• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Breytingar á lögum FÍF

vefstjori | 30. apríl, 2006 | 00:14

        Niðurstaða atkvæðagreiðslu um lagabreytingartillögur, sem kynntar voru á síðasta aðalfundi, liggur fyrir.
    Allar breytingartillögurnar voru samþykktar með miklum meirihluta atkvæða. Breytingarnar taka gildi frá og með 1. maí 2006. Lögin verða uppfærð fljótlega og birt á heimasíðunni.

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    FÍF hafnar óskum um breytingar á kjarasamningi

    vefstjori | 26. apríl, 2006 | 15:19

         

      Fjármálaráðuneytið, Flugmálastjórn Íslands og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli höfðu á mánudag, 24. apríl 2006, samband við stjórn FÍF vegna meintrar  villu í framsetningu launaútreikningsins og óskuðu eftir að FÍF féllist á verulega lækkun á launabreytingum sem fyrirhuguðar eru 1. maí 2006. FÍF lítur svo á að í þessu myndi felast veruleg breyting á gerðum kjarasamningi, sem stjórn og trúnaðarráði væri óheimilt að fallast á enda alls óvíst að hann hefði fengist samþykktur hefði hann verið lagður fyrir félagsmenn í því formi sem gagnaðilinn vill nú færa hann í.

      Yfirlýsing FÍF
       http://www.iceatca.com/flugumferd/data/115.pdf

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Félagsdómur

      vefstjori | 24. apríl, 2006 | 11:06
        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Félagsdómsstefna

        vefstjori | 12. apríl, 2006 | 09:57

              Stefna FÍF gegn fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins vegna einhliða breytinga Flugmálstjórnar Íslands á vaktkerfum í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík er komin á vefinn. Leiðin er: Handbók -> Dómsmál -> Vaktir í flugstjórn
          Njótið!
          Formaður

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Umsóknir um Gullhvamm og Aðalból sumarið 2006

          vefstjori | 10. apríl, 2006 | 15:21

            Umsóknir um Gullhvamm og Aðalból sumarið 2006

             

            Umsóknum um Gullhvamm og Aðalból skal skila gegnum heimasíðu FÍF fyrir miðnætti sunnudaginn 23.apríl 2006.
            Bein slóð inn á umsóknareyðublaðið er: http://www.iceatca.com/flugumferd/orlofshus_umsoknir.html

             

            Sumartímabilið stendur frá föstudegi 19.maí til föstudags 15.september 2006.  Sótt er um eina viku sem aðalval og allt að 3 vikur til vara.

            Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl.1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl.1500. 


            Verð fyrir viku í Gullhvammi er kr. 15.000,- og Aðalbóli kr. 12.000,-


            Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktastaðan er jöfn.  Punktastöðuna er hægt að skoða á heimasíðu FÍF.  Til að gera það þarf að skrá sig inn undir Handbók og fara í liðinn Orlofshús, Punktastaða.

             

            Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar SM, SJ eða LL.

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Óbilgirni yfirmanna FMS

            vefstjori | | 08:55

              Í síðustu viku kom til tals að FMS og FíF tækju aftur upp viðræður um vaktakerfi í flugstjórn með það fyrir augum að komast að samkomulagi sem allir gætu sætt sig við. Yfirmenn FMS settu þau skilyrði fyrir viðræðunum að formaður FÍF kæmi þar hvergi nærri.

              Á aðalvarðstjórafundi í flugstjórn kom fram tillaga frá einum aðalvarðstjóranum um að FMS og FÍF hæfu aftur viðræður til að finna lausn á vaktakerfisvandanum. Tillagan hljóðaði uppá að hvor um sig tilnefndi einn fulltrúa til að fara yfir málin og komast að samkomulagi sem allir gætu sætt sig við. Ennig var lagt til að fulltrúi FMS yrði Jón Árni og fulltrúi FÍF Loftur formaður. Yfirmenn tóku vel í þessa hugmynd að öðru leyti en því að formaður FÍF væri ekki heppilegur fulltrúi FÍF. Ekkert yrði af þessu ef FÍF tilnefndi formanninn sem sinn fulltrúa. Á stjórnarfundi FÍF var samþykkt að taka vel í að hefja viðræður en það yrði að vera á þeim grundvelli að FÍF veldi sjálft sinn fulltrúa. Svo virðist sem ekkert verði af þessum viðræðum vegna skilmála FMS.
              Þess má geta að engar viðræður hafa farið fram á milli FMS og FíF eftir að ný stjórn og formaður tók við í febrúar, hvorki um vaktakerfi né annað. Þess vegna vekja þessi skilyrði yfirmanna FMS enn meiri undrun.

              Athugasemdir
              Comments Off
              -->
              Flokkar
              Fréttir

              Tenglar



              Félag íslenskra flugumferðarstjóra

              Grettisgata 89
              101 Reykjavík
              GSM: 861-0050
              Fax: 525-8309
              iceatca (hjá) iceatca.com

              Innskráning



              • Týnt lykilorð?
              OPEX