Aðalfundur Styrktarsjóðs BSRB var haldinn í dag. FÍF er aðili að sjóðnum og vill stjórn FÍF vill minna félagsmenn sína á að þeir geti sótt um ýmsa styrki til Styrktarsjóðsins, t.d. vegna líkamsræktar, gleraugnakaupa yfir 45.000 kr, skoðunar hjá Hjartavernd, krabbameinsleitar, tækni- og glasafrjóvgunar, ættleiðingar, tannlæknakostnaðar umfram 50.000 kr og margs fleira. Á heimasíðu sjóðsins www.styrktarsjodur.bsrb.is má finna úthlutunarreglur hans ásamt umsóknareyðublöðum og öðrum upplýsingum.