Það hafa verið samþykkt lög þar sem stjórn félagsins var veitt heimild til þess að sækja um aðild að öðrum sjúkrasjóði en þeim sem er starfræktur innan FÍF. Það hefur verið gert. FÍF er nú aðili að sjúkrasjóði BSRB og var borgað árgjald eitt ár aftur í tímann til þess að félagar FÍF fengu fulla aðild frá og með 1. maí. Félagsmönnum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur sjúkrasjóðs BSRB á heimasíðu sjóðsins. Það er hægt að sækja um úthlutun úr honum strax í dag og eru félagsmenn hvattir til þess að nýtta sér það.