• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

VINNUFUNDUR Á VEGUM EUROCONTROL

vefstjori | 26. september, 2006 | 10:46

                Nú liggur fyrir að ráðgerður vinnufundur Eurocontrol með flugumferðarstjórum í flugstjórnarmiðstöðinni] verður haldinn 10- 12 otóber n.k. á Hótel Rangá. Vinnufundurinn er öllum opinn  (þ.e. þeim sem að máli þessu koma). Gert er ráð fyrir að lagt verði af stað með rútu kl. 0900 þriðjudaginn 10. október frá Flugmálastjórn og frá Hótel Rangá verði síðan lagt af stað í bæinn aftur kl. 1330 fimmtudaginn 12. október þannig að þetta verður töluverð törn fyrir þá sem taka þátt. Tiltekið er að fyrir fæði og gistingu verður greitt af Flugmálastjórn.

    Samkvæmt upplýsingum Eurocontrol er hæfilegur fjöldi á fundi sem þessum talinn vera um 20 manns. Þetta þýðir að takmarka verður þáttöku með einhverjum hætti ef áhugi reynist mikill. Tek ég það óvinsæla hlutverk að mér og mun ég miða við að ná fram sem breiðastri þátttöku starfsmanna, ef nota má það vonda orðalag. Viðmið mín verða aldur, starfsaldur, fjölskylduhagir og staða ásamt því að taka verður tillit til þarfa stjórnar FÍF, trúnaðarmanns og yfirstjórnar Flugumferðarsviðs og starfsmannahalds.

    Vil ég hér með bjóða öllum sem áhuga hafa að skrá sig til þátttöku á þessum mjög svo þýðingarmikla vinnufundi. Líkur eru á að hann geti skipt miklu máli fyrir starfsaðstæður ykkar í framtíðinni. Vinsamlegast sendið beiðni um þátttöku á netfangið: johann.gudmundsson@sam.stjr.is. Eftirfarandi þarf að taka fram, en ég ítreka að þessar upplýsingar verða aðeins og eingöngu notaðar ef takmarka þarf fjölda:

    a. Nafn
    b. Aldur
    c. Starfsaldur
    d. Fjölskylduhagir
    e. Stöðu þ.m.t. innan FÍF og trúnaðarm.

    Senda þarf inn beiðni um þátttöku fyrir kl. 1400 n.k. föstudag á netfang mitt johann.gudmundsson@sam.stjr.is.

    Í meðfylgjandi tveimur skjölum Eurocontrol er annars vegar upplegg Eurocontol fyrir allt verkefnið þ.e. lokaútfærsla skjalsins sem afhent var í drögunum á sameiginlega fundinum um daginn og síðan drög að dagskrá vinnufundarins. Held ég að þessi rit skýri sig sjálf en tiltek að dagskrá vinnufundarins getur eitthvað breyst þ.e. fyrst og fremst skipting milli daga því einhverjar breytingar á fundartíma urðu eftir að ég fékk hana. Einnig vil ég taka fram að fátt er sagt um matar- og kaffitíma en auðvitað koma þeir þarna inn á réttum stöðum. Þið athugið að þeir Eurocontrol menn bjóða með sér tveimur sérfræðingum þ.e. félögunum Finn Quist Andersen (ATS Data Design Rep frá DK) og Erik Hirschfeld, Dept. Head of OPS Malmö ACC

    Með kveðju og gangi ykkur vel
    Jóhann Guðmundsson, samgönguráðuneytinu 

    Flugmálastjórn hefur staðfest að þeir starfsmenn sem þátt taka í vinnufundinum í frítíma sínum, þ.e. hafa ekki verið leystir af vöktum, fái 8 klst. fyrir fyrri tvo dagana og 4 klst fyrir þriðja daginn bætt við orlofsinneign sína.
    Loftur

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    vefstjori | | 10:38

          mknph 

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Eindaga frestað til 15. október 2006

      vefstjori | | 10:11

            Í bréfi formanns stjórnar Flugstoða ohf, dags. 27. ágúst 2006, sem sent var öllum flugumferðarstjórum hjá Flugmálastjórn Íslands var þeim boðið starf hjá Flugstoðum ohf frá og með 1. janúar 2006 og veittur frestur til 1. október 2006 til að taka ákvörðunar um hvort þeir þægju boðið. Þessum eindaga hefur nú verið frestað til 15. október 2006.

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Félagsfundur

        vefstjori | 6. september, 2006 | 22:15
          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Laun samkvæmt ráðningarsamningum

          vefstjori | 3. september, 2006 | 20:55

                

            Félagar í FÍF

             

            Varðar: Starfsheiti í ráðningarsamningi og greiðslu launa

             

             

            29. nóvember 2004 var kveðinn upp  úrskurður í samgönguráðuneytinu í stjórnsýslumáli nr. 14/2004 http://samgonguraduneyti.is/Urskurdir/nr/773 . Einnig er vísað til álits Umboðsmanns Alþingis í máli nr. 4355/2005 varðandi sama efni http://www.umbodsmaduralthingis.is/skyrslur/skoda.asp?Lykill=1163&Skoda=Mal .

             

            Í hnotskurn snýst málið um það að Flugmálastjórn greiddi viðkomandi flugumferðarstjóra ekki laun í samræmi við ráðningarsamning sem gerður var við hann í upphafi árs 1996. Í ráðningarsamningnum, sem gerður var í framhaldi af því að meirihluti flugumferðarstjóra sagði upp störfum sínum 1995 og voru endurráðnir 1996, kemur fram að flugumferðarstjórinn er ráðinn sem „varðstjóri“. Þegar laun varðstjóra voru hækkuð með kjarasamningum 1997 voru laun flugumferðarstjórans ekki hækkuð til samræmis við kjarasamning. Í úrskurði ráðuneytisins í stjórnsýslumáli 14/2004 er fallist á kröfu flugumferðarstjórans um að laun hans verði leiðrétt frá 1. desember 1997. Álit umboðsmanns í máli 4355/2005 staðfestir þessa niðurstöðu.

             

            FÍF er kunnugt um að all nokkur fjöldi flugumferðarstjóra muni vera í sömu stöðu. Félagið hyggst nú leita réttar þeirra félaga sem voru ráðnir sem varðstjórar í janúar 1996 en hafa ekki fengið greidd laun í samræmi við laun varðstjóra skv. kjarasamningi frá því í desember 1997, eða einhvern hluta þess tíma sem síðan er liðinn.

             

            Þeir flugumferðarstjórar sem þetta á líklega við eru þeir sem komnir voru með 10 ára starfsaldur í janúar 1996. Nauðsynlegt er að félaginu (stjórn) berist afrit af ráðningarsamningum þeirra flugumferðarstjóra sem um er að ræða hið fyrsta. Athugið að þetta á við flugumferðarstjóra í Keflavík jafnt og hjá Flugmálastjórn Íslands.

             

            F.h. stjórnar FÍF

            Loftur Jóhannsson
            formaður

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Félagsfundur FÍF

            vefstjori | | 15:20

                  Dagskrá:
              Aðilaskipti: Flugmálastjórn – Flugstoðir
              Vaktamál: EUROCONTROL -úttekt
              Önnur mál
              Stjórnin

              Athugasemdir
              Comments Off
              -->
              Flokkar
              Fréttir

              Tenglar



              Félag íslenskra flugumferðarstjóra

              Grettisgata 89
              101 Reykjavík
              GSM: 861-0050
              Fax: 525-8309
              iceatca (hjá) iceatca.com

              Innskráning



              • Týnt lykilorð?
              OPEX