Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra, sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.  

 

Verkefnisstjórnin hefur lagt áherslur á rannsóknir í starfi sínu og kynnir tvær mastersritgerðir sem skrifaðar hafa verið á þessu ári og tengjast aldurshópnum á vinnumarkaði.

 

 
Núverandi staða í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar vekur upp ýmsar spurningar um stöðu hópsins. 

 

Morgunverðarfundur verður haldinn miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30 -10:00 á Grand hóteli í Reykjavík, salur Háteigur B, þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði. Á fundinum munur þrír frummælendur fjalla um sérstöðu hópsins í þróun og ástandi samtímans. 

 

 

Dagskrá:

 

Karl Sigurðsson forstöðumaður vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar gerir grein fyrir þróun atvinnuleysis hjá fólki sem komið er yfir fimmtugt og stöðu þeirra á vinnumarkaði.

 

 

Guðfinna Harðardóttir  sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, segir frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í tengslum við gerð meistararitgerðar í mannauðsstjórnun við HÍ – Viðhorf stjórnenda í verslun til færni miðaldra og eldra starfsfólks

 

 
Margrét Linda Ásgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun á Suðurnesjum gerir grein fyrir verkefni varðandi miðaldra og eldra fólk á atvinnuleysisskrá sem unnið var fyrir Vinnumarkaðsráð Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum.

 

 

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir framkvæmdastjóri Héraðs- og Austurlandsskóga segir frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var meðal fyrirtækja í tveimur atvinnugreinum hvað varðar aldursstjórnun og stefnumótun við starfslok.  Rannsóknin var gerð í tengslum við meistararitgerð í viðskiptafræðum við Háskólann á Bifröst – Aldursstefna fyrirtækja,  starfslok – stefnumótun

 

 
Hjalti Jóhannesson sérfræðingur og aðstoðar forstöðumaður Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri  mun fjalla um breytingar í atvinnulífinu með hliðsjón af reynslu frá Akureyrarsvæðinu.

 

  

 

Morgunverður framreiddur frá kl. 08.00

 

Allir velkomnir

Nánar á vef BSRB