Nú þykir mér löngu tímabært að við tökum okkur saman og förum að æfa einhverja íþrótt saman. Ég sting uppá að við förum að æfa BLAK……. Hvernig líst ykkur á það? Ég legg til að við leitum okkur að íþróttasal fyrir næsta haust, fáum þjálfara til að koma í nokkur skipti og tökum svo þátt í landsmótinu í blaki á Akureyri næsta vor (ekkert gaman að æfa ef ekki til að keppa…). Látið mig vita hvað ykkur finnst um þessa hugmynd – ég er til umræðu með að breyta um íþrótt (en aðeins ef við förum þá að æfa körfubolta í staðinn, nei segi nú bara svona..).
Kveðja, HM