Umsóknir um Gullhvamm og Aðalból sumarið 2008

 

Umsóknum um Gullhvamm og Aðalból skal skila gegnum heimasíðu FÍF www.iceatca.com fyrir miðnætti föstudaginn 2. maí 2008.
Smelltu hér til að sækja um

Sumartímabilið stendur frá föstudegi 23.maí til föstudags 19.september 2008.  Sótt er um eina viku sem aðalval og allt að 3 vikur til vara.


Úthlutunarvika hefst á föstudegi kl.1600 og lýkur næsta föstudag á eftir kl.1500. 


Verð fyrir viku í Gullhvammi er kr. 15.000,- og Aðalbóli kr. 12.000,-


Við úthlutun er fyrst farið eftir punktastöðu viðkomandi en síðan eftir starfsaldri ef punktastaðan er jöfn.  Punktastöðuna er hægt að skoða á heimasíðu FÍF.

 

Frekari spurningum skal beint til orlofsnefndar: AX (Arnar Hjálms), SJ (Siggi Jó) eða SO (Simmi).