Fermingardagar árið 2005 í félagsheimili FÍF að Borgartúni 28 eru lausir til umsóknar. Umsóknum skal koma til Bjarna K. Stefánssonar í síma 565-9456, 899-9456, 569-4198 eða í tölvupósti bk@caa.is. Umsóknarfrestur er til 1. október.

Ef fleiri en einn sækja um sama dag verður úthlutað samkvæmt eftirfarandi forgangsröð:
1. Flugumferðarstjórar sem eru að ferma sín eigin börn.
2. Flugumferðarstjórar sem eru að sækja um fyrir vini eða ættingja.
3. Aðrir aðilar.
Starfsaldur ræður innan hvers hóps.

Bjarni K. Stefánsson