• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Umsóknir um Gullhvamm haustið 2006

vefstjori | 25. ágúst, 2006 | 23:58

        


    Umsóknir um Gullhvamm haustið 2006

     

    Umsóknum um Gullhvamm skal skila gegnum heimasíðu FÍF fyrir miðnætti fimmtudaginn 7. september 2006
    Bein slóð inn á umsóknareyðublaðið er: http://www.iceatca.com/flugumferd/orlofshus_umsoknir.html

     

    Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar SM, SJ eða LL.

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Svar FÍF við bréfi flugmálastjóra frá 18. ágúst

    vefstjori | | 07:12

          

       

       

       

       

       

      Reykjavík 20. ágúst 2006

       

       

      Þorgeir Pálsson

      flugmálastjóri

       

       

       

       

      Efni: Bréf flugmálastjóra til FÍF dags. 18. ágúst 2006

       

       

      FÍF vísar til bréfs þíns dags. 18. ágúst þar sem þú dregur þá ályktun að stjórn FÍF eigi stóran þátt í því að fáir mættu á fund sem þú hafðir boðað með flugumferðarstjórum í flugstjórnarmiðstöðinni þann dag. Þessi ályktun er röng. Stjórn FÍF hafði ekki nein áhrif á það hvort félagsmenn mættu á fundinn. Leita verður skýringa á fámenni á fundinum annars staðar en hjá stjórn FÍF, enda hefur hún ekkert vald yfir því hvernig félagsmenn verja frítíma sínum.

      Í bréfi þínu harmar þú að stjórn félagsins skuli ekki treysta sér til að taka þátt í málefnalegri umræðu um vaktkerfið. Hvað þetta varðar ítrekar stjórnin að hún er alltaf tilbúin að ræða við þig um það mál. Óskir þú eftir slíkum fundi með stjórn félagsins er það auðsótt.

      Stjórn FÍF fagnar því að loksins sé fram komið hvert markmið vaktkerfisbreytinganna sé, þ.e. að setja á kerfi sem sambærilegt sé við það sem best þykir í nágrannalöndum okkar. Félagið óskar eftir upplýsingum um hvaða vaktkerfi voru höfð til hliðsjónar þegar núverandi vaktkerfi í flugstjórnarmiðstöðinni var mótað.

      Þú vísar til þess í bréfi þínu að bréf til þín hafi birst í fjölmiðlum fyrir tilstuðlan félagsins áður en þau bárust þér. Sé hér vísað til bréfa frá IFATCA og ITF þá er stjórn félagsins kunnugt um að þau voru send þér í tölvupósti 15. ágúst um leið og þau voru send til félagsins. Sendendur bréfanna gáfu FÍF heimild til að birta þau í fjölmiðlum daginn eftir, sem félagið gerði. Hafi bréfin ekki borist þér er ekki við FÍF að sakast.

       

      Virðingarfyllst,

       

       

       

       












      _________________________________

      _________________________________

      Loftur Jóhannson

      Stefán B. Mikaelsson

      formaður FÍF

      ritari FÍF

       

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Flugmálastjóri kennir stjórn FÍF um slælega mætingu á starfsmannafund

      vefstjori | 21. ágúst, 2006 | 11:23

        Hér að neðan má skoða bréf flugmálastjóra
        http://www.iceatca.com/flugumferd/data/135.pdf

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        vefstjori | | 10:39

              

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Yfirlýsing í tilefni bréfs flugmálastjóra til Félags íslenskra flugumferðarstjóra 16. ágúst 2006

          vefstjori | 17. ágúst, 2006 | 21:31

                Félagi íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) hefur borist bréf, dagsett 16. ágúst 2006, frá Þorgeiri Pálssyni, flugmálastjóra, sem svar við bréfi FÍF frá 8. ágúst sl. Í þessu bréfi okkar leggjum við lykilspurningar um flugöryggi fyrir flugmálastjóra í tilefni af því að veikur flugumferðarstjóri var kallaður á vakt mánudaginn 31. júlí sl. og neyddur til að vinna við flugumferðarstjórn. Í svarbréfi sínu víkur flugmálastjóri sér undan að svara eða fer hreinlega með staðlausa stafi. Hann hefur nú sent fjölmiðlum bréfið. Af því tilefni hefur flugumferðarstjórinn sem málið varðar, Jón Guðmundsson, óskað eftir að FÍF komi eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri fyrir sína hönd:


            „Bréf Þorgeirs Pálssonar, flugmálastjóra, til Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) bendir eindregið til þess að hann verði að læra að umgangast sannleikann af tilhlýðilegri virðingu. Sú fullyrðing FÍF, að ég hafi verið neyddur til að mæta á vinnustað veikur, er rétt og sönn. Ég var með slæman höfuðverk og illa sofinn að morgni 31. júlí, tilkynnti um veikindi, tók sterk verkjalyf (Parkódín forte) og lagði mig. Trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar mætti heim til mín eftir hádegið og kvað upp úr með að ég væri „klínískt heilbrigður“ og í kjölfarið hringdi yfirflugumferðarstjóri Flugmálastjórnar í mig og boðaði til vinnu. Eftir það samtal hringdi ég í fluglækni og fékk staðfest hjá honum að áhrif sterkra deyfilyfja gætu varað í allt að sex klukkustundir.


            Eftir að ég hafði gengið úr skugga um að áhrif deyfilyfjanna væru horfin taldi ég mér ekki annað fært, í ljósi starfsöryggis míns, en mæta til starfa þrátt fyrir að vera áfram með höfuðverk og ekki í raunverulegu standi til að vinna. Um kvöldið fór ég á læknavakt í Kópavogi og fékk vottorð læknis um að ég væri óvinnufær. Það skal tekið fram að ég skrifaði samdægurs skýrslu um málið í samræmi við venjulegar starfs- og öryggisreglur. Upplýsingar um atburðarásina hafa því legið fyrir hjá Flugmálastjórn allan tímann og ef undirmenn flugmálastjóra hafa ekki komið þeim á framfæri við æðsta yfirmann sinn segir það út af fyrir sig allt sem segja þarf um stjórnsýsluna á þessum bæ.


            Flugmálastjóri segir í bréfi sínu: „Staðreyndin er að tveir trúnaðarlæknar Flugmálastjórnar komust að þeirri niðurstöðu að ekkert væri því til fyrirstöðu að þessi starfsmaður kæmi til starfa á umræddum degi.“ Þetta er einfaldlega alrangt. Eini trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar skoðaði mig vissulega og taldi mig „klínískt heilbrigðan” þrátt fyrir þrálátan höfuðverk og vanlíðan. Í fluglækninn hringdi ég hins vegar sjálfur vegna lyfjanotkunarinnar eins og fyrr var nefnt og fráleitt er að sá hafi haft nokkrar forsendur til að kveða upp úr um heilsufarið á grundvelli þess sem okkur fór á milli.


            Staðreynd þessa máls er sú að ég var kallaður til vinnu án þess að vera hæfur til slíks af heilsufarsástæðum. Ég vildi ekki stefna starfsréttindum mínum og starfsöryggi í voða með því að hunsa kvaðningu til vinnu. Þess vegna lít ég svo á að ég hafi verið þvingaður til að starfa. Yfirmenn Flugmálastjórnar telja þetta hins vegar vera eðlilegt ástand á vinnustaðnum. Það segir sína sögu um viðhorf þeirra til starfsfólks og til mannlegra samskipta.“


            Sent fjölmiðlum að ósk Jóns Guðmundssonar 17. ágúst 2006,

            Loftur Jóhannsson,
            formaður Félags íslenkra flugumferðarstjóra
            sími 861 0050.

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Yfirlýsing í tilefni bréfs flugmálastjóra til Félags íslenskra flugumferðarstjóra 16. ágúst 2006

            vefstjori | | 21:14

                  

              „Bréf Þorgeirs Pálssonar, flugmálastjóra, til Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) bendir eindregið til þess að hann verði að læra að umgangast sannleikann aftilhlýðilegri virðingu. Sú fullyrðing FÍF, að ég hafi verið neyddur til að mæta ávinnustað veikur, er rétt og sönn. Ég var með slæman höfuðverk og illa sofinn að morgni 31. júlí, tilkynnti um veikindi, tók sterk verkjalyf (Parkódín forte) og lagði mig. Trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar mætti heim til mín eftir hádegið og kvað upp úr með að ég væri „klínískt heilbrigður“ og í kjölfarið hringdi yfirflugumferðarstjóri Flugmálastjórnar í mig og boðaði til vinnu. Eftir það samtal hringdi ég í fluglækni og fékk staðfest hjá honum að áhrif sterkra deyfilyfja gætu varað í allt að sex klukkustundir.


              Eftir að ég hafði gengið úr skugga um að áhrif deyfilyfjanna væru horfin taldi ég mér ekki annað fært, í ljósi starfsöryggis míns, en mæta til starfa þrátt fyrir að vera áfram með höfuðverk og ekki í raunverulegu standi til að vinna. Um kvöldið fór ég á læknavakt í Kópavogi og fékk vottorð læknis um að ég væri óvinnufær. Það skal tekið fram að ég skrifaði samdægurs skýrslu um málið í samræmi við venjulegar starfs- og öryggisreglur. Upplýsingar um atburðarásina hafa því legið fyrir hjá Flugmálastjórn allan tímann og ef undirmenn flugmálastjóra hafa ekki komið þeim á framfæri við æðsta yfirmann sinn segir það út af fyrir sig allt sem segja þarf um stjórnsýsluna á þessum bæ.


              Flugmálastjóri segir í bréfi sínu: „Staðreyndin er að tveir trúnaðarlæknar Flugmálastjórnar komust að þeirri niðurstöðu að ekkert væri því til fyrirstöðu að þessi starfsmaður kæmi til starfa á umræddum degi.“ Þetta er einfaldlega alrangt. Eini trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar skoðaði mig vissulega og taldi mig „klínískt heilbrigðan” þrátt fyrir þrálátan höfuðverk og vanlíðan. Í fluglækninn hringdi ég hins vegar sjálfur vegna lyfjanotkunarinnar eins og fyrr var nefnt og fráleitt er að sá hafi haft nokkrar forsendur til að kveða upp úr um heilsufarið á grundvelli þess sem okkur fór á milli.


              Staðreynd þessa máls er sú að ég var kallaður til vinnu án þess að vera hæfur til slíks af heilsufarsástæðum. Ég vildi ekki stefna starfsréttindum mínum og starfsöryggi í voða með því að hunsa kvaðningu til vinnu. Þess vegna lít ég svo á að ég hafi verið þvingaður til að starfa. Yfirmenn Flugmálastjórnar telja þetta hins vegar vera eðlilegt ástand á vinnustaðnum. Það segir sína sögu um viðhorf þeirra til starfsfólks og til mannlegra samskipta.“


              Sent fjölmiðlum að ósk Jóns Guðmundssonar 17. ágúst 2006,


              Loftur Jóhannsson,
              formaður Félags íslenkra flugumferðarstjóra
              sími 861 0050.

              Athugasemdir
              Comments Off
              -->
              Flokkar
              Fréttir

              Alþjóðasamtök lýsa áhyggjum

              vefstjori | 16. ágúst, 2006 | 13:29

                    INTERNATIONAL FEDERATION OF AIR TRAFFIC CONTROLLERS´ ASSOCIATIONS
                1255 University Street, Suite 408, Montreal (Quebec) H3B 3B6 CANADA
                Tel: +1 514 866 7040, Fax: +1 514 866 7612,  Email: office@ifatca.org



                August 16, 2006
                Mr. Thorgeir Pálsson
                Director General, Civil Aviation
                Flugmálastjórn Íslands
                Reykjavíkurflugvöllur
                101 Reykjavík
                Iceland

                Subject: Shift Dispute

                Dear Sir,

                The International Federation of Air Traffic Controllers´ Associations (IFATCA) is the independent, non-political and non-industrial professional association representing more than 50,000 air traffic controllers in 133 countries worldwide.  Among the aims of the Federation is the promotion of safety, efficiency and regularity in international air navigation, along with safeguarding the interests of air traffic controllers.  In order to accomplish our aims and objects, we closely co-operate with various other aviation authorities and institutions including the International Civil Aviation Organization (ICAO), the International Airline Pilots´ Association (IFALPA), the International Air Transport Association (IATA), the International Labor Organization (ILO), the International Transport Workers Federation (ITF), and Eurocontrol.


                I write to you today to express concern over the changes in the shift system at the Oceanic/Area Control Centre at Reykjavik. It is our understanding that there has been an agreement in place since 1997 between the Icelandic Air Traffic Controllers’ Association (ICEATCA) and the Iceland Civil Aviation Authority (ICAA) and that rosters had been prepared in accordance with this agreement. It is disappointing to learn that now, despite a rejection of proposed changes to the shift system by ICEATCA during negotiations in the summer of 2005, the ICAA has in fact changed the shift system effective 16 March 2006. One unfortunate result is a non-negotiated, arbitrary loss of approximately 30 off-days per year per controller.

                 

                The ATS environment is a demanding one where shift work is necessary and productivity essential.  Management has an obligation to provide a safe and healthy environment for its employees, and employees have a responsibility to maintain a healthy life-style and offer input into the conditions under which we carry out our daily duties. We will be better able to achieve our aims with a collaborative effort by employers/employees.

                 

                ”Staffing” is merely a process that determines number(s) of persons deemed necessary to carry out designated tasks and goals. But there is a darker side to staffing and shift work that can directly affect safety of air traffic and the health and well being of controllers. It is for this reason IFATCA encourages its Member Associations to be alert to scheduling programs such as Shift Logic that may produce longer shifts and disruptive variations of shift start and stop times, and to be prepared to offer a more palatable option(s). Shift Logic-type programs have potential to be un-sympathetic to social considerations when choosing work cycles and could negatively impact one’s daily life, both socially and professionally. This issue is extremely important to air traffic controllers because it has a direct bearing on our general well being, and therefore our on-the-job performance. It is particularly distressing to the controller community to learn that the Icelandic CAA will resort to forcing controllers on temporary sick leave to report for duty and utilizing them in operating positions. This practice flies in the face of all efforts of the international aviation community and your own CAA to embrace a true commitment to aviation safety. We are hard-pressed to find justification for such action. We urge the ICAA management to consider the participation of ICEATCA in the staffing process that includes such vitals as schedules and the real effects they have on the well-being of controllers, and to consider the importance of a healthy, happy work force when developing shift schedules. An erratic daily routine will eventually take a toll on the body and as license holders requiring regular medical validation these health issues cannot be ignored. The ICAO Global Aviation Safety Plan (GASP) focuses attention on current and future safety issues, and requires States to implement safety management programs, ensuring their ATS systems, including personnel, receive an appropriate level of consideration.

                 

                IFATCA supports ICEATCA in their objection to measures that could potentially hinder the ability to provide a safe, orderly and efficient air traffic control service in your country. We ask authorities in Iceland to consider the possible consequences should the skills of your air traffic control personnel be permitted to erode as a result of poorly designed scheduling. A highly skilled, well-trained controller workforce is essential to the air transport industry.

                 

                Assuring you Sir, highest regards,

                 

                Sincerely,


                Douglas R. Churchill

                Executive Vice-President Professional

                IFATCA

                 

                Cc: – Icelandic Air Traffic Controllers’ Association

                       – IFATCA Office

                       – original by post

                 

                Athugasemdir
                Comments Off
                -->
                Flokkar
                Fréttir

                Tvær lykilspurningar um flugöryggi – opið bréf til flugmálastjóra

                vefstjori | 13. ágúst, 2006 | 11:27

                  Reykjavík 8. ágúst 2006

                   

                  Hr. flugmálastjóri

                  Þorgeir Pálsson

                  Flugmálastjórn

                   

                  Tvær lykilspurningar um flugöryggi

                   

                  Félag íslenskra flugumferðarstjóra vísar til þess fáheyrða atburðar sem átti sér stað mánudaginn 31. júlí, þegar veikur flugumferðarstjóri var neyddur til að vinna við flugumferðarstjórn:


                  Í 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 441/1997, um starfsemi Flugmálastjórnar Íslands, segir m.a. um hlutverk hennar: Flugmálastjórn Íslands hefur eftirlit með því, að lögum, reglugerðum og fyrirmælum um flugstarfsemi sé framfylgt, með sérstakri áherslu á flugöryggi.

                  Þá segir í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, sbr. einnig 74. gr. laganna: Enginn flugverji eða annar starfsmaður má hafa með hendi starfa í loftfari, vera við stjórn loftfars, stjórna loftferðum eða veita öryggisþjónustu vegna loftferða sé hann vegna neyslu áfengis, örvandi eða deyfandi lyfja, vegna sjúkdóms eða þreytu eða annarrar líkrar orsakar óhæfur til að rækja starfann á tryggilegan hátt.

                  Með vísan til hlutverks Flugmálastjórnar, sbr. ofangreinda reglugerð, viljum við beina tveimur spurningum til þín, hr. flugmálastjóri, er varða flugöryggi:

                  1)  Telur þú að flugumferðarstjóri sem telur sig tímabundið óhæfan til að sinna starfi sínu við flugumferðarstjórn á grundvelli 37. gr. laga um loftferðir eigi samt að mæta til vinnu og sinna störfum sínum frekar en að tilkynna forföll?

                  2)  Telur þú að það væru ásættanleg, jafnvel æskileg vinnubrögð að stjórnendur íslenskra flugfélaga færu að fordæmi Flugmálastjórnar og þvinguðu flugmenn sína veika til að fljúga með farþega?

                  Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur talið að þú, hr. flugmálastjóri, deildir með félaginu þeim metnaði fyrir hönd íslenskrar flugumferðarþjónustu að hún verði ekki aðeins rekin með hagkvæmnissjónarmið í huga heldur einnig, og umfram allt, af fullkomnu öryggi.  Félagið hefur því ástæðu til að ætla að ákvörðun um að þvinga veikan flugumferðarstjóra til vinnu hafi verið tekin án þinnar vitundar og samþykkis.

                  Félagið fer fram á að þú lýsir því yfir að slíkt muni ekki gerast aftur.

                  Virðingarfyllst,



                  Loftur Jóhannsson  formaður FÍF
                  Stefán B. Mikaelsson  ritari FÍF

                   

                  Athugasemdir
                  Comments Off
                  -->
                  Flokkar
                  Fréttir

                  Opið bréf til samgönguráðherra – frá grasrótinni

                  vefstjori | 3. ágúst, 2006 | 18:25

                        

                    Hr. Sturla Böðvarsson

                     

                    Ég heiti Grétar Reynisson,  er flugumferðarstjóri, ráðinn til þeirra starfa fyrir um þrjátíu árum og nú síðustu árin í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.

                     

                    Kveikja þessara skrifa eru orð þín í fréttum RUV  kl.07:00  1. ágúst á þá leið að vilji sé hjá forsvarsmönnum flugumferðarstjóra að hnekkja niðurstöðu Félagsdóms.  Þarna er sá sem bera ætti klæði á vopnin full hlutdrægur. Mér  og auðvitað þér líka er fullkunnugt um að dómnum verður ekki hnekkt og engir tilburðir í þá átt hjá einstaka starfsmönnum eða forsvarsmönnum þeirra þó svo starfsfólk afþakki aukavinnu.  

                     

                    Ég er ekki einn af “forsvarsmönnum flugumferðarstjóra” og hef aldrei verið, þetta kemur þá bara frá grasrótinni.

                     

                    Ástandið sem nú ríkir í flugstjórnarmiðstöðinni á sumarleyfistíma og þegar umferð er mest  virðist eingöngu til komið vegna þess að starfsmenn þiggja ekki yfirvinnu, og er ég einn af þeim en hef þó síðastliðna þrjá áratugi ávallt verið í hópi þeirra sem viljugastir hafa verið til að sinna aukavinnu,  allt  til síðustu áramóta. Hvað breyttist ? Jú , ástæðan er vaktakerfi sem fækkaði frídögum mínum um 30 á ári án þess að greiðsla kæmi fyrir. Og ekki bætti úr skák framsetning þess af millistjórnendum flugmálastjórnar (bæði fyrir og eftir niðurstöðu félagsdóms). Það var greinilegt að ekki átti að semja, og fólki jafnvel bent á að minnka bara vinnuprósentu sína ef það vildi jafn marga frídaga og áður, með tilheyrandi launaskerðingu auðvitað!

                     

                    Hugsanlega má sýna á súluritum sparnað með nýja vaktkerfinu og væntanlega hafa þeir sem stokkuðu það upp haft hagræðingu í huga við samningu þess, alla vega virðist öryggið ekki  ofarlega á blaði og ennþá síður starfsmenn og fjölskyldur þeirra. Það er  kannski ljótt að segja það, en fjandsamleg framsetning sem og harkaleg framkvæmd þessara breytinga minna mig stundum á frásagnir af leysingjum sem komist hafa í álnir og hatast við uppruna sinn og gera allt til þess að breiða yfir hann, en “primus motorar” og höfundar þessara breytinga eru jú fyrrverandi flugumferðarstjórar sem eflaust ætla sér stóra hluti hjá hinu nýstofnaða fyrirtæki Flugstoðir ohf, þrátt fyrir að hugsanlegir leiðtogahæfileikar þeirra hafi ekki notið sín upp á síðkastið.

                     

                    Ég minnist þess frá árum áður að þegar hringt var í mig á frídögum og ég beðinn að mæta aukalega vegna vaxandi umferðar, “allt að verða vitlaust”   hét það stundum, þá var ég oftar en ekki mættur á staðinn reykspólandi rétt kominn í aðra peysuermina, til að hjálpa til við að bjarga málunum. Bara fyrir réttu ári síðan var það sjálfsagt mál að mæta aukalega,jafnvel breyta dagvakt í næturvakt eða að koma til vinnu einhverjum klukkustundum fyrr en vaktskrá sagði til um, sem sagt liðka  til, hjálpast að. Og að minnsta kosti var ég stoltur af því þegar vel hafði gengið eftir annasaman dag. Enda gekk þetta vel, millistjórnendur og  aðrir starfsmenn unnu saman að því að þjónustan væri sem best.

                     

                    Núna hinsvegar, á örfáum mánuðum er ástandið breytt til hins verra, þarna vinna 

                    „þeir og við“ , enginn gerir meira en það sem skyldan segir, allur sveigjanleiki og „goodwill“ á brott. Svona myndi ég ekki vilja reka það fyrirtæki sem á að taka við starfseminni næstu áramót.

                     

                    Ég vinn vaktavinnu, veit allt um það og ekki síður konan mín og börnin. Mig langar samt að setja upp smá dæmi fyrir þá sem vinna hefðbundinn vinnutíma: Þú mátt mæta hálfri klukkustund seinna á hverjum degi en mætir svo einn dag aðra hvora helgi!!!!!!!!!  (óbreytt laun) en eins og mínir yfirmenn sögðu á starfsmannafundum þegar maldað var í móinn: „Jú þetta er betra fyrir þig“.

                     

                    Í mínum huga er þó enginn vafi hver á að stjórna fyrirtækinu, til þess valdir yfirmenn og ekki ætlun mín að véfengja það en…………það er hægt að stjórna og það er hægt að „stjórna“  en þeir sem núna skipa fyrir í flugstjórnarmiðstöðinni virðast komnir  í blindgötu án þess að finna bakkgírinn.

                     

                    Mín bón til þín hr. samgönguráðherra er því einföld: að þú vinsamlegast horfir á málið ekki bara ofan frá úr valdastiganum, heldur líka af hliðarlínunni þaðan sem ég og aðrir óbreyttir starfsmenn og fjölskyldur þeirra fylgjast með 30 frídögum á ári fjúka burtu, bótalaust.

                     

                    Með samstarfskveðjum

                     

                    GRÉTAR REYNISSON

                    flugumferðarstjóri  #1877

                    Athugasemdir
                    Comments Off
                    -->
                    Flokkar
                    Fréttir

                    Að gefnu tilefni.

                    vefstjori | 2. ágúst, 2006 | 22:17

                          

                      Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, segir: Enginn flugverji eða annar starfsmaður má hafa með hendi starfa í loftfari, vera við stjórn loftfars, stjórna loftferðum eða veita öryggisþjónustu vegna loftferða sé hann vegna neyslu áfengis, örvandi eða deyfandi lyfja, vegna sjúkdóms eða þreytu eða annarrar líkrar orsakar óhæfur til að rækja starfann á tryggilegan hátt.

                       

                      Í 1. mgr. 15. gr. laga no. 53/1988, læknalaga, segir: Lækni ber að gæta fyllstu þagmælsku og hindra það að óviðkomandi fái upplýsingar um sjúkdóma og önnur einkamál er hann kann að komast að sem læknir.


                      Í 12. gr. laga no 74/1997, um réttindi sjúklinga, segir: Starfsmaður í heilbrigðisþjónustu skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þagnarskyldan helst þó að sjúklingur andist og þó að starfsmaður láti af störfum. Mæli ríkar ástæður með því getur starfsmaður látið í té upplýsingar með hliðsjón af vilja hins látna og hagsmunum hlutaðeigandi. Sé starfsmaður í vafa getur hann borið málið undir landlækni.


                      Siðareglur Læknafélags Íslands fyrir trúnaðarlækna

                      Af heimasíðu Læknafélags Íslands http://www.lis.is/Items/Default.aspx?b=19

                      1.01 Trúnaðarlæknir veitir forráðamönnum fyrirtækja og stofnana ráðgjöf varðandi læknisfræðileg málefni viðkomandi rekstri.

                      1.02 Trúnaðarlæknir veitir ráðgjöf vegna fjarvista starfsmanna í veikinda- og slysatilfellum, meðal annars varðandi læknisvottorð.

                      1.03 Trúnaðarlæknir fyrirtækis gefur ekki út læknisvottorð starfsmanna til fyrirtækisins. Vottorð til vinnuveitenda skulu þannig gerð, að heimilislæknir haldi ætíð afriti af því. Ef útgefandi er annar en heimilislæknir, ber honum að senda heimilislækni afrit.

                      1.04 Sé þess óskað, ber trúnaðarlækni að útvega staðgengil í orlofi, lengri námsfríum og veikindaforföllum.

                      1.05 Ef aðilar eru sammála um slíkt, getur trúnaðarlæknir annast reglubundið heilsufarseftirlit meðal starfsfólks, enda verði um það samið sérstaklega.

                      1.06 Í samráði við vinnuveitanda ákveður trúnaðarlæknir nánar um alla framkvæmd á heilsufarseftirliti (sbr. 1.05).

                      1.07 Trúnaðarlæknir býður upp á fastan viðverutíma í húsnæði fyrirtækis eða stofnunar með 100 starfsmenn eða fleiri.

                      1.08 Trúnaðarlækni er skylt að gæta hagsmuna starfsmanna varðandi allt, sem gæti spillt heilsu þeirra í starfi. Samráð skal haft við Vinnueftirlit ríkisins, þegar ástæða þykir til.

                      1.09 Trúnaðarlæknir gegnir ekki hlutverki heimilislæknis fyrir starfsfólk. Honum ber ekki skylda til að sinna veikindum eða slysatilfellum, sem upp koma, nema í neyðartilvikum, enda hafi viðkomandi aðgang að heimilislækni eða slysadeild. Æskilegt er, að trúnaðarlæknir sé ekki jafnframt heimilislæknir starfsmanna fyrirtækisins.

                      1.10 Í starfi sínu fer trúnaðarlæknir ávallt eftir ákvæðum siðareglna lækna og læknalaga.

                      Athugasemdir
                      Comments Off
                      -->
                      Flokkar
                      Fréttir

                      Tenglar



                      Félag íslenskra flugumferðarstjóra

                      Grettisgata 89
                      101 Reykjavík
                      GSM: 861-0050
                      Fax: 525-8309
                      iceatca (hjá) iceatca.com

                      Innskráning



                      • Týnt lykilorð?
                      Síða 1 af 212»
                      OPEX