Þá er komið að því að ákveðnum hlutum af heimasíðunni verði læst.  Þið ættuð að hafa fengið notendanafn og lykilorð sent til ykkar í tölvupósti en það getið þið notað þegar þið smellið á Handbók.  Nýjungar á heimasíðunni verða svo þær að þegar þið hafið skráð ykkur inn þá getið þið sent afmæliskveðjur til þeirra sem eiga afmæli (Lára á afmæli í dag!!!!) og einnig verður hægt að skrifa athugasemdir við fréttir á forsíðunni.  Ég vona að fólk verði ánægt með breytingarnar en ef þið lendið í einhverjum vandræðum með eitthvað af þessu endilega hafið þá samband við mig á sjarmi@caa.is   
Kv.  SO