Launataxtar hækka um 2,9% 1. janúar 2007



Allir almennir kjarasamningar ríkisins við félög opinberra starfsmanna, félög innan ASÍ og fleiri, hækka um 2,90% 1. janúar 2007 í stað 2,25% skv. kjarasamningum. Forsendunefnd SA og ASÍ ákvað árið 2005 á grundvelli verðlagsþróunar að greiða eingreiðslu að fjárhæð 26.000 kr. í desember 2005 og jafnframt að almennar hækkanir launataxta yrðu 2,90% í stað 2,25% þann 1. janúar 2007. Kjarasamningar ríkisstarfsmanna voru tengdir þessari ákvörðun og samkomulög voru gerð við bandalög og einstök félög í kjölfar ákvörðunarinnar um sömu hækkanir.

Af heimasíðu Fjársýslu ríkisins http://www.fjs.is/default.asp?cat_id=42

Stjórn FÍF