• Forsíða
  • Um félagið
    • Stjórn
    • Nefndir
      • Orlofshúsanefnd
      • Skemmtinefnd
      • Skoðunarmenn reikninga
      • Starfsmenntunarsjóður
      • Trúnaðarmenn
      • Trúnaðarráð
      • Tækninefnd
      • Vefstjóri
      • Öryggisnefnd
    • Starfið
    • Saga félagsins
    • Ýmsar myndir
      • Akureyri TWR
      • Flugstjórn
      • Reykjavík TWR
  • Tenglar
  • Hafðu samband
  • English
  • Orlofshús Munaðarnesi
  • Vefpóstur
    • Nýi vefpósturinn
    • Gamli vefpósturinn

Kjarasamningar

JA | 23. nóvember 2009 | 17:47

Kjarasamningar FÍF og SA fyrir hönd Flugstoða og Keflavíkurflugvallar ohf. eru nú lausir. Var gildistími þeirra til 31. október 2009. Það hafa verið haldnir þó nokkrir samningafundir á undanförnum mánuðum. Nú er hins vegar staðan sú að kjaradeilunni hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Mun hann nú taka yfir stjórn samningaviðræðna. Samninganefnd FÍF mun láta félagsmenn vita af frekari framgangi viðræðna eftir þörfum.

Flokkar
Fréttir

Styrktarsjóður BSRB

HV | 20. nóvember 2009 | 00:14

Aðalfundur Styrktarsjóðs BSRB var haldinn í dag. FÍF er aðili að sjóðnum og vill stjórn FÍF vill minna félagsmenn sína á að þeir geti sótt um ýmsa styrki til Styrktarsjóðsins, t.d. vegna líkamsræktar, gleraugnakaupa yfir 45.000 kr, skoðunar hjá Hjartavernd, krabbameinsleitar, tækni- og glasafrjóvgunar, ættleiðingar, tannlæknakostnaðar umfram 50.000 kr og margs fleira. Á heimasíðu sjóðsins www.styrktarsjodur.bsrb.is má finna úthlutunarreglur hans ásamt umsóknareyðublöðum og öðrum upplýsingum.

Flokkar
Fréttir

FÍF fullgildir aðilar að ATCEUC

OE | 17. nóvember 2009 | 09:25

Okkur í stjórn FÍF er ánægja að tilkynna félgsmönnum að aðildarumsókn okkar að ATCEUC var samþykkt á aðalþingi samtakana nú um helgina. FÍF er þar með orðin fullgildur aðili að ATCEUC  http://www.atceuc.org.

Flokkar
Fréttir

Breytingar í stjórn FÍF

JA | 14. nóvember 2009 | 15:55

Ágætu félagsmenn.
Þröstur Jónsson hefur tekið að sér trúnaðarstörf fyrir Keflavíkurflugvöll ohf.. Óskaði hann þar af leiðandi eftir að draga sig úr stjórn FÍF. Sæti hans í stjórninni tekur Matthías Einarsson sem og í samninganefnd FÍF.

Stjórn FÍF þakkar Þresti samstarfið og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi.

Flokkar
Fréttir

Félag íslenskra flugumferðarstjóra

Grettisgata 89
101 Reykjavík
GSM: 861-0050
Fax: 525-8309
iceatca (hjá) iceatca.com

Tenglar



Skrá mig inn

  • Týnt lykilorð?
OPEX