• Forsida
  • Um félagið
    • Saga félagsins
    • Starfið
  • Tenglar
  • Orlofshús
    • Punktastaða
    • Stuttárbotnar
      • Myndir af Stuttárbotnum
      • Úthlutunardagar
    • Munaðarnes
      • Úthlutunardagar
      • Myndir af Munaðarnesi
    • Úthlutunarreglur og greiðsluupplýsingar
  • Stjórn og nefndir
    • Stjórn
    • Trúnaðarráð
    • Orlofshúsanefnd
    • Tækninefnd
    • Öryggisnefnd
    • Skemmtinefnd
    • Trúnaðarmenn
    • Skoðunarmenn reikninga
    • Vefstjóri
    • Starfsmenntunarsjóður
  • Hafðu samband
  • Vefpóstur

Félagsfundur 7. janúar klukkan 2000.

JA | 23. desember, 2009 | 17:02

    Félagsfundur FÍF verður haldinn í sal BSRB, Grettisgötu 89, þann 7. janúar 2010 klukkan 2000.

    Efni:

    1. Staða kjarasamningsviðræðna.

    2. Önnur mál.

    Kveðja

    Stjórn FÍF

    Athugasemdir
    Comments Off
    -->
    Flokkar
    Fréttir

    Nýr vefstjóri

    JA | | 16:59

      Guðmundur Karl Einarsson hefur tekið að sér að sjá um vef félagsins. Þeim félagsmönnum sem vantar aðgang að vefnum er bent á að hafa samband við hann á netfang gk (hjá) iceatca.com.

      Stjórn FÍF þakkar fráfarandi vefstjóra, Sigmari Ólafssyni, fyrir hans störf.

      Athugasemdir
      Comments Off
      -->
      Flokkar
      Fréttir

      Atgervisflótti flugumferðastjóra

      SJ | 7. desember, 2009 | 14:57

        Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) lýsir áhyggjum af afleiðingum atgervisflótta sem brostinn er á í atvinnugreininni. Á skömmum tíma hafa 9 af alls 64 flugumferðarstjórum, sem starfa dagsdaglega við flugumferðarstjórn hérlendis, sagt upp störfum og haldið utan til starfa.
        Enn fleiri úr þessum hópi kanna málið eða hafa nú þegar sótt um starf við flugumferðarstjórn erlendis. Fastlega má því gera ráð fyrir að enn fleiri flugumferðarstjórar flytjist af landi brott á næstu mánuðum.

        Það segir sína sögu um ástæður atgervisflóttans að hæstlaunuðustu flugumferðarstjórarnir á Íslandi ná ekki byrjunarlaunum starfssystkina sinna annars staðar á Norðurlöndum. Þá eru dæmi um að íslenskir flugumferðarstjórar fjórfaldi útborguð laun sín með því að ráða sig í vinnu erlendis.

        Samhæfð menntun flugumferðarstjóra um allan heim auðveldar þeim að fá vinnu utan heimalandsins, jafnvel í öðrum heimshlutum. Íslensku flugumferðarstjórarnir, sem eru þegar farnir eða íhuga að fara, eru að jafnaði með tólf ára starfsaldur. Þeir eru því afar reyndir fagmenn og mjög eftirsóttir, enda skortir flugumferðarstjóra víða um heim.

        Athugasemdir
        Comments Off
        -->
        Flokkar
        Fréttir
        Tags
        Atgervisflótti

        Spjallborðið orðið virkt.

        JA | 1. desember, 2009 | 17:11

          Ágætu félagsmenn.
          Spjallborðið er nú orðið virkt. Það eru komnir nýjir spjallkorkar, meðal annars fyrir skiptivaktir sem og keypt og selt. Félagsmenn eru hvattir til þess að kynna sér nýja virkni spjallborðsins.

          Athugasemdir
          Comments Off
          -->
          Flokkar
          Fréttir

          Tenglar



          Félag íslenskra flugumferðarstjóra

          Grettisgata 89
          101 Reykjavík
          GSM: 861-0050
          Fax: 525-8309
          iceatca (hjá) iceatca.com

          Innskráning



          • Týnt lykilorð?
          OPEX