Starfið
Starfsréttindi flugumferðarstjóra
Flugumferðarstjórar vinna við þrennskonar flugumferðarstjórn; flugturnsþjónustu, aðflug og svæðisflugstjórn í flugstjórnarmiðstöð. Hvert flug sem farið er byggist á fjórum þáttum: Flugtaki og brottflugi, leiðarflugi, aðflugi og lendingu. Hér á eftir er nánari lýsing á hverjum starfsréttindum fyrir sig:
Flugturn
Flugturnar eru starfræktir í Reykjavík, Keflavík, Akureyri og Vestmannaeyjum. Á öðrum flugvöllum landsins er ekki flugumferðarstjórn heldur upplýsingaþjónusta og þar starfa flugvallaverðir eða flugradíómenn. Flugturn stjórnar allri flugumferð í nágrenni flugvallar 5 til 10 sjómílur (9-18 km.) sem og umferð á flugvellinum sjálfum. Flugturnar stjórna einnig blindflugsumferð á fyrstu stigum brottfarar og síðustu stigum lendingar.
Aðflug
Aðflugsstjórn stjórnar flugumferð í blindflugi frá flugtaki og þar til hún kemst inn á fyrirhugaða flugleið. Eins sér aðflug um stjórnun flugvéla þegar þær koma til lendinga. Aðflugsstjórnin hefur afmarkað svæði sem hún sér um stjórn á. Hér á landi nær þetta svæði allt að 40 sjómílum (70 km.) frá flugvelli. Aðflugsstjórn er unnin í Keflavík, bæði fyrir Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvöll. Á Akureyri er einnig sérstök aðflugsstjórn en í Vestmannaeyjum er aðflugsstjórnin unnin frá flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
Í Keflavík og Akureyri er eingöngu veitt flugturns- og aðflugsþjónusta
Flugstjórnarmiðstöð
Flugumferðarstjórar í svæðisflugsstjórn starfa í flugstjórnarmiðstöðinni í Reyjavík. Þeir stjórna stærstu svæðunum. Eru það innanlandssvæðið og úthafssvæðið.
Innanlandssvæðið er yfir öllu Íslandi og nær upp í 24.500 fet. Innanlands er mikið flogið eftir flugleiðum sem settar hafa verið upp fyrirfram en einnig er flogið beint milli staða. Á úthafssvæði er mest flogið eftir leiðum sem flugmenn og flugfélög hafa lagt fram óskir um með tilliti til hagstæðustu háloftavinda.
Úthafssvæðið nær frá vesturströnd Noregs að austurströnd Kanada og frá 200 sjómílum suður af Íslandi allt til Norðurpólsins. Í heild er íslenska flugstjórnarsvæðið 5.6 milljón ferkílómetrar. Efri hæðarmörk eru engin. Úthafssvæðinu er skipt í 4 minni svæði til að auðvelda stjórnun flugumferðarinnar. Tvö af þessum svæðum, suður og austursvæðin umhverfis Ísland og Færeyjar eru að hluta ratsjárvædd en norður og vestursvæðin ekki.
Daglegt starf flugumferðarstjóra
Hver flugvél sem flýgur um svæðin verður að skila inn flugáætlun. Í flugturnum og aðflugstjórnum vinna flugumferðarstjórar sjálfir úr þeim upplýsingum sem þar koma fram. Þeir skrá upplýsingar úr flugáætlununum og einnig frá öðrum deildum á þar til gerðar pappírsræmur sem eru einskonar minnismiðar og nota síðan við stjórnun umferðarinnar.
Í flugstjórnarmiðstöð er fluggagnakerfið (FDPS) aðalkerfið sem flugumferðarstjórar nota við flugumferðarstjórn. Í flugstjórnarmiðstöð starfa einnig fluggagnafræðingar sem taka við flugáætlunum sem sendar eru til miðstöðvarinnar og leiðrétta það sem við á og koma þeim upplýsingum síðan inn í fluggagnakerfið, þannig að þær nýtist flugumferðarstjórum við stjórnum flugumferðar. Einnig sjá fluggagnafræðingar um daglegt eftirlit með fluggagnakerfinu og skráningu flugumferðar í gegnum flugstjórnarsvæðið. Þegar flugvél er tilbúin til brottfarar frá flugvelli innan svæðisins eða kemur inn í það úr öðrum flugstjórnarsvæðum eru allar upplýsingar um vélina tilbúnar í fluggagnakerfinu. Flugumferðarstjórinn býr til rafræna ræmu fyrir viðkomandi flug með upplýsingum um flughæð og tíma yfir stöðumiðum á flugleið vélarinnar. Upplýsingar á ræmunni gefa til kynna hvar rými sé fyrir viðkomandi flugvél miðað við aðrar. Hver vinnustöð er útbúin með fjarskipta og símabúnaði. Einnig eru víða ratsjárskjáir en tölvur eru í öllum vinnustöðum. Fyrir utan beina stjórnun flugumferðar byggist flugumferðarstjórn mjög á samvinnu, þ.e. að koma á framfæri og taka á móti upplýsingum um framvindu flugvéla sem eru á leið úr einu svæði í annað. Samvinna er einnig mikil milli manna í sömu deild, milli deilda og flugstjórnarmiðstöðva, bæði innalands og utan. Því eru allar vinnustöður í flugstjórnarmiðstöð með beinar símalínur til aðliggjandi deilda og einnig til flugstjórnarmiðstöðva erlendis.
Flugumferðarstjórinn verður að vera mjög fljótur að átta sig á aðstæðum og taka réttar ákvarðanir í samræmi við þær. Samskipti milli flugmanna og flugumferðarstjóra fara fram á ensku en leyfilegt er að nota íslensku í innanlandsdeild.
Öll samskipti um síma og fjarskiptatæki eru tekin upp á segulbönd og þau geymd í a.m.k. 30 daga.
Flugumferðarstjórar á Íslandi eru rúmlega 100 talsins. Félagslíf er nokkuð og má t.d. nefna golfklúbb, farnar eru gönguferðir inn á hálendið og einnig eru farnar ferðir erlendis og keppt í íþróttum við erlenda flugumferðarstjóra. Stéttarfélagið er með skrifstofu í húsnæði BSRB og á tvo sumarbústaði til afnota fyrir félagsmenn.



