• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Félagsfundur – kynningarfundur

vefstjori | 22. mars, 2007 | 21:40

                Auk félaga opinberra starfsmanna eiga sambönd og félög starfsmanna fyrirtækja og stofnana sem starfa í almannaþágu rétt til aðildar að BSRB.

     

    Á skrifstofu BSRB starfa 10 starfsmenn sem annast ýmis störf fyrir samtökin og aðildarfélög þess. Meðal þess sem skrifstofan annast er hagfræðiþjónusta og lögfræðiþjónusta við félögin. Þá gefur bandalagið út BSRB-tíðindi og miðlar upplýsingum í formi upplýsingablaða til félaganna. Auk þess sér skrifstofan um alhliða upplýsingaþjónustu við félagsmenn í aðildarfélögum BSRB, svo sem upplýsingar um réttindi og kjör, samninga og ýmislegt fleira.

     

    Eins og félagsmönnum er kunnugt hefur stjórn FÍF verið að skoða hugsanlega aðild félagsins að BSRB. Á síðasta aðalfundi kvörtuðu félagar yfi því að hafa ekki nægar upplýsingar til að taka afstöðu til aðildarumsóknar. BSRB hefur orðið við beiðni stjórnar um að halda annan upplýsingafund með félögum í FÍF. Á fundinn mæta Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Vernharð Guðnason formaður Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands ásamt starfsmönnum BSRB. Félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér hvað felst í aðild að sambandinu og þá aðstöðu sem byggð hefur verið upp í húsi sambandsins á Grettisgötu 89.    

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Tenglar



    Félag íslenskra flugumferðarstjóra

    Grettisgata 89
    101 Reykjavík
    GSM: 861-0050
    Fax: 525-8309
    iceatca (hjá) iceatca.com

    Innskráning



    • Týnt lykilorð?
    OPEX