• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Jólakveðja frá FÍF

vefstjori | 22. desember, 2007 | 12:39

        

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Hundrað þúsundasta flugvélin á árinu fer um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið í dag og hafa frá upphafi aldrei verið fleiri á einu ári

    vefstjori | 11. desember, 2007 | 10:19

          

      Hundrað þúsundasta flugvélin á árinu fer um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið í dag og hafa frá upphafi aldrei verið fleiri á einu ári.

       

      Ætla má að um svæðið fari alls um 105.000 vélar á öllu árinu 2007, sem er um 43% aukning umferðar á aðeins tíu árum. 

       

      Á sama tíma og umferðin um íslenska flugstjórnarsvæðið eykst gríðarlega hefur fjöldi flugumferðarstjóra við störf hins vegar haldist nánast óbreyttur, með tilheyrandi álagi á þá og aðra góða starfsmenn í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.

       

      Flugumferðarstjórar sjá ástæðu til þess að nefna framangreint á þessum merkilegu tímamótum og vekja jafnframt athygli á því að áfallalaus aukning flugumferðar er ekki sjálfgefin. Í því sambandi má benda á skýrslu nefndar á vegum samgönguráðherra frá árinu 1997 um störf flugumferðarstjóra. Þar kom fram að á tímabilinu 1987-1997 hefði flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið aukist um 35%. Á sama tíma hefði fjöldi flugumferðarstjóra hins vegar verið nánast óbreyttur. Þessari umferðaraukningu var mætt með auknu vinnuframlagi flugumferðarstjóra, betri tæknibúnaði og hagræðingu í vinnuskipulagi. Einnig kom fram í skýrslunni að miklar kröfur væru gerðar til flugumferðarstjóra um árvekni og fumlausa starfshætti á álagstímum.

       

      Þessar kröfur hafa leitt til þess að flugumferðarstjórar þurfa að hætta störfum fyrr en aðrir launamenn á vinnumarkaðinum.  Þá felst í starfinu að vinna verður á vöktum og vinnuálag er oft á tíðum meira en almennt gerist.

       
      Fáir verða varir við árangur erfiðis flugumferðarstjóra í starfi sínu „á bak við tjöldin“. Þannig á það líka að vera og  bendir þá ekki til annars en að þeir skili verkum sínum af prýði. Það sem bent er hér á er hins vegar alþjóðlegt vandamál, því miður. Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra hafa þannig verulegar áhyggjur af því að flugumferðarstjórum við störf víða um heim fjölgi ekki í samræmi við aukin umsvif í fluginu. Þetta eykur álag á starfsmenn við flugumferðarstjórn með tilheyrandi hættu á þreytu og streitu og getur, eðli málsins samkvæmt, haft áhrif á flugöryggi.

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Umsóknir um Gullhvamm vorið 2008

      vefstjori | 5. desember, 2007 | 22:18

            Umsóknum um Gullhvamm skal skila gegnum heimasíðu FÍF fyrir miðnætti föstudaginn 19.desember  2007.

        Smelltu hér til að sækja um. Einnig er hægt að finna umsóknareyðublaðið undir liðnum Umsókn um orlofshús.

         

        Vortímabilið stendur frá föstudegi 4.janúar til föstudags 16.maí 2008.  Sótt er um eina helgi sem aðalval og allt að 3 helgar til vara.

         

        Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl.1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl.1500. 

         

        Verð fyrir helgi í Gullhvammi er kr.6500kr.  Virka daga er verðið 1000 kr. p.dag.

         

        Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktastaðan er jöfn.  Punktastöðuna er hægt að skoða á heimasíðu FÍF.

         

        Byrjað veður að taka við umsóknum mánudaginn 6 desember.

         

        Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar SM, SJ eða SO.

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Tenglar



        Félag íslenskra flugumferðarstjóra

        Grettisgata 89
        101 Reykjavík
        GSM: 861-0050
        Fax: 525-8309
        iceatca (hjá) iceatca.com

        Innskráning



        • Týnt lykilorð?
        OPEX