Á seinasta aðalfundi voru lagðar fram þrjár lagabreytingartillögur. Það var ekki nægilega góð mæting til þess að það væri löglegt að kjósa um þær á þeim fundi. Því fór fram póstkosning. Það hefur farið fram talning á þeim atkvæðum sem bárust. Í stuttu máli sagt þá voru allar tillögurnar samþykktar. Því breytast nokkrar greinar í lögum félagsins. Uppfærð lög koma á heimasíðuna strax eftir helgi.