Í dag var skrifað undir kjarasamning milli Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samninganefndar ríkisins.  Fundahald hefur verið stíft undanfarna daga en lauk í dag með samningi.  Samningurinn mun liggja frammi á vinnustöðum en kynning um hann fer væntanlega fram miðvikudaginn 20. júlí klukkan 20 í Borgartúni.