• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur

Nýjar myndir af Munaðarnesi

Vefstjóri FÍF | 7. janúar 2012 | 21:46

Nú eru komnir inn nýjar myndir af bústað FÍF í Munaðarnesi, auk þeirra sem voru fyrir af bústaðnum. Til að skoða upplýsingar um bústaðinn er farið í Handbók -> Orlofshús -> Munaðarnes. Nauðsynlegt er að vera innskráður notandi til þess að skoða upplýsingarnar.

IMG_9588
IMG_9583
IMG_9582

IMG_9581
IMG_9576
IMG_9574

IMG_9572

Flokkar
Fréttir

Fimm nýir félagsmenn

GK | 5. desember 2011 | 08:23

Nú hafa fimm nýjir flugumferðarstjórar hafið störf í flugturnunum í Keflavík og Reykjavík. Þetta eru þau Júlíus Freyr Valgeirsson, Margrét Elín Arnarsdóttir, Rúnar Ingi Erlingsson, Guðmundur Haukur Rafnsson og Alexander Rafn Gíslason. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í félagið.

Við fengum þau til að segja aðeins frá sjálfum sér

Alexander Rafn Gíslason – AN

Ég heiti Alexander Rafn Gíslason og er fæddur í Reykjavík en uppalinn á Akureyri. Móðir mín heitir Ingibjörg Sólrún Ingimundardóttir og er hjúkrunarfræðingur og á rætur sínar að rekja til Kópavogs, faðir minn heitir Gísli Örn Davíðsson og er vélvirki ættaður frá Vopnafirði. Ég á einn eldri bróðir sem heitir Magnús Blöndal.
Ég hóf nám í Menntskólanum á Akureyri árið 2004 og veturinn 2005-2006 var ég skiptinemi í Sevilla á Spáni. Árið 2009 útskrifaðist ég svo sem stúdent af tungumálabraut M.A. og í byrjun árs 2010 hóf ég nám í flugumferðarstjórn hjá Keili.
Mín helstu áhugamál eru skotveiði og íþróttir og hef ég æft og keppt í fótbolta, handbolta, badminton og líkamsrækt svo fátt eitt sé nefnt.

Guðmundur Haukur Rafnsson – GX

Ég heiti Guðmundur Haukur Rafnsson og er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Ég er fæddur árið 1984 og er því 27 ára gamall. Ég er barnlaus og ókvæntur eins og er en á einn hund sem er duglegur að halda mér félagsskap. Einnig á ég einn eldri bróðir sem er fæddur árið 1980 og er hann trúlofaður og eiga þau saman þriggja ára strák.

Áhugamál mín er jafn mörg og þau eru ólík. Þau helstu eru líkamsrækt, matargerð, stjörnuskoðun, hundar, bílar og mótorhjól ásamt flugi.

Ég lærði flugmanninn á sínum tíma, tók öll réttindi og flugtíma en svo leitaði áhugasviðið annað og nú er ég orðinn nýbakaður flugumferðastjóri með réttindi í flugturninum í Reykjavík. Ég lærði grunnnámið hjá Keili og kláraði námið sumarið 2009, hóf svo störf hjá Isavia (á þeim tíma Flugstoðir) sem fluggagnafræðingur og hermaflugmaður. Þar starfaði ég í ár og fór svo þaðan í nám sem flugumferðastjóri. Ég hef einnig starfað hjá Load Control IGS á Keflavíkurflugvelli, Vodafone og í Nóatúni.

Júlíus Freyr Valgeirsson – JF

Ég heiti Júlíus Freyr Valgeirsson og er fæddur og uppalinn á Hornafirði. Faðir minn er ættaður frá Hornafirði en móðir mín á ættir sínar að rekja á Vopnafjörð. Ég á tvö systkin. Bróðir sem er 10 árum eldri og systur sem er 9 árum eldri…ég er sennilega slys.

Aðaláhugamál mitt er knattspyrna sem hef ég stundað frá barnsaldri en þú hefur sennilega aldrei heyrt um mig getið sem segir margt um getu mína í knattspyrnu. Liverpool er eina liðið sem hægt er að halda upp á í Englandi en á Íslandi eru það Sindri, HK og Fram sem tróna á toppnum.

Ég á einn kött sem er orðin 13 ára og heitir Yazmine. Hún á afmæli í apríl en velkomið að senda henni gjafir allt árið um kring.

Ég er lærður lögreglumaður og vann hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu frá 2008 uns ég hóf störf hér hjá Isavia. Ég hef einnig unnið hjá Vífilfell, Securitas og Ratsjárstofnun. Þá hef ég starfað við pípulagnir, múrverk og bakað meðal annars.

Margrét Elín Arnarsdóttir – MX

Ég heiti Margrét Elín Arnarsdóttir og er fædd í Svíþjóð en að mestu uppalin í Hafnarfirði. Ég bjó einnig um tíma í Bandaríkjunum þar sem ég var við nám og störf. Faðir minn hét Arnar Hákonarson og var flugmaður, ættaður frá Húsavík, og móðir mín heitir Ingibjörg Jóna Gunnarsdóttir og er Viðskipta- og rekstrarfræðingur, ættuð frá Hafnarfirði. Ég er gift Tómasi Beck, flugmanni og hálfum Norðmanni og eigum við saman tvö börn, Tristan og Kötlu. Við fjölskyldan búum í Njarðvík ásamt tveimur gríðarlega hressum labradorhundum, þeim Boeing og Cessnu.
Ég hef í gegnum árin lagt stund á ýmiss konar lærdóm og má þar nefna atvinnuflugnám, lögfræði, líffræði og íþróttaþjálfun. Árið 2010 hóf ég nám í flugumferðarstjórn hjá Keili og er í dag starfandi flugumferðarstjóri með réttindi í flugturninum í Keflavík og líkar afar vel. Þar áður starfaði ég sem flugfreyja hjá Icelandair og í flugrekstrardeild Air Atlanta en einnig þjálfaði ég Taekwondo í þó nokkur ár.
Helstu áhugamál mín eru flug og flest er því tengist, CrossFit, Taekwondo, fjallabrölt og lífið sjálft:)

Rúnar Ingi Erlingsson – RI

Ég heiti Rúnar Ingi Erlingsson , 22ja ára fæddur og uppalinn Njarðvíkingur og er yngstur 3ja systkina.  Í dag bý ég í Kópavogi ásamt kærustu minni , Kristínu Friðriksdóttur og syni mínum , Óliver Daða Rúnarssyni. Ég hef æft körfubolta frá 5 ára aldri og hef spilað alla tíð með Njarðvík fyrir utan 2 góð ár með Breiðablik en einnig á ég að baki 35 unglingalandsliðsleiki. Ég útskrifaðist árið 2008 frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hef unnið sem sumarstarfsmaður hjá Farþegaafgreiðslu IGS í 2 ár. Önnur áhugamál eru kvikmyndagerð, tónlist og ferðalög. Ég ákvað að fara í flugumferðarstjórn eftir að hafa unnið hjá IGS og heillast af flugheiminum. Einnig hafði það mikil áhrif á mig að góður vinur minn og liðsfélagi, Brenton Birmingham, hvatti mig í að fara í þetta og sé ég alls ekki eftir því í dag og þakka honum oft fyrir. Ég hef fengið mörg gælunöfn í gegnum tíðina sem eru mjög skrýtin, en í dag er ég oftast kallaður GipsyKing, af algjörlega óskiljanlegum ástæðum :)

Flokkar
Fréttir

Alþjóðadagur flugumferðarstjóra

GK | 20. október 2011 | 12:35

Í dag er alþjóðadagur flugumferðarstjóra og að því tilefni og einnig að tilefni 50 ára afmælis IFATCA og 56 ára afmælis FÍF verður boðið uppá glæsilega köku á starfstöðvum flugumferðarstjóra í dag milli klukkan 14:00 og 15:00.  Samstarfsfólk á viðkomandi starfsstöðvum er að sjálfsögðu velkomið líka.

Að þessu tilefni viljum við ennfremur benda félagsmönnum á glæsilega afmælisútgáfu tímaritsins Controller sem búið er að dreifa á starfsstöðvar.

Sérstaklega langar mig að benda á mynd frá stofnfundi IFATCA á bls. 17. Þar má sjá fríðan hóp frumkvöðla að stofunum alþjóðasamtakanna og sérstaklega má benda á fyrrum formenn FÍF, þá Árna Þorgrímsson (2.röð, 2. frá vinstri) og Valdimar Ólafsson (4.röð, lengst til vinstri) en þeir voru einmitt fulltrúar FÍF á stofnfundi IFATCA sem haldinn var í Amsterdam árið 1961.

Félagsmenn sem eru í vaktafríi eru hvattir til að mæta í kaffi hafi þeir tök á því.

Flokkar
Fréttir

Ný útgáfa af Controller

GK | 19. október 2011 | 11:06

Nú er komin út sérstök 50 ára afmælisútgáfa af Controller. Í tilefni afmælisins hefur verið ákveðið að gera eintakið aðgengilegt á netinu.

Smelltu hér til þess að skoða blaðið.

Flokkar
Fréttir

Íslenskur flugumferðarstjóri fjallar um áhrif eldgosa á flug

GK | 12. október 2011 | 09:12

Pallborðsumræður á ársþingi ATCA.

Dagana 2-5. október var 56. ársþing ATCA (Air Traffic Control Association) haldið í Washington DC í Bandaríkjunum. Á þinginu var fjölmargt á dagskrá en þann 3. október kl. 14:00 voru á dagskrá pallborðsumræður undir yfirskriftinni Jarðskjálftar, flóðbylgjur, eldfjöll, já sæll! Í þeim tóku þátt fulltrúi frá japönsku flugmálastjórninni, FAA, Harris Corporation (fyrirtæki sem rekur mest allan jarðbúnað fyrir FAA í Bandaríkjunum), Eurocontrol, Veðurstofu Bandaríkjanna og fulltrúi frá FÍF: Sigurður H. Jóhannesson (SJ).

Fjallað var um áhrif jarðskjálftanna í Japan á flugsamgöngur, um samskipti þjóða þegar upp koma óvænt atvik, um það hve miklu skiptir fyrir rekstur jarðstöðva að fá góðan fyrirvara á óveður, um hvernig hægt er að bregðast við atvikum eins og eldgosi með flæðisstjórn og eins var fjallað um hverjar næstu ógnir væru í flugheiminum en líklegt er að sólgos muni hafa meiri áhrif á flugumferð á næstu árum með tilheyrandi áhrifum á GPS tæki. Þá sagði Sigurður H. Jóhannesson frá því hvernig íslenskir flugumferðarstjórar brugðust við þegar umferð í svæðinu margfaldaðist vegna eldgossins í Eyjafjallajökli í maí 2010.

Lesa meira »

Flokkar
Fréttir

FÍF 56 ára

GK | 4. október 2011 | 15:59

Félag íslenskra flugumferðarstjóra var stofnað þann 4. október 1955. Félagið hefur æ síðan unnið bæði að hagsmunum félagsmanna sinna auk þess að vinna að því að auka flugöryggi og fagmennsku.

Félagið á því afmæli í dag og er 56 ára.

Flokkar
Fréttir

Haustúthlutun orlofshúsa-Uppfært

SE | 6. september 2011 | 13:27
UPPFÆRT:
Ágætu félagsmenn. Úthlutun fyrir haustið er komin á netið. Eitthvað er um lausar vikur og helgar í báðum bústöðum.  Um allar umsóknir sem berast núna gildir fyrstur kemur fyrstur fær! Ef  þið hafið áhuga sendið póst á sif.aradottir@isavia.is eða hringið í s: 865-3311. Kv. Sif

Ágætu félagsmenn
Orlofshúsanefnd minnir á að frestur til að sækja um sumarbústað í Húsafelli og Munaðarnesi haustið 2011 er sunnudagurinn 11. september nk. Ef þið hafið áhuga sendið mér línu. Ef þið hafið einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Bestu kveðjur f.h. Orlofshúsanefndar
Sif
Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
Síða 1 af 3712345...»Síðasta »
OPEX