Nýtt launakerfi tók gildi 1. maí 2006. LSR hefur ekki getað gengið frá launagreiðslum til lífeyrisþega samkvæmt þessu kerfi vegna þess að greinargerðir bárust ekki frá launagreiðendum, Flugmálastjórn Íslands og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli. Þessar greinargerðir hafa nú borist til sjóðsins og er verið að vinna í greiðslum. Þær munu berast í þessum mánuði.