Jólakveðja frá FÍF
vefstjori | 23. desember, 2008 | 21:35
Félagsfundur
vefstjori | 22. desember, 2008 | 09:23Á fundinn mun mæta:
Þórey Þórðardóttir, forstöðumaður réttindamála LSR. Hún mun fjalla um hvaða áhrif aðilaskiptin hafa á aðild að LSR.
Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur. Hann mun fjalla um samning FÍF við Flugstoðir, frá 3. jan. 2007.
Stjórnin
FÍF lítur svo á að flugumferðarstjórar í Keflavík verði starfsmenn Flugstoða frá og með 1. janúar 2009
vefstjori | 20. desember, 2008 | 13:14Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan
vefstjori | 9. desember, 2008 | 11:19Opinn fundur verður á vegum BSRB fimmtudaginn 11. desember kl. 16:30 – 18:00 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er „Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan.” Framsögur hafa Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar.
Á fundinum verður fjallað um sérkenni íslenska vinnumarkaðarins og úrræði fyrir þá sem standa frammi fyrir atvinnumissi.
Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir fyrirspurnir úr sal.
Sjá heimasíðu BSRB
Varað við einhliða launalækkunum
vefstjori | | 11:15BSRB varar við einhliða launalækkunum og vill endurskoðun vísitölugrunns lána
8.12.2008
BSRB VARAR VIÐ EINHLIÐA LAUNALÆKKUNUM
Á ýmsum vinnustöðum, þar með talið stofnunum ríkis og sveitarfélaga, hefur verið um það rætt að lækka laun og skerða kjör til að mæta þverrandi tekjum. BSRB er fylgjandi kjarajöfnun ekki síst þegar sverfur að fjárhag fyrirtækja og stofnana. En að sama skapi er alvarlega varað við einhliða ákvörðunum stjórnenda fyrirtækja og stofnana hvað þetta snertir. Engar almennar ákvarðanir hvað varðar breytingar á kjörum starfsfólks, þar með talið starfshlutfall, á að taka án vitundar og samráðs við starfsfólk og stéttarfélög þess. BSRB leggur ríka áherslu á að ólöglegt er að skerða kjarasamningsbundin kjör starfsmanna.
Ráðstafanir stjórnvalda beinast enn sem komið er meira og minna að því að koma byrðunum yfir á almennt launafólk og fráleitt að réttlæta launalækkun og frekari skerðingar á þess kostnað. Þegar hefur almennt launafólk orðið fyrir verulegri kjaraskerðingu af völdum fjármálahrunsins.
Enn bólar ekki á neinum ráðstöfunum til að bæta kjör þeirra sem minnst hafa og verst þola áföllin. Þvert á móti hefur verið boðaður niðurskurður í velferðarkerfinu og er hans þegar farið að gæta. Á tímum samdráttar og erfiðleika á að efla velferðarþjónustuna en ekki veikja hana enda er hún í senn öryggisnet og til þess fallin að jafna aðstöðu fólks.
BSRB VILL ENDURSKOÐA VÍSITÖLUGRUNN LÁNA
Háir vextir og óðaverðbólga ógna nú fjárhagslegu öryggi margra fjölskyldna. Vaxtabyrðarnar þyngjast með snarhækkandi verðbólgu. Þegar kaupmáttur fer þverrandi í ofanálag er þess skammt að bíða að fjöldi fólks geti ekki staðið í skilum og áhvílandi lán á íbúðarhúsnæð verði langt umfram mögulegt söluverð. Mikil verðbólga á næstu mánuðum gæti skipt sköpum fyrir margar fjölskyldur. Við þessar aðstæður er brýnt að gripið verði nú þegar til róttækra ráðstafana. Þar skiptir höfuðmáli að létta skuldaklyfjarnar. Í því sambandi þarf að taka verðtryggingu íbúðalána til endurskoðunar enda byggir hún á þriggja ára gömlu neyslumynstri sem engan veginn endurspeglar gjörbreyttar aðstæður í dag.
Sjá heimasíðu BSRB
Framtíðin – með eða án krónu
vefstjori | 3. desember, 2008 | 13:53Framsögu hafa Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.



