsiaðgerðir undirmanna yðar, sem félagið er fullvisst um að hafi verið gripið til án vitneskju yðar. Þá fer félagið fram á að þér upplýsið um viðbrögð yðar.

           

           

          Virðingarfyllst,

           

           

           

           

           












          __________________________________

          __________________________________

          Loftur Jóhannsson

          Stefán B. Mikaelsson

          formaður

          ritari

           

           

          Afrit: samgönguráðherra

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Lagabreytingar

          vefstjori | 15. mars, 2006 | 17:54

            Á síðasta aðalfundi komu fram nokkrar tillögur um breytingar á lögum FÍF. Í lögum félagsins segir eftirfarandi um slíkar tillögur:


            Tillögurnar skulu ræddar á aðalfundi samkvæmt almennum reglum um fundarsköp hvað varðar frávísunar- og breytingartillögur. Verði tillögu ekki vísað frá, skal hún, með þeim breytingum sem aðalfundur samþykkir, lögð fyrir félagsmenn, til samþykktar eða synjunar, í almennri atkvæðagreiðslu [...] Aðalfundur skal kjósa þriggja manna kjörstjórn til að sjá um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og talningu atkvæða. Atkvæðagreiðslunni skal lokið eigi síðar en 31. mars og skal hún framkvæmd með sama hætti og stjórnarkjör. Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða nægir til að tillögur teljist samþykktar.


            Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir og kjörgögn liggja frammi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík fyrir félagsmenn í Reykjavík og í flugturninum í Keflavík fyrir félagsmenn á Keflavíkurflugvelli. Kjörgögn hafa einnig verið send til Akureyrar og Vestmannaeyja fyrir félagsmenn á þeim stöðum. Kosningu lýkur 31. mars 2005.


            Formaður


             

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Aviation briefing Mars 2006

            Vefstjóri | 11. mars, 2006 | 19:41

              Smellið hér

              Athugasemdir
              Comments Off
              -->
              Flokkar
              Aðsent efni
              RSS á athugasemdir RSS á athugasemdir

              Vaktkerfamál

              vefstjori | 9. mars, 2006 | 14:26

                    Eins og kunnugt er vinnur FÍF að því með lögmanni félagsins að stefna Flugmálastjórn Íslands fyrir Félagsdóm vegna brota á samningum um vaktakerfi og vinnutíma. Vonast er til að stefna verði tilbúin seinni part næstu viku.

                 

                Að gefnu tilefni hafði ég samband við samgönguráðuneyti og starfsmannskrifstofu fjármálaráðuneytis og óskaði upplýsinga um hvort þessir aðilar hafi krafist þess að Flugmálastjórn Íslands og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli breyttu vaktkerfum flugumferðarstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík og flugturni Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvalla. Svör þeirra eru eftirfarandi:

                 

                “Starfsmannaskrifstofna fjármálaráðuneytisins hefur ekki afskipti af rekstri einstakra stofnana né heldur vaktafyrirkoulagi hjá þeim. Við höfum ekkert með það að gera. Það eru stofnanir sem setja niður fyrirkomulag vakta í takt við þá kjarasamninga sem eru í gildi fyrir starfsmenn stofnana.”

                Ásta Lára Leósdóttir, sérfræðingur, starfsmannaskrifstofa, fjármálaráðuneyti

                 

                “Sæll Loftur, ég hef leitað mér uppl. um það [sem] þú baðst mig um að athuga. Ég get fullvissað þig um að engin fyrirmæli hafa borist héðan af því tagi sem þú nefnir.”

                Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri, samgönguráðuneyti

                 

                Í 3. mgr. gr. 2.1.1 í kjarasamningi FÍF segir: “Flugmálastjórn er heimilt að flytja vinnuskyldu milli vikna eða árstíða með samþykki viðkomandi starfsmanns.” Lögmaður félagsins túlkar þessa grein sem einstaklingsbundið val um hvort flytja megi vinnuskyldu starfsmanns milli vikna eða árstíða. Þeir sem ekki sætta sig við flutning vinnuskyldu, t.d. vegna einhliða breytinga á vaktkerfum, geta tjáð flugmálastjóra það skriflega og óskað eftir vöktum þar sem vinnutími fer ekki umfram 38 klst. á viku.

                 

                Kveðja,

                Formaður
                    

                Athugasemdir
                Comments Off
                -->
                Flokkar
                Fréttir

                Ný stjórn tekur við

                vefstjori | 1. mars, 2006 | 12:46

                  Ný stjórn FÍF hefur tekið til starfa og skipt með sér verkum. Formaður er Loftur Jóhannsson, varaformaður Davíð Heiðar Hansson, gjaldkeri Halldóra Klara Valdimarsdóttir, ritari Stefán B. Mikaelsson og meðstjórnandi Ottó G. Eiríksson. Stjórnin mun hittast fljótlega og skipa í nefndir.

                  Athugasemdir
                  Comments Off
                  -->
                  Flokkar
                  Fréttir

                  Tenglar



                  Félag íslenskra flugumferðarstjóra

                  Grettisgata 89
                  101 Reykjavík
                  GSM: 861-0050
                  Fax: 525-8309
                  iceatca (hjá) iceatca.com

                  Innskráning



                  • Týnt lykilorð?
                  OPEX