Umsóknum um Gullhvamm og Aðalból skal skila gegnum heimasíðu FÍF fyrir miðnætti sunnudaginn 29.apríl 2007.  Smelltu hér til að sækja um.

 

Sumartímabilið stendur frá föstudegi 25.maí til föstudags 14.september 2007.  Sótt er um eina viku sem aðalval og allt að 3 vikur til vara.

 

Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl.1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl.1500. 

 

Verð fyrir viku í Gullhvammi er kr. 15.000,- og Aðalbóli kr. 12.000,-

 

Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktastaðan er jöfn.  Punktastöðuna er hægt að skoða á heimasíðu FÍF.

 

Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar SM, SJ eða LL.