Kjarasamningar FÍF og SA fyrir hönd Flugstoða og Keflavíkurflugvallar ohf. eru nú lausir. Var gildistími þeirra til 31. október 2009. Það hafa verið haldnir þó nokkrir samningafundir á undanförnum mánuðum. Nú er hins vegar staðan sú að kjaradeilunni hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Mun hann nú taka yfir stjórn samningaviðræðna. Samninganefnd FÍF mun láta félagsmenn vita af frekari framgangi viðræðna eftir þörfum.