Ágætu félagsmenn

Stjórn FÍF vill benda félagsmönnum á að í kafla 2.6 í kjarasamningi félagsins eru sérstakar heimildir vegna sérstakra aðstæðna og vegna truflana á starfsemi vegna ytri aðstæðna. Isavia er þannig heimilt að bregða frá ítrustu reglum um hvíldartíma, þó ekki meiri en um getur í ofangreindri grein kjarasamningsins. Félagið hefur rætt þessi mál við yfirmenn og telur það rétt mat að þær aðstæður sem nú eru uppi vegna náttúruhamfarana í Eyjafjallajökli valdi því að þessar reglur eigi við. . Félagsmönnum skal jafnframt bent á að huga vel að hvíld sinni og tryggja að þeir séu nægjanlega vel hvíldir til að geta sinnt starfi sínu af öryggi.

Stjórnin