• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Ákveðið að selja húseignina í Borgartúni

vefstjori | 29. janúar, 2007 | 21:14

        Á félagsfundi FÍF 29. janúar var eftirfarandi ályktun einróma samþykkt: Félagsfundur FÍF 29. janúar 2007 samþykkir að fela stjórn FÍF að ganga frá sölu á félagshúsnæði FÍF í Borgartúni 28 til ÞG verktaka í samræmi við tilboð ÞG til FÍF dags. 22. jan. 2007.
    Tilboð ÞG verktaka hljóðaði uppá 44,4 milljónir kr. og skyldu 31,4 milljónir greiðast við undirritun kaupsamnings en afgangurinn, 13 milljónir, við afhendingu eignarinnar. Afhendingartími verður eftir nánara samkomulagi.

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Félagsfundur mánudaginn 29. janúar

    vefstjori | 25. janúar, 2007 | 10:50

      Félagsfundur FÍF verður haldinn í Borgartúni mánudaginn 29. janúar kl. 20. Félaginu hefur borist kauptilboð í eignina í Borgartúni sem stjórnin hefur samþykkt með fyrirvara um samþykki félagsfundar. Á fundinum verður tilboðið kynnt og atkvæði greidd um hvort ganga eigi að því.

      Dagskrá:



      1. Kauptilboð í eign FÍF í Borgartúni kynnt og atkvæði greidd um hvort ganga eigi að því.

      2. Önnur mál.

      Mætum öll!

      Stjórnin

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Reglur um sjúkrasjóð

      vefstjori | 5. janúar, 2007 | 12:25

            

        Á fundi stjórnar sjúkrasjóðs FÍF 18. september sl. var samþykkt að breyta reglum sjóðsins þannig að ein grein bætist við í lokin, 8. grein. Hún er svohljóðandi: “Heimilt er að greiða til heilsueflingar jafna upphæð til allra félagsmanna sé staða sjóðsins metin þannig.” Þessari grein er bætt við til að laga reglur sjóðsins að þeirri framkvæmd sem þegar hefur verið tíðkuð.

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Leiðbeiningar til flugumferðarstjóra sem aðild eiga að B-deild LSR.

        vefstjori | | 10:31

                  

          Vegna breytinga sem urðu skv. lögum um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands nr. 102/2006 þurfa þeir flugumferðarstjórar sem aðild áttu að B-deild LSR í árslok 2006 að sækja um einstaklingsaðild að sjóðnum.

          Flugumferðarstjórar sem eiga aðild að A-deild sjóðsins halda henni óbreyttri a.m.k. til febrúarloka 2008.

           

          Úr reglum sjóðsins um áframhaldandi aðild vegna niðurlagningar starfs.

           

          Umsókn og fylgigögn

          Umsókn um áframhaldandi aðild að B-deild LSR vegna niðurlagningar á starfi skal að jafnaði berast í beinu framhaldi af niðurlagningu á starfi, vera skrifleg og beint til stjórnar.

          Með umsókn samkvæmt 1. mgr. skulu fylgja eftirtalin gögn:

          Staðfesting launagreiðanda á því að viðkomandi starf hafi verið lagt niður og á hvaða tíma.

          Staðfesting á þeim launum sem síðast var greitt af til sjóðsins, þ.e. kjarasamningi, launaflokki og þrepi eða sambærilegri kjaraákvörðun. Ef greidd eru biðlaun þá þarf að liggja fyrir staðfesting á fjárhæð þeirra og hvenær þeim greiðslum lýkur.

           

          Á heimasíðu LSR undir flipanum eyðublöð má finna Umsókn um áframhaldandi aðild að B-deild LSR og LH ( einstaklingsaðild ). Þetta eyðublað þarf að útfylla og skila til LSR sem fyrst ásamt tilgreindum fylgigögnum (bréf flugmálastjóra frá því í ágúst 2006 þar sem hann tilkynnir að starfið sé lagt niður og síðasti launaseðill).

           

          Að öðru leyti vísast til starfsmanna sjóðsins um leiðbeiningar.

           

          Stjórn FÍF

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Samkomulag um lífeyrismál undirritað

          vefstjori | 3. janúar, 2007 | 21:46

            Í kvöld var samkomulag um lífeyrismál undirritað af stjórn FÍF og fulltrúum Flugstoða. Hvorir tveggja hafa lýst yfir ánægju með að samkomulagið sé í höfn svo hægt sé að snúa sér að daglegum rekstri á ný. Búist er við því að á morgun, 4. janúar, muni þeir flugumferðarstjórar sem ekki hafa ráðið sig hjá Flugstoðum ganga til liðs við félagið og flugumferð á íslenska svæðinu fara í eðlilegt horf.

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Félagsfundur 3. janúar

            vefstjori | 2. janúar, 2007 | 21:42

                  

              Félagsfundur FÍF verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 3. janúar 2007 kl. 13:00.


              Dagskrá


              1. Kosning um umboð til stjórnar FÍF til að ganga frá samningum við Flugstoðir um lífeyrismál.
              2. Önnur mál.

              Vegna óviðráðanlegra orsaka reyndist ekki hægt að boða fundinn með meiri fyrirvara og er beðist velvirðingar á því.


              Kveðja,

              Stjórnin

              Athugasemdir
              Comments Off
              -->
              Flokkar
              Fréttir

              Trúnaðarmaður í Keflavík lýsir áhyggjum

              vefstjori | 1. janúar, 2007 | 15:32

                Keflavíkurflugvöllur 31. des 2006

                Meirihluti starfsmanna flugumferðarþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli er mjög áhyggjufullur yfir því ástandi sem mun skapast er viðbúnaðaráætlun Flugstoða ohf. verður sett í gang nú eftir miðnættið.  Starfsmenn telja sig ekki hafa fengið þá kennslu né búa yfir nægilegri þekkingu sem þarf til að vinna á móti AFIS flugvelli með óstjórnuðu loftrými.  Við tökum heilshugar undir orð öryggisnefndar FÍF og öryggisnefndar FÍA sem hafa lýst yfir áhyggjum sínum að flugöryggi muni skerðast með skertri þjónustu.  Sérstaklega tökum við undir orð öryggisnefndar FÍA “Öryggisnefndin varar sérstaklega við þeim hættum sem skapast geta á og við Reykjavíkurflugvöll.”
                Einnig er ljóst að meirihluti þeirra flugumferðarstjóra sem eiga að vinna á móti okkur í flugstjórnarmiðstöðinni hafa ekki unnið við starfið í langan tíma og hafi ekki fengið fullnægjandi þjálfun á núverandi aðstæður.  Okkur þykir afar einkennilegt að að jafnaði taki það góðan mánuð hið minnsta að fá ratingu í centerinu t.d. eftir barnsburðarleyfi, en nú eru menn útskrifaðir án þess að þurfa að vinna umferð í lifandi umhverfi.  Og séu því í raun alls ekki tilbúnir að takast á við þá umferð og álag er getur skapast.
                Við munum þar af leiðandi beita ítrustu varkárni í öllum samskiptum og samvinnu við flugstjórnarmiðstöðina.  Einnig teljum við að enn séu spurningum ósvarað er snúa að Reykjavíkurflugvelli og því vinnulagi er á að nota þar.
                Ljóst er að við erum að vinna á okkar ábyrgð og ef við teljum að öryggi sé ónógt munum við bregðast við því.

                Með vinsemd og virðingu,

                Fyrir hönd starfsmanna flugumferðarþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli

                Einar Gunnar Karlsson trúnaðarmaður

                Athugasemdir
                Comments Off
                -->
                Flokkar
                Fréttir

                Öryggisnefnd FÍF sendir samgönguráðherra bréf

                vefstjori | | 11:03

                      

                  Reykjavík 31.desember 2006 

                   

                   

                  Samgönguráðherra

                  Hr. Sturla Böðvarsson

                   

                  Öryggisnefnd FÍF lýsir yfir áhyggjum yfir þeim aðstæðum sem eru í uppsiglingu við aðilaskipti í íslenska flugumferðarstjórnarsvæðinu nú um áramót.  Nefndin fær ekki betur séð en að flugöryggi muni skerðast verulega ef að til þess kemur að viðbúnaðaráætlun Flugstoða ohf verður virkjuð og látin ganga í einhvern tíma.  Ekki einasta verður þá sett í framkvæmd áætlun sem er í senn flókin og lítt kunn þeim sem eiga að vinna eftir henni, heldur er svo að sjá að hún eigi að framkvæmast með hugsanlega mikilli flugumferð af afar fáum flugumferðarstjórum. 

                   

                  Nefndin hefur sérstaklega áhyggjur af flugöryggi í innanlandsdeild og í nágrenni flugvallanna í Reykjavík og á Akureyri.  Að halda því fram að flugöryggi skerðist ekkert við það að fækka verulega starfsfólki sem sinnir annars einmitt því, og leggja niður ratsjárþjónustu, öll venjuleg talviðskipti við flugvélar og í raun flugumferðarstjórn eins og til stendur er auðvitað fásinna.

                   

                  Gífurlegur árangur hefur náðst í flugöryggismálum í hinum vestræna heimi á síðustu áratugum og er það fyrst og fremst að þakka fólki sem aldrei hefur sætt sig við neinar málamiðlanir í þessum efnum.  Því má það ekki gerast nú á fyrstu starfsdögum hins nýja félags Flugstoða ohf að þeim frábæra árangri sem við Íslendingar höfum náð á þessu sviði sé einfaldlega kastað fyrir borð.  Hinn fljúgandi almenningur sættir sig ekki við neitt minna en að á hverjum tíma sé öryggi hans og velferð í fyrirrúmi.  Fagfólki í flugheiminum finnst það líka sjálfsagt.

                   

                  Öryggisnefnd FÍF skorar því á Samgöngu- og Flugmálayfirvöld að grípa þegar í stað til ráðstafana sem megi verða til þess að ekki þurfi að koma til þess að viðbúnaðaráætlunin verði virkjuð og flugöryggi í íslenska flugstjórnarsvæðinu og nágrenni þess ógnað að óþörfu.

                   

                   

                  Virðingarfyllst,

                   

                  Öryggisnefnd FÍF,

                   

                  Óskar Óskarsson,

                  Einar Hilmarsson,

                  Kjartan Halldórsson,

                  Hilmar Magnússon.

                  Athugasemdir
                  Comments Off
                  -->
                  Flokkar
                  Fréttir

                  Trúnaðarmaður í Keflavík lýsir áhyggjum

                  vefstjori | | 10:49

                            Keflavíkurflugvöllur 31.des 2006.
                     
                    Meirihluti starfsmanna flugumferðarþjónustunar á Keflavíkurflugvelli er mjög áhyggjufullur yfir því ástandi
                    sem mun skapast er
                    viðbúnaðaráætlun Flugstoða ohf verður sett í gang nú eftir miðnættið. Starfsmenn
                    telja sig ekki hafa fengið þá kennslu né búa yfir nægilegri þekkingu sem þarf til að vinna á móti
                    AFIS flugvelli með óstjórnuðu loftrými. Við tökum heilshugar undir orð öryggisnefndar FÍF og
                    öryggisnefndar FÍA sem hafa lýst yfir áhyggjum sínum að flugöryggi muni skerðast með skertri þjónustu.
                    Sérstaklega tökum við undir orð öryggisnefndar FÍA “
                    Öryggisnefndin varar sérstaklega við þeim hættum
                    sem skapast geta á og við Reykjavíkurflugvöll.”
                    Einnig er ljóst að meirihluti þeirra flugumferðarstjóra sem eiga að vinna á móti okkur í flugstjórnarmiðstöðinni
                    hafi ekki unið við starfið í langan tíma og hafi ekki fengið fullnægjandi þjálfun á núverandi aðstæður. Okkur
                    þykir afar einkennilegt að að jafnaði taki það góðan mánuð hið minnsta að fá ratingu í centerinu t.d. eftir
                    barnsburðarleyfi, en nú eru menn úskrifaðir út án þess að þurfa að vinna umferð í lifandi umhverfi. Og séu
                    því í raun alls ekki tilbúnir að takast á við þá umferð og álag er getur skapast.
                    Við munum þarf af leiðandi beita ítrustu varkárni í öllum samskiptum og samvinnu við flugstjórnarmiðstöðina.
                    Einnig teljum við að en séu spurningum ósvarað er snúa að Reykjavíkurflugvelli og því vinnulagi er á að
                    nota þar.
                    Ljóst er að við erum að vinna á okkar ábyrgð og ef við teljum að öryggi sé ónógt munum við bregðast við því.
                    Með vinsemd og virðingu fyrir hönd starfsmanna flugumferðarþjónustunar á Keflavíkurflugvelli.
                    Einar Gunnar Karlsson trúnaðarmaður.

                    Athugasemdir
                    Comments Off
                    -->
                    Flokkar
                    Fréttir

                    Tenglar



                    Félag íslenskra flugumferðarstjóra

                    Grettisgata 89
                    101 Reykjavík
                    GSM: 861-0050
                    Fax: 525-8309
                    iceatca (hjá) iceatca.com

                    Innskráning



                    • Týnt lykilorð?
                    OPEX