• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Skrifað undir kjarasamning og verkföllum aflýst

vefstjori | 28. júní, 2008 | 12:31

    Eftir maraþon fund sem hófst kl. 10:00 á fimmtudagsmorgun (26. júní) var skrifað undir kjarasamning um kl.  09:20 á föstudagsmorgun.


    Megin atriði samnings:


    Grunnlaun hækka um 4,75% frá 1. júní 2008 og 3,0% þann 1. febrúar 2009.


    Frá 1. september greiðist sérstakt kennsluálag, 3% af grunnlaunum til flugumferðarstjóra með þriggja ára starfsaldur sem fara á OJI námskeið og skuldbinda sig til nemaþjálfunar þegar þess er þörf.
    Samningur Flugstoða og FÍF frá 3. janúar 2007 um lífeyrismál nái til flugumferðarstjóra sem ráðnir verða til Flugstoða á gildistíma samningsins.


    Greiðslur í fjölskyldu- og styrktarsjóði á samningstímanum taki sömu breytingum og í samningum BSRB og ríkisins.


    Vinnuveitendur greiði 0,13% iðgjald í Endurhæfingarsjóð.


    Upplýsingar um ástæður uppsagna í samræmi við ákvæði í samningum ASÍ og SA


     

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Flugmálastjórn Íslands krefst þess að stjórnuðu loftrými verði lokað fyrir allri umferð í verkfalli flugumferðarstjóra

    vefstjori | 24. júní, 2008 | 12:46

      Pétur K. Mack, flugmálastjóri

       

      Efni: Boðun vinnustöðvunar – minnisblað Flugmálastjórnar Íslands til samgönguráðherra og vottaðra rekstraraðila flugumferðarþjónustu 16. júní 2008

       

      Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) hefur undir höndum minnisblað stofnunar þinnar til samgönguráðherra og vottaðra rekstraraðila flugumferðarþjónustu, dags. 16. júní 2008. Nú er ljóst að þegar minnisblaðið er skrifað hafði aðeins verið boðað verkfall hjá ríkisstofnununum tveimur, þ.e. Flugmálastjórn Íslands og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli en ekki hjá fyrirtækinu Flugstoðir ohf. Fram kemur í minnisblaðinu að gengið er út frá því að verkfall verði boðað hjá Flugstoðum ohf eins og nú hefur verið gert.

       

      Í minnisblaðinu eru settar fram þrjár „ályktanir“. Í þeirri fyrstu kemur fram að Flugmálastjórn telji að boðuð verkföll hafi ekki áhrif á stjórnunar og eftirlitshlutverk stofnunarinnar.

       

      Í 2. tl. minnisblaðsins segir eftirfarandi um flugumferðarstjóra sem annast beina flugumferðarstjórn hjá tilnefndum rekstraraðilum flugleiðsöguþjónustu:

       

      Flugumferðarstjórar sem annast flugumferðarstjórn í loftrými þurfa stöðugt að geta verið í sambandi við þá sem þeir stjórna nánast frá augnabliki til augnabliks. Örlítil frávik frá þessu hafa leitt til alvarlegra slysa og ein megin forsenda til að tryggja flugöryggi í flugleiðsögu er að þetta samband slitni ekki. Að flugumferðarstjóri gangi frá starfstöð sinni eins og virðist vera ætlanin samkvæmt bréfi félags flugumferðarstjóra í 4 klukkustundir á degi hverjum stefnir flugöryggi í slíka hættu að ekki verður með nokkru móti við unað.

       

      Ályktun: Að hætt sé að annast flugumferðarstjórn fjórar klukkustundir í senn skapar slíkt hættuástand að til þess má einfaldlega aldrei koma. Starfsstöð má einfaldlega enginn loka án þess að hann hafi fyrir því vissu að flugöryggi sé tryggt.

       

      FÍF bendir á að verkföll hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli voru boðuð með lögbundnum 15 daga fyrirvara samkvæmt 16. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Að teknu tilliti til 19. og 20. gr. sömu laga sbr. einnig dóm Félagsdóms frá 7. maí 1998 þar sem kveðið er á um að tveir flugumferðarstjórar skuli vera á vakt í flugturninum á Keflavíkurflugvelli (einn í turni og einn í aðflugi) á hverjum tíma í verkfalli, óskar FÍF upplýsinga um á hvaða forsendum Flugmálastjórn Íslands byggir þá túlkun sína að flugumferðarstjórar í Keflavík „gangi frá starfstöð sinni“ og stefni þannig flugöryggi í þá hættu að ekki verði við unað. Einnig óskar FÍF svara við því hvort Flugmálastjórn Íslands telji að Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli og Flugstoðir ohf muni á engan hátt bregðast við boðuðum verkföllum, þrátt fyrir lögbundinn fyrirvara, og hvernig slíkt geti samrýmst ákvæðum gr. 8.2 í viðauka I við reglugerð nr. 535/2006 um viðbúnaðaráætlanir.

       

       

      Í niðurlagi minnisblaðsins segir eftirfarandi:

       

      Ályktun: Ekki verður annað séð á þessari stundu en að rekstraraðilum flugleiðsöguþjónustu beri að tryggja að engin flugumferð verði í því stjórnaða loftrými sem þeir annast á þeim tíma sem verkfall er boðað og leggi fram gögn til Flugmálastjórnar Íslands um hvernig það verður gert.

       

      Í ljósi þess hér hefur verið rætt og með sérstöku tilliti til bréfs FÍF til forstjóra Flugstoða, dags. 18. júní 2008, um framkvæmd verkfalla hjá Flugstoðum, sem Flugmálastjórn hefur afrit af, spyr FÍF hvort Flugmálastjórn telji ástæðu til að endurskoða þær ályktanir sem fram eru settar í minnisblaðinu.

       

      Virðingarfyllst,

      Loftur Jóhannsson

      formaður FÍF

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Forsaga kjaradeilna

      vefstjori | 18. júní, 2008 | 16:56

        Annáll kjaradeilunnar



        • 1995: Níu af hverjum tíu flugumferðarstjórum á Íslandi sögðu upp störfum árið 1995 og hugðust hætta um áramót 1995/96. Sú deila leystist til bráðabirgða með yfirlýsingu samgönguráðherra í samráði við fjármála- og utanríkisráðherra 29. desember 1995 þar sem kveðið var á um skipan nefndar fulltrúa þessara þriggja ráðuneyta og flugumferðarstjóra til að gera úttekt á réttarstöðu flugumferðarstjóra.

         


        • 1997: Réttarstöðunefndin lauk störfum og skilaði skýrslu til samgönguráðherra 30. júní 1997. Allir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálitið án fyrirvara, þ.e.a.s. fulltrúar samgönguráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra auk Flugmálastjórnar svo og fulltrúar Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Nefndin lagði til margvíslegar úrbætur. Meðal annars. var lögð áhersla á að draga úr yfirvinnu flugumferðarstjóra, fjölga flugumferðarstjórum, semja til lengri tíma um kaup og kjör flugumferðarstjóra og að taka mið af sérstöðu flugumferðarstjóra, og kröfum sem til þeirra eru gerðar, við ákvörðun launakjara.

         


        • 1997: Nýir kjarasamningar flugumferðarstjóra voru undirritaðir 8. september 1997. Þá gaf samgönguráðherra enn út yfirlýsingu þar sem sagði að samgönguráðuneytið myndi taka fyrrnefnda réttarstöðuskýrslu til athugunar með þátttöku flugumferðarstjóra, Flugmálastjórnar og annarra sem málið varðaði.

         


        • 2000: Ekkert bólaði enn á efndum yfirlýsinga um að hrinda í framkvæmd úrbótum og tillögum réttarstöðunefndar. Samgönguráðherra vísaði ábyrgð á hendur samninganefnd ríkisins/fjármálaráðherra á þeirri forsendu að um kjarasamningamál væri að ræða. Samninganefnd ríkisins lýsti hins vegar yfir að henni kæmi réttarstöðuskýrslan ekkert við og vísaði á samgönguráðherra.        Kjarasamningur flugumferðarstjóra rann út 1. nóvember 2000. Viðræður leiddu í ljós að stjórnvöld ætluðu að hafa að engu tillögur réttarstöðunefndar frá 1997.

         


        •  2001: Flugumferðarstjórar boðuðu verkfall 20. febrúar 2001. Eftir að verkfallið hafði staðið í 16 klukkustundir var skrifað undir skammtímasamning til 15. nóvember 2001. Þar var kveðið á um viðræðuáætlun flugumferðarstjóra annars vegar og stjórnvalda hins vegar til að ná samkomulagi um kjarasamning. Vísað var til réttarstöðuskýrslunnar frá 1997 í því sambandi. Í viðræðuáætluninni, sem var hluti kjarasamningsins og undirrituð af fulltrúm samgönguráðuneytis, utnaríkisráðuneytis og fjármálaráðuneytis auk fulltrúa FÍF, segir:


        Aðilar eru sammála um að kanna til hlítar á samningstímanum möguleika á því að breyta samningsréttarlegri stöðu flugumferðarstjóra og kjaratilhögun þeirra í því skyni að tryggja betur stöðu og þjónustu flugumferðarstjórnar sbr. “Nefndarúttekt á réttarstöðu flugumferðarstjóra” frá júní 1997. Athuga þarf sérstaklega og ná samkomulagi um hver ætti að vera viðmiðun kjara flugumferðarstjóra og hvernig háttað verði aðlögun að þeirri viðmiðun.
        Ráðuneyti þau er að málum flugumferðarstjóra koma hafa fallist á þessi sameiginlegu markmið.

         


        •  2001: Samningaviðræður hófust að nýju við samninganefnd ríkisins um miðjan september. Enn voru kröfur FÍF að tillögur réttarstöðunefndar yrðu útfærðar í kjarasamningi. Eftir að ljóst var að samninganefnd ríkisins hafnaði algjörlega að ræða tillögur réttarstöðunefndar fékk FÍF heimild félagsmanna til að boða hrinu verkfalla í nóvember 2001 og skyldi fyrsta verkfallið hefjast 16. nóvember.

         


        • 2001: Forsætisráðherra, Davíð Oddsson boðaði fulltrúa FÍF á sinn fund í forsætisráðuneytinu 12. nóvember 2001. Fundinn sátu einnig ráðherrar fjármála, samgöngumála og landbúnaðarráðherra í fjarveru utanríkisráðherra. Á fundinum krafðist forsætisráðherra þess að Félag íslenskra flugumferðarstjóra aflýsti boðuðum verkföllum ellegar yrði verkfallsréttur flugumferðarstjóra afnuminn varanlega með lögum. Þá lýsti forsætisráðherra því yfir í fjölmiðlum að verkföll flugumferðarstjóra yrðu ekki liðin og […] Ef að þeir [flugumferðarstjórar] sæju ekki ljósið og væru veruleikafirrtir þá væri ekki nokkur aðstaða önnur en sú að ríkisstjórnin myndi leggja til við Alþingi að verkfallinu yrði lokið með lögum“ (fréttir Stöðvar 2 12. nóvember 2001) .  Í kjölfarið aflýsti FÍF boðuðum verkföllum en þegar ekkert hafði þokast í samningaviðræðum síðari hluta desember 2001 boðaði félagið yfirvinnubann sem hófst 14. janúar 2002. Þrátt fyrir að Félagsdómur úrskurðaði yfirvinnubannið löglegt með dómi, var FÍF enn hótað af forsvarsmönnum ríkisstjórnar Íslands að yfirvinnubannið yrði bannað með lögum. Áður en til þess kom, samþykktu félagsmenn FÍF miðlunartillögu ríkissáttasemjara 11. febrúar 2002.

         


        • 2005: Í kjarasamningaviðræðum 2005 hafnaði samninganefnd ríkisins enn öllum óskum um útfærslu á tillögum réttarstöðunefndar. Þrátt fyrir það ákvað FÍF, í ljósi fyrri reynslu, að nýta sér ekki verkfallsrétt sinn til að knýja á um framgang málsins.

         


        • 2008: Eins og fram hefur komið hér að framan hafa flugumferðarstjórar ekki haft eðlilega samningsstöðu í kjaradeilum sínum við ríkið. Þeim hefur ítrekað verið hótað starfsmissi af stjórnvöldum vegna breytinga á flugstjórnarsvæðum eða að lögbundinn réttur í kjaradeilu, þ.e. verkfallsrétturinn, verði tekinn af þeim varanlega ef þeir hyggist beita honum. Það er von FÍF að samskipti við nýjan samningsaðila verði á meiri jafnréttisgrundvelli en félagið hefur átt að venjast til þessa.

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir

        Verkföll flugumferðarstjóra

        vefstjori | | 16:50

          Félag íslenskra flugumferðarstjóra                                                                       


           


           

          Fréttatilkynning


          18. júní 2008

           

          Takmörkuð  vinnustöðvun til að knýja á að tillögur ríkisins frá 1997 komi til framkvæmda

           

          Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) hefur boðað 20 stuttar vinnustöðvanir dagana 27. júní til 20. júlí nk.. Verkfallsboðunin nær til allra starfandi flugumferðarstjóra í landinu  hjá Flugmálastjórn Íslands, Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli og hjá Flugstoðum. Stjórn og trúnaðarráð Félags íslenskra flugumferðarstjóra gerðu tillögu um 20 sjálfstæðar fjögurra klukkustunda vinnustöðvanir og voru þær samþykktar í almennri leynilegri atkvæðagreiðslu sem fór fram meðal flugumferðarstjóra dagana 9.-10. júní síðast liðinn. Greidd voru atkvæði um hverja vinnustöðvun fyrir sig, eins og gerð er nánari grein fyrir í meðfylgjandi töflu og voru þær allar samþykktar nánast einróma:

           













































































































          Vinnustöðvun

          Dagsetning

          Vikudagur

          Frá kl. – til kl.

          1

          27.06.2008

          föstudagur

          07:00 – 11:00

          2

          30.06.2008

          mánudagur

          07:00 – 11:00

          3

          02.07.2008

          miðvikudagur

          07:00 – 11:00

          4

          03.07.2008

          fimmtudagur

          08:00 – 12:00

          5

          04.07.2008

          föstudagur

          09:00 – 13:00

          6

          05.07.2008

          laugardagur

          07:00 – 11:00

          7

          06.07.2008

          sunnudagur

          08:00 – 12:00

          8

          07.07.2008

          mánudagur

          09:00 – 13:00

          9

          08.07.2008

          þriðjudagur

          07:00 – 11:00

          10

          09.07.2008

          miðvikudagur

          08:00 – 12:00

          11

          10.07.2008

          fimmtudagur

          09:00 – 13:00

          12

          11.07.2008

          föstudagur

          07:00 – 11:00

          13

          12.07.2008

          laugardagur

          08:00 – 12:00

          14

          13.07.2008

          sunnudagur

          09:00 – 13:00

          15

          14.07.2008

          mánudagur

          07:00 – 11:00

          16

          16.07.2008

          miðvikudagur

          07:00 – 11:00

          17

          17.07.2008

          fimmtudagur

          08:00 – 12:00

          18

          18.07.2008

          föstudagur

          09:00 – 13:00

          19

          19.07.2008

          laugardagur

          07:00 – 11:00

          20

          20.07.2008

          sunnudagur

          07:00 – 11:00

           

           

           

          Þrátt fyrir að flugumferðarstjórum sem vinna hjá Flugstoðum beri ekki skylda til að sinna störfum í verkfalli hefur FÍF ákveðið að flugumferðarstjórar sinni störfum í verkföllum sem boðuð hafa verið á tímabilinu 27. júní 2007 til og með 20. júlí 2007 með eftirfarandi hætti:

           


          1. Einn flugumferðarstjóri verði að störfum í flugturnunum á Reykjavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli og Vestmannaeyjaflugvelli á meðan verkfall stendur. Flugumferðarstjórarnir sinni eingöngu sjúkra- og neyðarflugi.

           


          1. Í fyrstu tveimur verkföllunum, þ.e. 27. og 30. júní, verði veitt full þjónusta í úthafssvæðinu, þ.e. flugumferðarstjórar sem hafa skipulagðar vaktir þessa daga sinni störfum sínum með venjulegum hætti að því undanskyldu að flugumferð sem áætlar að lenda á íslenskum flugvöllum á tíma verkfallanna fær ekki heimild til flugs inn í svæðið nema um neyðartilvik eða sjúkraflug sé að ræða. Þá verða heimiluð tvö flugtök á klukkustund frá Keflavík eingöngu vegna áætlunarflugs frá Íslandi til útlanda. Þessi undanþága nær eingöngu til starfa flugumferðarstjóra sem sinna flugumferðarstjórn í flugstjórnarmiðstöðinni, þ.m.t. varðstjóra/aðalvarðstjóra. Í ljósi reynslu af framkvæmd í fyrstu tveimur verkföllunum mun FÍF taka afstöðu til þess hvort þetta fyrirkomulag verði einnig í þeim verkföllum sem eftir eru ef til þeirra kemur.

           


          1. Ef FÍF metur það svo að ekki sé rétt að halda áfram því fyrirkomulagi sem lýst er í lið 2, gildir eftirfarandi:

          Í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík verði einn til þrír flugumferðarstjórar að störfum í samræmi við dóm Félagsdóms frá 7. maí 1998 og sinni yfirflugi um úthafssvæðið samkvæmt viðbúnaðaráætlun sem unnið var eftir í verkfalli flugumferðarstjóra í febrúar 2001 og samþykkt var af Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO). Flugumferð sem áætlar að lenda á Íslandi eða að hefja flug frá íslenskum flugvöllum á þeim tíma sem verkfall stendur fái ekki til þess heimild nema um neyðartilvik eða sjúkraflug sé að ræða.

           

          Markmið FÍF

          Þær takmörkuðu aðgerðir sem nú er gripið til eiga sér langan aðdraganda en með þeim freistar Félag íslenskra flugumferðarstjóra þess að þrýsta á stjórnvöld/Flugstoðir að hrinda í framkvæmd tillögum sem svokölluð réttarstöðunefnd á vegum ríkisstjórnarinnar skilaði 30. júní 1997. Niðurstaða nefndarinnar var einróma og líta flugumferðarstjórar svo á að hún sé ígildi kjarasamnings. Flugumferðarstjórar telja sig knúna til að beita verkfallsvopni til að knýja á um að tillögur ríkisvaldsins um ráðstafanir sem eiga að tryggja rekstraröryggi flugumferðarþjónustunnar og sem birtast í nefndarálitinu komist til framkvæmda. Sáttatilraunir Ríkissáttasemjara í deilunni hafa til þessa reynst árangurslausar.

           

          Markmið FÍF í kjarasamningum 2008 taka mið af niðurstöðum réttarstöðunefndar frá 1997. Megin áhersla hefur verið lögð á að minnka óhóflegt vinnuálag og leiðrétta kjör flugumferðarstjóra til samræmis við kjör atvinnuflugmanna sem er sú stétt sem nefndin telur hafa samsvarandi ábyrgð og flugumferðarstjórar.  

           

          Flugumferðarstjórum á Íslandi hefur ekki fjölgað í samræmi við aukin umsvif í flugi á íslenska flugstjórnarsvæðinu á undanförnum árum, sem hefur að jafnaði verið 7-8% á ári. Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið fyrstu fimm mánuði þessa árs hefur aukist um 13,2% frá því sem var fyrstu fimm mánuði síðasta árs, sem þó var metár. Flugumferðarstjórar hafa alla tíð unnið óhóflega mikla yfirvinnu til að sinna þeirri þjónustu sem íslensk stjórnvöld hafa tekið að sér í flugumferðarstjórn. Nauðsynlegt er því að fjölga flugumferðarstjórum og draga úr yfirvinnu. 

           

          Í yfirlýsingu heildarsamtaka opinberra starfsmanna og ríkisins í tengslum við endurnýjun kjarasamninga ríkisstarfsmanna veturinn 2004 – 2005 voru aðilar sammála um að fara í gagngera endurskoðun á málefnum vaktavinnustarfsmanna með það að markmiði að bæta vinnufyrirkomulag þeirra og gera vaktavinnuna eftirsóknarverðari. Sérstaklega skyldi skoða kjör og lengd vinnutíma. Rannsóknir benda til þess að vaktavinna sé meira slítandi en annað fyrirkomulag vinnu og erfitt er að manna nætur-, helgar- og stórhátíðarvaktir á stofnunum. Aðilar lýstu því yfir að finna þyrfti leiðir til þess að mæta þessum erfiðleikum með hag starfsmanna og stofnana fyrir augum. Það er markmið FÍF að kjör flugumferðarstjóra í vaktavinnu verði bætt og vinnuskylda þeirra stytt.

           

          Á samningafundum í vetur og vor með samninganefnd Samtaka atvinnulífsins (SA), sem fer með samningsréttinn fyrir hönd Flugstoða, hefur þeim tillögum sem fram eru settar í réttarstöðunefndarskýrslunni verið hafnað og SA neitað að semja við flugumferðarstjóra um sambærileg kjör og samtökin hafa samið um við þá stétt í fluggeiranum sem hefur samsvarandi ábyrgð. Nú stefnir sem sagt enn í röskun á flugumferðarþjónustunni vegna deilna um kjaramál þrátt fyrir að fyrir liggi fyrirvaralausar tillögur fjármála-, samgöngu- og utanríkisráðuneytis, Flugmálastjórnar og Félags íslenskra flugumferðarstjóra um leiðir til að koma í veg fyrir að slíkt ástand skapist.

           

           

           

          F.h. Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF)

           

          Loftur Jóhannsson
          formaður FÍF

          sími: 861 0050

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Kosningar um verkfallsaðgerðir FÍF til að knýja á um framgang kjaramarkmiða FÍF

          vefstjori | 5. júní, 2008 | 10:40

            Kosningar um verkfallsaðgerðir FÍF til að knýja á um framgang kjaramarkmiða FÍF

             

            Á félagsfundi 22.  maí 2008 var eftirfarandi áskorun til stjórnar og trúnaðarráðs FÍF samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.


            Samningar Félags íslenskra flugumferðarstjóra hafa verið lausir frá því í lok febrúar síðastliðinn. Samningaviðræður FÍF og Flugstoða/SA/ríkisins hafa hingað til verið árangurslausar. Félagsfundur í FÍF skorar á stjórn og trúnaðarráð félagsins að hefja þegar í stað undirbúning atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir til að knýja á um framgang kjaramarkmiða félagsins.


            Í samræmi við áskorun fundarins leggja stjórn og trúnaðarráð til að boðað verði til 20 sjálfstæðra verkfalla, samkvæmt meðfylgjandi töflu hér að neðan, sem taki til allra félagsmanna sem starfa hjá Flugstoðum ohf. annars vegar og hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli og Flugmálastjórn Íslands hins vegar. Á kjörseðli munu félagsmenn hafa val um að samþykkja öll verkföllin eða að hafna þeim öllum eða að samþykkja sum og hafna öðrum.

             















































































































            Tafla yfir verkföll

            Vinnustöðvun

            Dagsetning

            Vikudagur

            Frá kl. – til kl.

            1

            27.06.2008

            föstudagur

            07:00 – 11:00

            2

            30.06.2008

            mánudagur

            07:00 – 11:00

            3

            02.07.2008

            miðvikudagur

            07:00 – 11:00

            4

            03.07.2008

            fimmtudagur

            08:00 – 12:00

            5

            04.07.2008

            föstudagur

            09:00 – 13:00

            6

            05.07.2008

            laugardagu

            07:00 – 11:00

            7

            06.07.2008

            sunnudagur

            08:00 – 12:00

            8

            07.07.2008

            mánudagur

            09:00 – 13:00

            9

            08.07.2008

            þriðjudagur

            07:00 – 11:00

            10

            09.07.2008

            miðvikudagur

            08:00 – 12:00

            11

            10.07.2008

            fimmtudagur

            09:00 – 13:00

            12

            11.07.2008

            föstudagur

            07:00 – 11:00

            13

            12.07.2008

            laugardagur

            08:00 – 12:00

            14

            13.07.2008

            sunnudagur

            09:00 – 13:00

            15

            14.07.2008

            mánudagur

            07:00 – 11:00

            16

            16.07.2008

            miðvikudagur

            07:00 – 11:00

            17

            17.07.2008

            fimmtudagur

            08:00 – 12:00

            18

            18.07.2008

            föstudagur

            09:00 – 13:00

            19

            19.07.2008

            laugardagur

            07:00 – 11:00

            20

            20.07.2008

            sunnuudagur

            07:00 – 11:00

             

            Þeir félagsmenn sem eru starfsmenn Flugstoða ohf. munu greiða atkvæði um verkföll hjá Flugstoðum ohf. og  þeir félagsmenn sem eru starfsmenn Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugmálastjórnar Íslands munu greiða atkvæði um verkföll hjá þessum stofnunum sameiginlega.

             

            Kjörfundur fyrir starfsmenn Flugstoða ohf. í Reykjavík og Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugmálastjórnar Íslands veður haldinn á skrifstofu FÍF að Grettisgötu 89, Reykjavík, á mánudag 9. júní og á  þriðjudag 10. júní næstkomandi frá kl. 16:00 til 21:00 báða dagana.

             

            Kjörfundur fyrir starfsmenn Flugstoða ohf. á Akureyri verður haldinn mánudaginn 9. júní frá 16:00 til 18:00 í flugturninum á Akureyri.

             

            Kjörfundur fyrir starfsmenn Flugstoða ohf. í Vestmannaeyjum verður haldinn mánudaginn 9. júní frá 16:00 til 18:00 í flugturninum í Vestmannaeyjum.

             

            Eftirtaldir aðilar hafa verið skipaðir í kjörsjórn:

             

            Ottó Eiríksson (formaður), Eggert Matthíasson, Matthías Einarsson, Björg Unnur Sigurðardóttir (Akureyri), Bjarni Halldórsson (Vestmannaeyjar).

             

            Kjörstjórn

            Athugasemdir
            Comments Off
            -->
            Flokkar
            Fréttir

            Tenglar



            Félag íslenskra flugumferðarstjóra

            Grettisgata 89
            101 Reykjavík
            GSM: 861-0050
            Fax: 525-8309
            iceatca (hjá) iceatca.com

            Innskráning



            • Týnt lykilorð?
            OPEX