Stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra undrast að Kristján L. Möller samgönguráðherra skuli tilkynna fyrirvaralaust, án nokkurs samráðs við starfsfólk sem hlut á að máli, að ekkert verði af fyrirhuguðum flutningi flugleiðsöguþjónustu á Keflavíkurflugvelli til Flugstoða ofh. núna um áramótin.

 

Flugumferðarstjórar á Keflavíkurflugvelli, sem eru starfsmenn Flugmálastjórnar Keflavíkur-flugvallar, fengu í september 2008 bréf um að störf þeirra yrðu lögð niður og Flugstoðir ohf. tækju við ráðningarsamningi þeirra í ársbyrjun 2009.

 

Stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra lítur svo á að flugumferðarstjórar á Keflavíkur-flugvelli hafi með umræddri tilkynningu í raun verið ráðnir til Flugstoða og að þeir verði starfsmenn Flugstoða frá og með 1. janúar 2009. Af því leiðir að engir flugumferðarstjórar verða starfandi á vegum Keflavíkurflugvallar ohf., hins opinbera hlutafélags sem tekur á nýársdag 2009 formlega við þeim rekstri sem áður heyrði undir Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar og Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf.