ÖBÍ, BSRB, Landssamtökin Þroskahjálp og Félag eldri borgara í Reykjavík standa fyrir
útifundi mánudaginn 24. nóvember á Ingólfstorgi, sem hefst  kl. 16:30. Yfirskrift
fundarins er Verjum velferðina.

Ræðumenn eru Gerður A. Árnadóttir formaður Þroskahjálpar, Árni Stefán Jónsson
varaformaður BSRB og formaður SFR, Halldór Sævar Guðbergsson formaður ÖBÍ, Margrét
Margeirsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Fundarstjóri er Björg Eva
Erlendsdóttir. Í lok fundarins verður borin upp ályktun.