Umsóknum fyrir Gullhvamm og Aðalból skal skila gegnum heimasíðu FÍF fyrir 31.mars.


Bein tenging á umsóknareyðublaðið er: https://www.iceatca.com/orlofshus_umsoknir_sumar2005.html


Sumartímabilið stendur frá föstudegi 13. maí til föstudags 16. september.  Sótt er um eina viku sem aðalval og 3 vikur til vara.


Verð fyrir hverja viku er kr. 15.000,- í Gullhvammi og kr. 12.000,- í Aðalbóli.


Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl.1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl.1500.


Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktastaðan er jöfn.


Hægt verður að skoða punktastöðuna á heimasíðu félagsins innan nokkurra daga. Póstur verður sendur á félagsmenn þegar punktastaðan er kominn upp.

Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar TP, LL eða  HV.