Flugöryggisáætlun í undirbúningi


Skipaður hefur verið stýrihópur sem móta á flugöryggisáætlun fyrir árin 2009 til 2012. Slík áætlun er hliðstæð öryggisáætlunum á sviði siglinga og umferðar á vegum og er stefnt að því að flugöryggisáætlunin verði tilbúin um næstu áramót.


Fyrstu skref stýrihópsins er að vinna að markmiðasetningu áætlunarinnar, mótun og forgangsröðun verkefna. Sett hefur verið upp sérstakt vefsvæði þar sem almenningi gefst kostur á að koma á framfæri ábendingum sínum og athugasemdum um verkefni í nýja flugöryggisáætlun. Einnig er að finna upplýsingar um heimsáætlun Alþjóðaflugmálastofnunarinnar í flugöryggismálum og flugleiðsögu ásamt annars efnis er varðar slíka áætlanagerð á vefsvæðinu.


Markmiðið er ávallt að fækka slysum í almenningsflugi, koma í veg fyrir tvíverknað í aðgerðum og tryggja samvinnu flugiðnaðarins og annarra hagsmunaaðila og stjórnvalda.


Þeir sem óska geta lagt fram sinn skerf varðandi undirbúning áætlunarinnar. Er annars vegar unnt að gera það með því að senda samgönguráðuneytinu ábendingar í tölvupósti af vefsvæðinu eða með því að leggja orð í belg í umræðu á vefnum.


Allar hugmyndir, ábendingar og tillögur að verkefnum eru vel þegnar.


Vefsvæði áætlunarinnar: http://www.samgonguraduneyti.is/malaflokkar/flugmal/flugoryggisaetlun/