• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Áskorun félagsfundar 22. maí 2008

vefstjori | 26. maí, 2008 | 17:22

        Það barst áskorun til stjórnar og trúnaðarráðs FÍF frá félagsfundi FÍF sem haldin var 22. maí 2008. Áskorunin er svohljóðandi:

    Áskorun félagsfundar í FÍF 22. maí 2008.

    Samningar Félags íslenskra flugumferðarstjóra hafa verið lausir frá því í lok febrúar síðastliðinn. Samningaviðræður FÍF og Flugstoða/SA/ríkisins hafa hingað til verið árangurslausar. Félagsfundur í FÍF skorar á stjórn og trúnaðarráð félagsins að hefja þegar í stað undirbúning atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir til að knýja á um framgang kjaramarkmiða félagsins.

    Þessi ályktun var samþykkt samhljóða. Trúnaðarráð hefur verið boðað á fund 26. maí 2008 þar sem farið verður yfir stöðu kjaraviðræðna og undirbúning atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir í samræmi við fyrrgreinda ályktun. 

    Kjaradeilan er nú stödd hjá ríkissáttasemjara og hafa farið fram fjórir fundir undir hans stjórn. Næsti fundur er á dagskrá 27. maí 2008. Lítið hefur miðað í samkomulagsátt frá því að viðræður hófust í janúar og var því deilunni vísað í sameiningu til ríkissáttasemjara. Það hefur komið tilboð frá SA/Flugstoðum sem samninganefnd FÍF hefur ekki talið gefa grundvöll til samninga. Staða viðræðnanna var rædd á félagsfundinum 21. maí og í kjölfar þess barst ályktunin.  

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Sjúkrasjóður BSRB

    vefstjori | 22. maí, 2008 | 19:42

          Það hafa verið samþykkt lög þar sem stjórn félagsins var veitt heimild til þess að sækja um aðild að öðrum sjúkrasjóði en þeim sem er starfræktur innan FÍF. Það hefur verið gert. FÍF er nú aðili að sjúkrasjóði BSRB og var borgað árgjald eitt ár aftur í tímann til þess að félagar FÍF fengu fulla aðild frá og með 1. maí. Félagsmönnum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur sjúkrasjóðs BSRB á heimasíðu sjóðsins. Það er hægt að sækja um úthlutun úr honum strax í dag og eru félagsmenn hvattir til þess að nýtta sér það. 

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Lagabreytingar

      vefstjori | | 19:37

            Á seinasta aðalfundi voru lagðar fram þrjár lagabreytingartillögur. Það var ekki nægilega góð mæting til þess að það væri löglegt að kjósa um þær á þeim fundi. Því fór fram póstkosning. Það hefur farið fram talning á þeim atkvæðum sem bárust. Í stuttu máli sagt þá voru allar tillögurnar samþykktar. Því breytast nokkrar greinar í lögum félagsins. Uppfærð lög koma á heimasíðuna strax eftir helgi.

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Félagsfundur

        vefstjori | 19. maí, 2008 | 14:34

          Kjarasamningar FÍF hafa verið lausir frá 1. mars. Kjarasamningaviðræður sem hófust í janúar hafa ekki borið árangur.

           

          Á félagsfundi á fimmtudagskvöld, 22. maí, verður staðan kynnt og framhaldið rætt.

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Óskað milligöngu ríkissáttasemjara

          vefstjori | 6. maí, 2008 | 11:35

            Kjarasamningur Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, sem gilti einnig fyrir Flugstoðir ohf frá 1. janúar 2007, rann út 29. janúar síðastliðinn.

            Samninganefndum FÍF og Samtaka atvinnulífsins (SA) f.h. Flugstoða ohf, hefur ekki tekist að ná niðurstöðu um nýjan samning.

            Á fundi sínum í gær urðu samninganefndirnar sammála um að óska eftir milligöngu ríkissáttasemjara í viðræðunum. Fyrsti fundur með sáttasemjara verður á morgun, miðvikudag, kl. 12:00.

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Tenglar



            Félag íslenskra flugumferðarstjóra

            Grettisgata 89
            101 Reykjavík
            GSM: 861-0050
            Fax: 525-8309
            iceatca (hjá) iceatca.com

            Innskráning



            • Týnt lykilorð?
            OPEX